Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 67

Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 67
 Þjóðmál SUmAR 2011 65 Ég álít til að mynda ekki efnisleg rök til að und anskilja að fullu fundargerðir ríkisstjórna þegar upplýsingaréttur almennings er annars vegar . Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að upplýsingalögum segir að rétt sé að fundar gerðir þessar séu undanþegnar upplýsingarétti þar eð ríkisstjórn og ríkisráð hafi „ótvírætt sérstöðu innan stjórnsýslunnar“ . Ég fæ vart séð hvernig þetta samrýmist markmiði laganna um að aflétta leynd af gögn um í þeim tilfellum þar sem leyndin þjónar engum tilgangi og leiðir beinlínis til þess að almenningur tortryggir stofnanir hins opinbera . Þegar ég var að kanna tiltekin mál í skjala­ safni Seðlabankans fyrir nokkrum árum kom ég auga á minnisblað frá ráðherrafundi, það er að segja með stimpli sem gaf til kynna að viðkomandi skjal hefði verið lagt fram á ríkisstjórnarfundi hinn 10 . desember 1985 . Ég hafði mikinn hug á að fá að líta í fundar­ gerð þess ríkisstjórnarfundar, en samkvæmt upplýsingalögum er um að ræða lokuð gögn . Ég afréð þó að láta á það reyna hvort ekki væri unnt að fá aðgang að fundargerðinni, þar sem ég taldi þetta ákvæði upplýsingalaga ekki standast, enda engin efnisleg lagarök að minni hyggju til að undanskilja allar fundargerðir ríkisstjórnar í upplýsingalögum . Fundargerðir ríkisstjórnar frá þessum tíma eru varðveittar á Þjóðskjalasafni og fékk ég skjalaverði safnsins til að leita álits for­ sætisráðuneytis á þessu efni . Starfsmenn ráðu­ neytisins veiktust þá skyndilega af ákvarð ana­ fælni og ekkert bólaði á svari í hálfan annan mánuð, eða þar til erindið hafði verið ítrekað . Þá fékk ég loks fyrirspurn frá skrifstofustjóra ráðuneytisins á þá lund hvort þetta væri bara ekki hreinlega um seinan – hvort það væri ekki bara óþarfi fyrir mig að fá aðgang að þessum gögnum, þar sem svo langur tími væri liðinn frá því að ég sendi erindið . Ég sagðist standa fastur við fyrra erindi og svo fór að lokum að bækurnar voru opnaðar fyrir mér . Ómögulegt var að sjá að nokkrum almanna­ hagsmunum væri ógnað, en líkast til eru þær fáar fundargerðir ráðherrafunda þar sem svo viðkvæm mál eru til umræðu að rétt sé að tálma aðgengi að þeim um áratugi . Umrædd undanþága frá upplýsingarétti er því að mínu viti til muna of umfangsmikil . Skjöl horfin Í1 . mgr . 11 . gr . upplýsingalaga er ákvæði um málshraða, en samkvæmt því skal stjórn vald taka ákvörðun um hvort það verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má . „Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skal skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta“, eins og segir í ákvæðinu . Þessari reglu er að jafnaði ekki fylgt og venjulega þarf að ítreka erindi einu sinni eða oftar áður en viðkomandi embættis maður hefst handa við að svara því . Sem dæmi má nefna að þá hef ég nú frá áramótum sent átta bréf til Háskóla Íslands og undirstofnana hans vegna einfaldrar fyrirspurnar um styrk greiðslur til tiltekinna stofnana skólans . Í svarbréfum víkja yfirmenn skólans sér undan að svara, vísa hver á annan, ellegar þeir virða fyrirspurnir mínar að vettugi . Ég hef þó ekki einasta átt í erfiðleikum með að nálgast skjöl, heldur virðist sums staðar sem nálega öll skjöl er varða tiltekin mál hafi horfið . Þá er það heldur ekki til að auðvelda leit að gögnum að skipulag sumra skjalasafna og uppröðun er í algjörum molum . Það er að mínu viti galli á löggjöf hérlendis að ekki sé unnt að koma við refsiábyrgð forstöðumanna ríkis stofnana ef skjalahald er í ólestri, enda óþol andi fyrir réttaröryggi borgaranna ef ómögu legt er að nálgast skjöl vegna þess eins að ekki var hirt um að skrá þau og flokka, að ekki sé talað um ef skjölum hefur beinlínis verið fargað . Árið 2007 leitaði ég upplýsinga hjá mörg um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.