Þjóðmál - 01.06.2011, Page 93

Þjóðmál - 01.06.2011, Page 93
 Þjóðmál SUmAR 2011 91 þeirri kenningu reis rússneskur almenningur, einkum verkalýður í stærstu borgunum, upp til að mótmæla bágum lífskjörum, m .a . vegna áhrifa frá fyrri heimsstyrjöldinni, og hrakti keisarann frá völdum í febrúar 1917 . Þeim, sem þá tóku við völdum, tókst hins vegar ekki að ná tökum á ástandinu og fyrir vikið ríkti samfélagsleg og stjórnmálaleg upplausn í Rússlandi næstu mánuði . Bolsévikar voru best skipulagðir allra stjórnmálaflokka eða ­hópa í landinu . Þeir reru undir, kyntu ófriðarbálið og hrifsuðu svo völdin þegar færi gafst . Þegar almenningi varð ljóst, að þeir myndu ekki standa við fyrirheitin um „brauð og frið“ og enn síður stuðla að auknu lýðræði varð uppreisn, sem brátt breyttist í borgara styrjöld . Hún stóð á árunum 1918–1921 og var tvíþætt . Annars vegar börðust hinir nýju valdhafar við bændur og verkamenn sem vildu ekki sætta sig við stjórn þeirra og hins vegar tókust rauð­ og hvítliðar á um völdin í landinu, sjálft ríkis vald­ ið . Kulavig bendir á, að ýmsar fleiri túlkan ir hafi verið settar fram á rússnesku bylt ing unni og eðli hennar og nefnir þar einkum kenn­ ingar bandaríska sagnfræðingsins Richard Pipes um að byltingin hafi verið mann anna verk en ekki náttúruhamfarir, og engan veg­ inn óhjákvæmileg . Bókin skiptist í fjóra höfuðþætti . Í hinum fyrsta reynir höfundur að skýra aðdraganda byltingar og rekur þá nokkra höfuðþætti í sögu Rússlands á síðari hluta 19 . aldar . Því næst fjallar hann allrækilega um atburði ársins 1905, „blóðuga sunnudaginn“ og stofnun fyrsta þingsins, dúmunnar . Í öðrum þætti fjallar hann um febrúarbyltinguna 1917 og rekur ýtarlega söguna frá henni og fram í október . Þriðji þáttur fjallar um októberbyltinguna og í fjórða og síðasta þætti segir frá borgarastríðinu á árunum 1918–1921, auk þess sem stuttlega er vikið að helstu atburðum áranna 1922–1924 . Að minni hyggju er þessi bók einkar hand­ hægt og glöggt yfirlit yfir sögu byltingarinn­ ar í Rússlandi, aðdraganda hennar og ors­ akir, atburðarásina á örlagaárinu 1917 og loks um hrikalegar afleiðingar valdatöku bolsévika fyrir rússnesku þjóðina . Vafalaust eru margir ósammála fræðilegri túlkun höfundar á einstökum atriðum . Frásögn hans er hins vegar skýr og afdráttarlaus og skrifuð á ljómandi góðri dönsku . Auk meginþáttanna segir hann frá ýmsum atburðum, sem varpa ljósi á gang mála . Þær lýsingar eru oft ansi suddalegar og varla fyrir lesendur sem eiga erfitt með svefn . Sama máli gegnir um myndefnið, sem Kulavig notar á snilldarlegan hátt til að varpa skýrara ljósi á einstaka þætti frásagnarinnar . Þar nýtur hann þess að hafa haft aðgang að rússneskum ljósmyndasöfnum en margar myndanna í bókinni hafa ekki birst áður í bókum á Vesturlöndum . Hafa þær mikið og í sumum tilvikum einstakt heimildagildi . Bókarhöfundur, Erik Kulavig, er danskur sagnfræðingur og sérfræðingur í rússneskri sögu . Hann er lektor við Syddansk universitet og hefur auk annars skrifað bækurnar KGB. De russiske efterretningstjenester fra Ivan den Grusomme til Vladimir Putin, sem út kom árið 2007, og Det røde tyranni. Stalin, magten og folket 1879–1953, en hún kom út 2005 . Ævintýramaður endar í gálganum Jonathan Miles: The Nine Lives of Otto Katz, Bantam, London 2010, 384 bls . Eftir Hannes Hólmsteinn Gissurarson Í formála bókarinnar Evrópu á glapstigum, sem Sverrir Kristjánsson þýddi og gaf út 1943, segir hann: „Höfundur þessarar bókar, André Simone, er kunnur, franskur blaðamaður, sem er nú landflótta

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.