Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 33

Fréttablaðið - 03.12.2016, Side 33
Gamall dúkur með heklaðri blúndu sem geymir sjaldgæft munstur. Mynd/Jenný öðrum svæðum  koma karlmenn örlítið meira við sögu.“ Dúkarnir hafa varðveist misjafnlega. Jenný segir þá einkum eiga þrjá óvini. Þvottavélar og þurrkarar eru þar algerlega í fyrsta sæti. Sólin er óvin- ur númer tvö og svo eru það mýsnar. „Eina gamla konu hitti ég sem hafði jafnan tólgarmola eða kerti einhvers staðar undir kirkjubekk, svo mýsnar gæddu sér síður á dúknum.“ Jenný segir alltaf gaman að sjá ný munstur og dúk sem fer vel á altari kirkjunnar. „Það þarf öðru vísi munstur í stórar kirkjur en litlar og verður að huga að því að hönnun dúks falli vel að hverri kirkju fyrir sig. Spurð hvort hún telji um lista- verk að ræða þar sem altarisdúkar séu segir Jenný að minnsta kosti listahandverk á sumum þeirra. „Svo hafa listakonur líka hannað og unnið dúka sem eru þá einstakir,“ segir hún og getur þess að áhugi virðist á margs konar handverki í dag og vonandi verði svo áfram. En sitja íslenskar konur enn við að bródera eða hekla altarisdúka? „Já, já, það er víða  verið að gera dúka. Til dæmis er kominn nýr og fallegur dúkur í Reykholtskirkju í Borgarfirði sem Helga Magnúsdóttir saumaði og líka kom sérhannaður dúkur eftir Bryndísi Símonardóttur í Saurbæjarkirkju í Eyjafirði á þessu ári. Mjög merkilegt framtak,“ segir Jenný sem næst er spurð hvað þær stöllur ætli að gera við upplýsing- arnar sem þær eru að safna um altarisdúka landsins. Er þetta dokt- orsverkefni? „Ja, ekki er það beint á dagskrá. Áður en farið er að skoða svoleiðis þarf rannsóknin að ná yfir allt landið. Við eigum Breiðafjörð, Snæfellsnes, Vestfirði, höfuðborgar- svæðið, Rangárvallasýslu, Skafta- fellssýslur og Austfirði eftir. Stundum finnst okkur við vera í kapphlaupi við tímann við að afla upplýsinga um gamla altarisdúka. Við settum okkur markmið í upphafi. Það fyrsta var að skoða munstur á altaris- dúkum, annað var að hafa gaman af því og þriðja var að gera okkur þetta að kostnaðarlausu. Í upphafi sóttum við um styrk til Kristnihátíðarsjóðs og kom hann okkur vel af stað. Ýmsir fleiri menningarsjóðir hafa styrkt verkefnið og erum við þakklátar fyrir. Við lifum mjög spart á ferða- lögum okkar, en bensínkostnaður er óhjákvæmilegur. Auðvitað dreymir okkur um fjármagn til að halda áfram þessari vinnu. Við Vitum dæmi um að fleiri en einn ættliður hefur sameinast um að gera dúk, jafnVel heilt kVenfélag þannig að dúkur hafi gengið á milli kVenna þar til saumaskap Var lokið. Hjá okkur færðu þýsk gæðatæki frá Siemens, Bosch og Gaggenau. Fyrir jólin bjóðum við fjölda glæsilegra tækja á sérstöku jólaverði. Komdu til okkar og gerðu frábær kaup þér og öðrum til ánægju. Bosch Handryksuga BKS 4043 Öflug, 14,4 V. Sýgur upp þurr óhreinindi, agnir og vökva. Fullt verð: 8.900 kr. Jólaverð: 6.900 kr. SIEMENS Espressó-kaffivél TE 515209RW Alsjálfvirk kaffivél sem býr til helstu kaffidrykki með einum hnappi. 15 bara þrýstingur. Kaffikvörn úr keramík sem gerir vélina hljóðláta. Fullt verð: 139.900 kr. Jólaverð: 109.900 kr. Bosch Töfrasproti MSM 67170 Kraftmikill, 750 W. Hljóðlátur og laus við titring. Losanlegur neðri hluti sem má þvo í uppþvottavél. Skál með loki, stór hakkari, ísbrjótur og þeytari fylgja með. Fullt verð: 11.900 kr. Jólaverð: 8.900 kr. Bosch Matvinnsluvél MCM 3110W 800 W. Tvær hraðastillingar og ein púlsstilling. Tætir, sneiðir, rífur og sker. 2,3 lítra skál. Örugg í notkun: Fer aðeins í gang þegar lok er í læstri stöðu. Fullt verð: 11.900 kr. Jólaverð: 9.500 kr. Rommelsbacher Vöfflujárn WA 1000/E Glæsilegt 1000 W vöfflujárn úr burstuðu stáli frá þýska framleiðandanum Rommelsbacher. Viðloðunarfrítt yfirborð. Fullt verð: 13.900 kr. Jólaverð: 10.900 kr. Pralin Hangandi ljós 65641-16 Fullt verð: 21.900 kr. Jólaverð: 16.900 kr. h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 33l A U g A R D A g U R 3 . D e s e m B e R 2 0 1 6 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 B -9 F 6 C 1 B 8 B -9 E 3 0 1 B 8 B -9 C F 4 1 B 8 B -9 B B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.