Forspil - 01.12.1958, Qupperneq 8
Jónas Svafár:
PLATÓ
hann Plató
er hundur tveggja tíka
og heitir voff voff líka
en hefurðu séð
hann strætó
sem urrandi
og glefsandi
göturnar smalar
og ensku talar
við kvikmyndaféð
sem fer í prófin
eða veizluhófin
Þau örfáu eintök sem eftir eru af fyrsta tölublaði FORSPILS
eru til sölu í Bókabúð KRON, Bankastræti 2.
Viðtal
við
Sveinbjörn
Beinteinsson
Við sátum á kaffihúsi hér í
bænum og rifumst um Freuchen.
Kannski riftimst við um Freuch-
en vegna þess að Sveinbjöm
Beinteinsson sat þarna á meðal
okkar alskeggjaður eins og Freu-
chen. Við komumst ekki að
neinni niðurstöðu því þarna var
maður með grænan hatt og þurfti
alltaf að tala á milli þess sem
hann otaði fram hattinum eins
bg hann væri peníngar fyrir
brennivíni. Þarna sat líka úngur
maður sem talaði um byltíngu og
sagði að við hefðum átt að gera
byltíngu þegar stjórnin sagði af
sér. Hár þessa únga manns var
8 FORSPÍL
Þeim er að vaxa skegg
farið að þynnast ískyggilega svo
ég spurði Sveinbjörn Beinteins-
son hvort hann héldi ekki að
hann yrði sköllóttur eftir tvö ár.
— Að mestu leyti, sagði Svein-
björn.
— Heldurðu ekki að rímurnar
séu orðnar sköllóttar fyrir
laungu, spurði ég.
— Ég veit ekkert um það, þeim
er að vaxa skegg.
— Er það glerkunta?
— Allur skeggvöxtur byrjar á
glerkuntuskeiðinu.
— Þú vilt þá halda því fram
að salt sé ekki pipar?
— Það er hvorttveggja krydd.
— Heldurðu að krydd sé skó-
sverta, Sveinbjörn?
— Hún hefur verið það fyrir
þá sem bjuggu til úr henni hrist-
íng hér á árunum.
Að því mæltu fór Sveinbjörn
heim að éta gellur en maður sem
var nýbúinn að láta klippa sig og
raka af sér bartana fór að tala um
að þetta viðtal væri eintómt röfl.
J.
. .. til aÖ varast skrattaskarann
skaltu bara kalla d mig.