Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 9

Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 9
ræða síðasta starfsár, setja markmið, ræða líðan og samskipti á vinnustað, ræða frammistöðu kennara, þau markmið sem sett voru og hvernig gekk að ná þeim og útfæra markmið. Ennfremur er hægt að tengja starfsmannasamtölin við starfsþróun með því að ræða hvaða fræðsla, námskeið og þjálfun geti nýst í starfi. Mjög mikilvægt er að fylgja slíku starfsmannasamtali eftir til að tryggja að settum markmiðum sé náð og að þau verði ekki bara orðin tóm. Seinna starfsmannasamtalið gæti þó orðið nokkurs konar launaviðtal þar sem launaleg útfærsla kennara væri sett í samhengi. Lokaorð Í takt við breytt starfsumhverfi og stjórn- unarhætti hafa starfsmannasamtöl náð að festa sig í sessi í íslensku vinnuumhverfi. Víða eru ákvæði um slík samtöl í kjara- samningum og annars staðar hafa vinnu- staðir innleitt þetta ferli. Hvað sem því líð- ur þá er mikilvægt að þeir sem koma að starfsmannamálum hafi trú á þessari hug- myndafræði, undirbúa þarf sig vel og nauð- synlegt að yfirmenn sem taka starfsmanna- samtöl fái til þess nauðsynlega þjálfun og starfsmönnum verði gerð grein fyrir mikil- væginu. Annars verða samtölin til lítils og viðhorf eins og „...enn eitt starfsmanna- samtalið, það kemur ekkert út úr þessu...“ mun heyrast. Megintilgangurinn er að vera vettvangur fyrir gagnkvæma upplýsingagjöf milli yfirmanna og kennara, auka þannig samskipti og finna út hver sé æskileg þróun kennara í starfi hans og skapa ánægjulegra starf og starfsumhverfi. Þetta er mikilvægt tæki til að setja kennurum markmið til að keppa að og skilgreina verkefni þeirra sem er forsenda fyrir árangursríku skólastarfi. Reynslan hefur sýnt að ef vel er að þessum þáttum hlúð þá skilar það sér í betri starfs- manni og meiri líkum á hærri launum. Mikilvægt er að blanda ekki launaumræð- unni inn í þetta ferli heldur skapa henni sérstakan sess í sérstöku launaviðtali sem samkvæmt handbók með kjarasamningi yrði þá „seinna starfsmannasamtal“. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson Höfundur er lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ Starfsmannasamtöl 10 Kostir starfsmannasamtala: Fyrir kennara: Kennari fær vitneskju um hvernig hann stendur sig og til hvers er ætlast af honum í starfi. Kennari fær tækifæri til að tjá sig um markmið, stjórnun og stefnu skólans. Leið til að móta starfsþróun og símenntun kennara. Stuðla að hvatningu og betri starfsanda og bæta skilning kennara á eigin vinnu. Kennari gerir sér betur grein fyrir væntingum skólastjórnenda. Stuðla að betri samskiptum við skóla- stjórnendur. Geta komið í veg fyrir deilur. Auka sveigjanleika. Fyrir skólastjórnendur: Tækifæri til að kynna markmið og stefnu skóla. Stuðla að betri kynnum kennara og yfirmanns. Geta komið í veg fyrir deilur. Auka sveigjanleika. Bæta starfsanda. Auka skilning skólastjórnenda á þörfum kennara. Vettvangur þar sem kennurum eru kynnt markmið. Leið til að veita kennurum endurgjöf. Um hvað er rætt í starfsmannasam- tölum? Núverandi verkefni og aðstæður, eru þau nægilega krefjandi? Frammistöðu kennara, í hverju stendur hann sig vel? Hvernig hefur tekist að framfylgja markmiðum í ljósi starfsáætlunar? Hvaða verkefni hefur kennari sérstak- lega áhuga á? Hvaða þættir í starfinu eru mikil- vægir/léttvægir? Hvaða hæfileikum býr kennari yfir? Hvaða hæfileika vill kennari þróa? Hverjar eru sterkar og veikar hliðar kennarans? Á hvaða þætti í starfi ber að leggja meiri áherslu/minni áherslu? Eru ný verkefni áhugaverð og þess virði að skoða þau? Hvernig gekk að uppfylla sett markmið frá síðasta starfsmannasamtali? Hvað gerði að verkum að ekki var hægt að ljúka verkefnum? Samskipti við aðra starfsmenn, stjórnendur og viðskiptavini. Starfsaðstaða, starfsumhverfi og vinnuaðstæður. Vettvangur fyrir hvaðeina sem skiptir kennara og stjórnanda máli. Láta skólastjórnendur sér annt um vellíðan kennara? Hvaða þekkingu eða reynslu þarf að afla sem tengist starfi kennara? Er jafnvægi milli starfs og einkalífs? Hvernig stendur kennari sig í starfi m.t.t.: Áhuga? Frumkvæðis? Vilja til að takast á við ný verkefni? Sjálfstæðis? Samstarfshæfni? Ábyrgðar? Samviskusemi? Óskir um breytingar í starfi. Útfærsla starfsmannasamtala Undirbúningur kennara Skoða síðastliðið starfsár. Meta eigin frammistöðu. Hvernig stend ég mig í starfi? Hvað finnst öðrum um frammi- stöðu mína? Hvað get ég gert til þess að verða betri kennari? Skoða niðurstöður síðasta samtals. Ákveða tilgang samtalsins. Skoða starfslýsingu m.t.t. markmiða. Um hvað er rætt Mat á liðnu skólaári. Starfsánægja, samskipti og líðan á vinnustað. Verkefni síðastliðins árs. Í ljósi settra markmiða. Helstu áhrifaþættir varðandi fram- gang verkefna. Árangur kennara Fagleg og persónuleg hæfni rædd. Hvað er vel gert? Hvað má betur fara? Litið til framtíðar Verkefni framundan, markmið sett. Starfsþróun, óskir um ný verkefni. Hvernig er hægt að ná settum markmiðum? Samvinna Samstarf á vinnustað. Starfsþjálfun Námskeið sem þarf að sækja. Þarfir kennara og skóla. Persónuleg markmið og væntingar Hér er Sigríður Marteinsdóttir að afhenda Dýrleif Guðjónsdóttur, gjaldkera samtakanna Breið bros 20.000 krónur. Stjórn Reykjavíkurdeildar (1. deildar) Félags leikskólakennara ákvað á fundi sínum í nóv- ember síðastliðnum að senda ekki út jólakort til félagsmanna sinna, heldur láta samtökin Breið bros njóta andvirði þeirra. Breið bros eru samtök aðstandenda barna með skarð í vör og góm og voru stofnuð í nóvember 1995. Félagar geta orðið foreldrar barna sem fæðast með skarð í vör og/eða góm eða önnur andlitslýti, fagfólk og allir þeir sem hafa áhuga á að leggja málefninu lið. Heimasíða samtakanna hefur slóðina http://www.breidbros.is Leikskólakennarar - fréttir frá 1. deild

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.