Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 71

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 71
„Því miður,“ sagði hermaðurinn. „Ef um hnapp hefði verið að ræða, þá væri það kannski hugsanlegt. En lögin mæla svo fyrir að heiðursmerki megi aðeins gefa litlum svarthærðum drengjum sem eru daufdumbir.“ Lestarstjórinn settist á dyraþrepið til að hugsa. „Sannleikurinn er sá,“ sagði hann um síðir, „að fyrir þessa töf höldum við ekki áætlun. Og úrþví við fáum ekki greiðslu verðum við víst að fara með þig alla leið á endastöðina.“ „Þá verð ég að hefja borgarastyrjöld,“ sagði hermaðurinn. „Og það er hreint ekki fýsilegt þegar maður er í eðli sínu löghlýðinn. En ekki er vert að tefja ykkur lengur.“ Hann þrýsti hönd gömlu konunnar og sagði: „Nú verður þú að lofa að vera mér trú og bíða mín.“ „Já,“ sagði hún og táraðist. Þvínæst tók hermaðurinn í hönd lestarstjórans og sagði: „Þú hefur tekið þessu ljúfmannlega. Nú skaltu ekki liugsa meira um það. Ég kem mjög bráðlega og greiði sektina. Og einsog þú veist þá gengur hermaður ekki á bak orða sinna.“ Þegar hann hvarf á braut stóð gamla konan við klefagluggann og horfði á eftir honum meðan lestin rann af stað. Svo fékk hún kolaryk í annað augað og varð að setjast til að leita að vasaklútnum sínum. Hermaðurinn gekk og litaðist um og talaði við sjálfan sig: „Það er líkt. Já, hvað það er líkt! Það hlýtur að vera liér. Heppni að ég skyldi koma þessa leið. Ég hefði getað leitað óralengi. Þangaðtil ég helði verið að þrotum kominn. Vænstu menn að hleypa mér úr lestinni. Merkilegt hvað menn geta nú verið vænir. Já, það er líkt. Lítill skógur. Bakkarnir þarna. Engin hús. Og líka skýin þarna. Mér datt það í hug þegar ég sá skýin...“ Þannig gekk hann og talaði í hljóði. Þegar hann kom að tjörninni sá liann að það var stór mergilsnáma. í henni var vatn og sef. „Já, hér hlýtur það að vera,“ sagði hann, „og það er bara viðkunnanlegt að vera í góðum félagsskap.“ Það var gamla ranimoskið í tjörninni sem hann hafði í huga: ryðgaðar fjaðradýnur, fúnir pokar, götóttar skjólur, brotin skófla, diskabrot, glerbrot og margt fleira. Á elriviðargrein sem teygði sig útyfir vatnsborðið hékk kjóldrusla. „Góðan daginn, frú,“ sagði hermaðurinn við kjólinn. „Kærar þakkir fyrir heimboðið. Ég er viss um að ég á eftir að kunna mjög vel við mig hérna.“ Hann settist í grasið undir einum pílviðinum og reimaði frá stígvélunum sem hann síðan sparkaði af sér. Annað þeirra valt næstum útí tjörnina. „Þetta var gott,“ sagði hann og tók af sér heiðursmerkið. „Þetta er prýðilegasta heiðursmerki, heiðraða mergilsgröf,“ sagði hann. „Það hefur að sönnu ekki verið eins nytsamlegt og aðrir hlutir í safni þínu. En samt sem áður...“ Hermaðurinn fleygði heiðursmerkinu útí tjörnina. Þvínæst kveikti hann sér í sígarettu og lagðist útaf á tjarnarbakkann með hendur undir hnakka. Það leið að kvöldi og tók að kula, en hann skeytti því engu. Hann gat legið og horft uppyfir bakkana. Þar voru engin hús eða tré, ekkert korn. Skýin höfðu færst úr stað, roðnað og breytt um lögun. Aldrei framar yrðu þau söm og áðuiyen hann gat samt enn borið kennsl á þau. á-~ LESIÐ MILU LÍNA 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.