Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 29

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 29
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 29 • Meta skjólstæðinga með tilliti til samskipta og hvernig þeir vinna úr upplýsingum • Efla frumkvæði skjólstæðinga Að loknum morgunfundi eru heim­ ilis þrif. Ætlast er til að skjól stæð ingar taki virkan þátt, unnið er eftir ákveðnu skipulagi og lagt er upp með að gæslu­ menn og skjólstæðingar vinni verkin saman. Gæslumenn, sem margir hverjir eru menntaðir félagsliðar, sinna því mikilvæga starfi að vera fyrirmyndir skjól stæðinganna og ganga á undan með góðu fordæmi. Yfir vetrartímann er boðið upp á einingabært nám á Sogni, kennari kemur frá Fjölbrautaskóla Suðurlands tvisvar í viku. Flestir þeirra sem eru á Sogni nýta sér þennan möguleika og eru dæmi þess að skjólstæðingar hafi útskrifast sem stúdentar meðan á vistinni stóð. Iðjuþjálfun á Sogni Markmið með iðjuþjálfuninni er að: • Meta virkni og færni skjól stæð­ ings ins við eigin umsjá, atvinnu og tómstundir • Efla frumkvæði skjólstæð ingsins til framkvæmdar athafna • Áhugahvetja og virkja skjól stæð­ inginn í eigin ákvarðanatöku/efla eigin áhrifamátt • Efla og/eða viðhalda færni skjól­ stæðingsins að því marki sem hann kýs og er fær um • Stuðla að jafnvægi í daglegu lífi, þannig að skjólstæðingurinn geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og verið ábyrgur og virkur í þjóð­ félaginu Í iðjuþjálfun á Sogni hef ég haft Líkanið um iðju mannsins (Model of Human Occu pation ­ MOHO) að leiðarljósi, en þar er lögð áhersla á áhugahvöt ein staklingsins til að stunda iðju, sem hentar lífsstí l hans og venjum. Í fyrsta skiptið í sögu staðarins eru nú eingöngu karlmenn á Sogni. Meðal­ aldurinn er frekar lágur og meirihluti skjólstæðinganna hefur átt við alvar­ legan vímuefnavanda að stríða. Margir hafa litla sem enga vinnusögu og skóla­ gangan hefur verið slitrótt. Einbeiting og úthald til verka er af skornum skammti og áhugi til hvers kyns iðju lítill eða í sumum tilfellum enginn. Í iðjuþjálfun er leitast við að auka færni skjólstæðingsins í athöfnum daglegs lífs. Miðað er við „fyrsta stig“ starfsendurhæfingar þar sem lögð er áhersla á mætingu, einbeitingu, frum­ kvæði til verka, verkgetu, skipulag og framkvæmd athafna/verka svo eitthvað sé nefnt. Markmið atvinnutengdrar endur­ hæfingar á Sogni er að meta og/eða þjálfa: • Mætingu skjólstæðingsins • Hvort skjólstæðingurinn geti farið eftir leiðbeiningum • Úthald skjólstæðingsins til vinnu • Verkgetu og skipulagningu skjól­ stæðingsins • Hvernig skjólstæðingurinn gengur um áhöld, verkfæri og almennt um vinnusvæðið Til þess að þetta sé mögulegt er mikilvægt að boðið sé upp á verkefni sem vekja áhuga og forvitni einstak­ lingsins. Starfsemin í iðjuþjálfuninni á Sogni fór frekar hægt af stað síðastliðið haust og með orðatiltækið „Góðir hlutir gerast hægt“ í farteskinu lagði ég upp full bjartsýni. Ég byrjaði á því að taka til í iðjuaðstöðunni, hafði dyrnar opnar og skapaði hin ýmsu hljóð til að auka á forvitni þeirra sem mögulega áttu leið fram hjá. Strákarnir litu inn til mín, fullir tortryggni, enda var ég gjör­ samlega óþekkt stærð í þessu samhengi og það þarf að skapa traust við svona aðstæður. Ekki leið á löngu þar til tveir af þeim voru komnir með tusku í hönd og voru farnir að aðstoða við þrifin. Svona liðu vikurnar, það kom oft fyrir að ég sat ein, með gæslumanni, í iðju­ þjálfuninni fyrir hádegi en svo rak einn og einn inn nefið eftir hádegið. Það var ekki mikið um framkvæmdir eða iðjusemi, einn sem greip í pensil stöku sinnum og galdraði fram á nokkrum mínútum fallegar hestamyndir. Einn prjónaði eina og eina húfu, annar reyndi að setja saman módel. Mörg undanfarin ár hafa Sognverjar tekið að sér að pakka kortum af öllum stærðum og gerðum fyrir fyrirtæki úti í bæ, haustið var engin undantekning en nú brá svo við að áhuginn á þessari vinnu var ekki mikill. Aðeins einn skjól­ stæðingur var virkur í þessari pökk­ unarvinnu. Í kjölfar banka hrunsins fór svo á endanum að við misstum þetta annars ágæta verkefni. Eins og áður segir þá er ég í hlutastarfi á Sogni en ég er einnig í hlutastarfi á hjúkrunardeildum á Heilbrigðisstofnun

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.