Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Síða 11

Hagskýrslur um húsnæðismál - 01.01.1957, Síða 11
Húsnæðlsskýrslur 1950 9 1910 1920 1930 1940 1950 % % % % % Steinsteypuhús .................. 4 9 24 40 53 Timburhús .................... 44 46 49 49 40 Torfbæir ....................... 52 45 27 11 4 Braggar o. fl.................... — — — — 3 Samtals 100 100 100 100 100 Það er athyglisvert, að 1950 eru steinsteypuhúsin orðin meir en helm- ingur allra íveruhúsa á landinu eða tiltölulega álíka mikill hluti af húsa- tölunni eins og torfbæirnir voru 1910 (53% á móts við 52%), en torfbæ- irnir voru þá komnir niður í 4% af húsnæðistölunni eða sama hundraðshluta sem steinsteypuhúsin 1910. Timburhúsin að viðbættum bröggum o. fl. eru hins vegar álíka mikill hluti af húsatölunni 1950 eins og timburhúsin 1910. En við fyrri manntöl mun húsnæði það, sem nánast svarar til bragga o. fl. nú, líklega að mestu hafa talizt til timburhúsa (ýmiss konar timburskúrar o. fl.). Timburhúsin voru nálega helmingur húsatölunnar 1930 og 1940, en síðan fer hlutdeild þeirra að minnka aftur. 1. yfirlit sýnir, hvernig húsin skiptust hlutfallslega eftir tegundum bygg- ingarefnis í bæjum og sveitum. Meir en helmingur íveruhúsa í Reykjavík og kaupstöðum voru steypuhús, tæpur helmingur í sveitum og rúmlega % í kauptúnum. Þar voru timburhúsin aftur á móti tiltölulega flest, um helmingur. í kaupstöðum voru þau tiltölulega færri og í sveitum og Reykjavík náðu þau ekki þriðjungi húsatölunnar. Torfbæir voru næstum einvörðungu í sveitum. Voru þeir tæplega 8% af húsatölunni þar, en í því sambandi má benda á, að í sveitum var meira en annars staðar um hús úr blönduðu efni, og í fullum 1. yfirlit. Hlutfallsleg skipting íbúðarhúsa eftir tegundum byggingarefnis í bæjum og sveitum. Percentage distribution of dwelling houses by types of building materials in urban and rural areas. Reykjavík Kaupstaðlr Kauptún Sveitir Allt landiS the capital towns urban villages rural arcas Iceland Steypuhús o/ concrete (or stoneJ .. 56,5 51,1 42,3 47,9 50,3 Timburhús of wood 31,3 43,6 50,3 32,7 37,4 Torfbæir of turf 0,0 0,1 1,0 7,6 2,7 Hús úr blönduðu efni o/ mixed ma- terials 3,3 3,4 4,0 8,3 5,1 Óupplýst not reported 0,8 1,3 1,9 0,9 1,1 Braggar o. fl. former military bar- racks etc 8,1 0,5 0,5 2,6 3,4 Alls totál 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 helmingi þeirra var torfbygging annar þátturinn. í bæjunum voru aftur á móti flest slík hús sambland af steypu- og timburhúsum. Um bragga og annað slíkt bráðabirgðahúsnæði var langmest í Reykjavík, um 8% af húsatölunni, en annars staðar gætti þeirra lítið, nema í sveitum Gullbr,- og Kjósarsýslu, þar sem tiltölulega meira var um þá heldur en í Reykjavík. í töflu I er sýnt, hvernig íveruhúsin skiptust eftir tegundum byggingar- efnis í hverjum kaupstað og kauptúni með yfir 300 íbúa og í hverri sýslu utan þessara kauptúna. 2

x

Hagskýrslur um húsnæðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um húsnæðismál
https://timarit.is/publication/1176

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.