Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Page 37

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Page 37
35 Anna Guðrún Arnardóttir og Anna Valdemarsdóttir iðjuþjálfar á Kleppi Endurminningar og fram- tíðardraumar geðiðjuþjálfa í tilefni af afmælinu okkar ætlum við að deila með ykkur skemmti- legum endurminningum frá síð- asta starfsári og framtíðardraumum okkar, sem vonandi rætast! Það sem stendur upp úr hjá okkur er Fær- eyjaferðin góða sem við fórum í síðastliðið sumar. Með í för voru 21 sjúklingur, greinar- höfundar og einn starfsmaður úr iðjuþjálfun Kleppsspítala. Ferðin tók alls 10 daga. Við keyrðum til Seyðisfjarðar og tókum ferjuna til Færeyja, fórum þar daglega í leiðangra og höfðum síðan viðkomu á Akureyri á heim- leiðinni. Þess má geta að þetta er fyrsta ut- anlandsferðin sem farin hefur verið á veg- um iðjuþjálfunar á geðdeild Lsp. Seinna í þessari grein koma brot úr ferðasögunni sem einn ferðalangurinn skrifaði og birtist vonandi í heild sinni í geðhjálparblaðinu... Eins og mörgum er kunnugt eru ferðalög fastur liður í okkar starfi. Við teljum mjög mikilvægt að okkar fólk fái tækifæri til að njóta þessara lífsgæða eins og allt venjulegt fólk; að upplifa eitthvað nýtt, takast á við óvæntar aðstæður, safna endurminningum, að eiga sér draum sem rætist og að langa heim á ný. Oft sjáum við nýjar hliðar og styrkleika hjá okkar skjólstæðingum í þess- um ferðum. Það er ótrúlegt hve mikið getur gerst við það eitt að komast út úr blýföstum venjum daglegs lífs. Undirbúningurinn undir ferðalagið var ekki síður mikilvægur en sjálft ferðalagið. Við byrjuðum með nærri árs fyrirvara að þjappa saman hópnum og að skipuleggja fjáröflun. Fyrir flesta var það stórt skref að yfirgefa landið. Flestir höfðu ekki gert það í 15 - 20 ár og einn aldrei. Eins og vænta mátti fór að bera á kvíða og spennu þegar brottför nálgaðist. Við hittumst því oftar eftir því sem nær dró og Ebba var fengin til að sjá um kvíðastillandi djúpslökun. Sumir voru við það að gugna um tíma en náðu að yfirstíga allar hindranir þannig að allir sem ætluðu sér að fara fóru. Ferðalagið var í heildina mjög ánægju- legt. Að sjálfsögðu er ýmislegt sem kemur upp í svona stórum sjúklingahóp sem nauð- synlegt er að vinna úr. Við þessar aðstæður þar sem unnið er saman allan sólarhringinn í þetta langan tíma er sérstaklega nauðsyn- legt að starfshópurinn standi saman og að traust ríki manna á milli. Það reyndi mikið á það í þessari ferð enda má lítið út af bera til að svona hópur splund rist. Það kom okkur á óvart hversu orkukrefjandi þetta var, vara- batteríin voru næstum því alveg búin!

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.