Forspil - 01.12.1958, Blaðsíða 6
íslenzkur veruleiki hefur klof-
ið kjarnann í myndrænu lífi nú-
tímans sprungið út úr heims-
menningunni og vaxið upp í
tunglið og engan hef ég séð upp-
lýsa eins vel hraðann og kraft-
inn í vélvæðingu tækninnar og
Svavar Guðnason í mynd sinni
vetrarbraut séð frá tungli
bjargfugl og haf er stórkostlegt
afrek í nútímamyndlist og á sér
e. t. v. hliðstæðu í björgunaraf-
rekinu, við látrabjarg
nætiirútvarp frá öræfajökli er
staðsett ; | í herkastalanum og
morgúnblaðshöllin rís af frjálsri
verzlun einsog legsteinn yfir
hjarta lándsins sem er vatnajök-
úll eða kétlavík
tsabfot .hrollkaldur atburður
sem skeði á glerhafi alþingis þeg-
ar sjálfstæð framsókn gekk á
glerbroti í bandalag við land-
lielgisbrestinn í sólarlaginu
trompetfugl með vetnis-
sprengjur í nefi og eyrum að
varpa þeim er að missa andlitið
Næturútvarp frá Öræfajökli
haftyrðill maður á skíðum sem
æðir niður fjallshlíð
leysing sjávarþorp í dymbil-
viku þegar þorskurinn og grasið
rísa upp til að fá styrk úr ríkis-
sjóði
hrímfugl gæti verið íslenzk
kría á háskóla í Egyptalandi ef
fornmynjafræði breta hefði ekki
endað í skurðsævintýri
af 14 myndum við kvæðakver
Laxness finnast mér beztar nr. 33
37 38 og 40
Ijóðræð átök í myndbyggingu
sýna myndir nr. 2 3 8 9 og 14
sýning Svavars hefur verið vel
sótt og helmingur myndanna
selst
Jónas Svafdr.
Smcfifiícyii umjhþt
Ljóð 1944—53 heitir bók sem
nýkomin er út hjá Menníngar-
sjóði. Er þetta úrval úr ljóðabók-
um sem komu út á þessu tíma-
bili. Guðmundur Gíslason Haga-
lín rithöfundur, Gils Guðmunds-
son fyrrverandi alþingismaður og
Þórarinn Guðnason læknir hafa
valið. Með þessari bók hafa þeir
auglýst smekkleysi sitt svo eftir-
minnilega að á bók þessa mun
verða litið sem víti til varnaðar.
Allskonar foglar sem aldrei hafa
verið orðaðir við skáldskap vaða
uppi á síðum bókarinnar með
aumlegt þvaður. Vinnubrögð
þremennínganna eru ekki ólík
því að maður sem ætlar að halda
veislu hlaupi útá götu og bjóði
hinum og þessum til að gestirnir
séu nógu margir. Auðvitað hefur
þessi maður gleymt þeim sem
helst áttu skilið veisluna. Við val
í bókina hefur verið gengið fram-
hjá Jónasi Svafár. Jónas gaf þó út
bók á þessu tímabili: Það blæðir
úr morgunsárinu, bók sem mun
í framtíðinni verða álitin gott
framlag til íslenskrar nútíma-
Ijóðagerðar. Þremenníngamir
hafa auglýst sig rækilega. Vinnu-
brögð þeirra eru tákn þess dauða-
móks sem ríkir á þeim stað sem
kallaður er Menníngarsjóður og
virðist hafa það hlutverk eitt að
villa um fyrir fólki, gefa út þau
6 FORSPIL
verk sem eingin þörf er á og velja
til þess menn sem vegna glám-
skyggni sinnar eru líklegastir til
þess að gera þau þannig úr garði
að þau geti staðið um aldir sem
veglegur minnisvarði um niður-
lægíngu íslenskrar bókaútgáfu.
Jóhann Hjálmarsson.
Leiklist
Forspil ætlaði að birta grein
um leikrit Arthurs Miller sem
sýnt er í Iðnó, en greinin var
ekki tilbúin fyrir þetta blað og
óvíst er að hún komi í næsta
blaði. Leiklistarlífið í haust hef-
ur verið mjög athyglisvert. Leik-
rit Millers á erindi til allra sem
góðri list unna og sama er að
segja um hið umdeilda leikrit
eftir John Osbome sem Þjóðleik-
húsið sýnir. Baldvin Halldórsson
hefur sett þetta leikrit á svið af
mikilli kunnáttu og smekkvísi
sem honum er lagin. Nú eru aft-
ur hafnar sýníngar á Dagbók
Önnu Frank sem Baldvin setti
einnig á svið. Við höfum frétt að
Júlíus Sesar eftir Shakespeare
verði bráðum tekið til sýníngar í
Þjóðleikhúsinu í þýðíngu Helga
Hálfdanarsonar. Af þessu má sjá
að íslenzkt leiklistarlíf er ekki til
skammar, þeir sem þar ráða eru
smá saman að átta sig á hlutverki
leikhúsa og er það sennilega að
þakka þeim úngu mönnum sem
starfa í leikhúsunum. Og það er
gleðilegt til þess að vita að úngir
menn eins og Baldvin Halldórs-
son og Gísli Halldórsson fá verk-
efni í hendur sem hæfa þeim.
Komu Gunnars Eyjólfssonar til
landsins ber að fagna. Við eigum
nú marga góða leikara, það er
krafa okkar að hæfileikar þeirra
séu notaðir, en ekki misþyrmt í
hláturskrampaleikum þeim sem
öðruhvoru skjóta upp kollinum.
Hvenær verður t. d. sýnt leikrit
hér eftir García Lorca, (nú er
komin út þýðíng á Húsi Bem-
örðu Alba) hvenær eftir Brecht,
svo ekki sé talað um Beckett og
Ionesco eða Camus. Sýníngin á
leikriti Osbornes hlýtur að vekja
hjá okkurvon um eitthvað meira.
/•
FJÖLBREYTT OG VANDAÐ TÍMARIT
UM BÓKMENNTIR
O G MENNINGARMÁL
DAGSKRÁ