Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 10

Jón á Bægisá - 01.02.2007, Side 10
ögmundur Bjarnason og réð sig um tíma sem handritshöfund að fræðslukvikmyndaveri breska ríkisins (GPO). Tókust þar kynni með honum og tónskáldinu unga, Ben- jamin Britten, sem áttu eftir að bera ávöxt í frjóu samstarfi þeirra utan veggja kvikmyndaversins, m.a. óperettunni Paul Bunyan, sem samin var í Bandaríkjunum veturinn 1939, auk þess sem Britten samdi lagaflokkana Our Hunting Fathers (1936) og On This Island. (1937) við kvæði Audens og setti þess utan tónlist við leikrit þeirra Isherwoods, The Ascent of F6. Til allrar óhamingju fyrir tónlistarunnendur slitnaði upp úr þessu samstarfi í upphafi fimmta áratugarins, þegar virðist hafa komið til einvers konar vinslita milli þeirra Brittens, að því er sumir segja vegna ástleitni skáldsins við hið unga tónskáld (sem eins og margir vita var þó alla tíð líkt farið í kynferðislegum efnum og Auden sjálfum). Sumarið 1936 leggur Auden svo upp í hina fyrstu miklu utanlands- reisu sína eftir Þýskalandsdvölina, er hann heldur sjóveg norður til Is- lands í kompaníi við vin sinn frá háskólaárunum og bróður í skáldlistinni, írska skáldið Louis MacNeice. Höfðu þeir félagar báðir kynnst nokkuð Islendingasögum í enskum þýðingum og hrifist af - einkum þó Auden, sem taldi sig auk þess eiga að rekja ættir hingað eins og að ofan getur. Þegar Auden bauðst samningur við bókaútgáfuna Faber & Faber um ritun ferða- bókar gegn greiðslu alls ferðakostnaðar, var honum ekkert að vanbúnaði að halda til fundar við eyjuna í norðri sem hann hafði í æskudraumum sínum séð fyrir sér sem „heilaga jörð“. Mun Auden hafa siglt út hingað nokkru á undan MacNeice og dvalist hér röskan mánuð áður en félagi hans kom til fundar við hann. Snemma í júlímánuði 1936 stígur hann á land í Reykjavík og finnst ekki mikið til höfuðstaðarins koma, hvorki að útliti né menn- ingarbrag, skoðar þó Þjóðminjasafnið, Listasafn Einars Jónssonar, Alþing- ishúsið og barinn á Hótel Borg og þykir þar „ekki fleira markvert að sjá, utan Óla Maggadon niðri á höfn, Odd Sigurgeirsson [„Odd sterka“] út um allt, málarann Kjarval og Arna Pálsson, prófessor í Islandssögu.“ Á næstu vikum og mánuðum ferðast þeir MacNeice svo vítt og breitt um landið, vestur í Reykholt, norður á Akureyri og Mývatn og austur í Hallormsstað, og hrífast af fegurð landsins, gestrisni og menningarbrag landsmanna. Þegar þeir svo halda aftur utan um miðjan septembermánuð, eftir þriggja mánaða dvöl hér, sem löngu síðar stendur í minning skáldsins „upp úr sem einhver ánægjulegasti tími í lífi manns, sem hingað til hefur lifað óvenju ánægjulegu lífi“, hafa þeir í farteskinu uppkast að sameiginlegri leiðangurs- lýsingu sinni, ferðabókinni Letters from Iceland (1937), undarlegu sam- blandi af kveðskap og prósa, lýsingu á fólki og staðháttum, handbók fyrir ferðamenn, samantekt á hnyttilegum klausum úr eldri ferðalýsingum og broslegum hugleiðingum um lífið og skáldskapinn. Árið 1936 kom einnig út önnur kvæðabók Audens, On Ihis Island, 8 á dÐagpálá — Tímarit þýðenda NR. II / 2007
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.