Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 84

Fréttablaðið - 03.12.2016, Page 84
A rnmundur Ernst Backman og Aldís Amah Hamilton fara með hlutverk Kass­íós og Desdemónu í uppfærslu Vestur­ ports á Óþelló. Arnmundur útskrifaðist frá leik­ listardeild Listaháskóla Íslands árið 2013 og Aldís vorið 2016. Þau eru á meðal þeirra ungu og upp­ rennandi leikara sem taka þátt í uppfærslu Vesturports á Óþelló, jólasýningu Þjóðleikhússins í ár. Hlutverk Aldísar er hennar fyrsta í Þjóðleikhúsinu. Aldís: „Við erum núna að æfa í leikmynd og fara í búninga, svo þetta er spennandi vika fram undan. Börkur Jónsson sér um leik­ mynd og hún er mögnuð.“ Arnmundur: „Börkur kemur ein­ hvern veginn alltaf á óvart. Það er Arnmundur Ernst Backman og Aldís Amah Hamilton æfa hlutverk sín í Óþelló og spegla sig í þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Harmleikurinn um Óþelló er jólasýning Þjóðleikhússins í ár. Þau Arnmundur Backman og Aldís Hamilton fara með hlutverk í sýning- unni og ræða um leikverkið, íslenskt samfélag og arfleifð foreldra sinna. svo skemmtilegt þegar verkið er komið á þennan stað í ferlinu.“ Kynhlutverk eru ekki eftir hefð­ bundinni forskrift í uppfærslunni. Jagó er til að mynda kona leikin af Nínu Dögg Filippusdóttur. Arnmundur: Þetta er sterkt í leik­ hússenunni í dag, að snúa kynja­ hlutverkum við. Hvað varðar Jagó, þá er það í fyrsta skipti í leikhús­ sögunni sem það er gert sem kemur á óvart.“ Aldís: „Mér finnst þetta spenn­ andi. Að máta konu í þetta hlutverk illmennis. Vesturport er þekkt fyrir að reyna á mörkin. Fjölbreytnin er mikilvæg, fyrir utan það að þessar dökku hliðar mannlegs eðlis, þær eru ekki bara karla. Heldur kvenna líka.“ Arnmundur: „Kassíó er að nokkru leyti fórnarlamb aðstæðna. En samt ekki. Hann er framapotari, kann að leika leikinn. Í upphafi er hann tekinn fram yfir Jagó og það hrindir atburðarásinni af stað. Pabbi lék þetta hlutverk fyrir 27 árum.“ Aldís: „Hefur þú horft á það?“ Arnmundur: „Nei, er það til á myndbandi? Úff. Nei, ég er ekki viss um að ég vilji gera það. Maður fer í ákveðið ferðalag gagnvart for­ eldrum sínum. Fólki sem vinnur með mér finnst alltaf vera að bregða fyrir skuggum í leikhúsinu. Annað hvort eru þeir frá mömmu eða pabba. Ég get ákveðið að fjar­ lægjast skuggana eða bara grípa þá. Ég held ég sé búinn að ákveða að grípa þá. Nota það besta.“ Faðir Arnmundar er Björn Ingi Hilmarsson leikari og móðir hans Edda Heiðrún Backman heitin. Móðir Aldísar er Alda Sigmunds­ dóttir rithöfundur og faðir hennar er Ricky Hamilton, búsettur í Bandaríkjunum. Leiðir foreldra Aldísar skildu þegar hún var um ársgömul. Hún hefur ekki séð hann síðan. „Það er alltaf gaman að upp­ götva að maður býr yfir góðum eiginleikum foreldra sinna því á uppvaxtarárum ætlar maður sér ekki að líkjast foreldrum sínum. Svo lærir maður að meta þau á full­ orðinsaldri og það sem þau hafa gefið manni. Ég finn að ég hef þörf fyrir að tengjast föður mínum og föðurfjöl­ skyldunni betur. Ég sendi honum stundum tölvupóst og af og til hringjumst við á. Ég sker mig úr hér á landi. Ég er stolt af því og langar að tengjast uppruna mínum enn betur. Foreldrar okkar fylgja okkur. Stundum segir mamma þegar ég hlæ: Þú hlærð alveg eins og pabbi þinn. Þannig er þetta, foreldrum okkar bregður fyrir, þó að það séu bara gen, vöðvar, eitthvað líkam­ legt.“ Harmleikur Williams Shake­ speare um Óþelló er reglulegt við­ fangsefni íslenskra leikhúsa. Hvern­ ig hafa þau nálgast sín hlutverk? Aldís: „Ég hef pælt heilmikið í verkinu og speglað í eigin reynslu. Myrkir eiginleikar mannsins eru undir smásjá, stórýktir. Hlutverkið býður í ferðalag. Desdemóna er í huga sumra hið hefðbundna kven­ fórnarlamb. En í mínum huga er hún líka töffari því hún talar gegn föður sínum og hefðbundnum venjum um hjónaband. Velur sinn eigin veg sem endar með látum auðvitað. Stolt og barnsleg ein­ lægni eru ef til vill hennar lestir því frekar en að gefast upp þá trúir hún á lausn. Hún sér ekki að hún er með veikum manni. Heilbrigð mann­ eskja myndi láta staðar numið.“ Arnaldur: „Kassío er auðvitað algjör hálfviti. Hann er dónalegur, ruddi. En ég er að skoða mýkri hlið­ ar hans. Hann er alltaf í einhverri rullu. Ef hann væri í Reykjavík á okkar tímum, þá væri hann mögu­ lega hipster. Rekstrarstjóri á Gló Street Food, samt í viðskiptafræði líka í HR og svo er hann kannski tímabundið fasteignasali. Allt til skemmri tíma, því hann á von á því að verða hampað, því hann er svo stórkostlegur!“ Aldís: „Hann ráðskast líka með fólk.“ Arnmundur: „En mér þykir samt vænt um hann. Okkur verður að þykja vænt um karakterinn, þrátt fyrir að hann sé gallaður.“ Aldís: „Við verðum líka að hafa húmor, fyrir aðstæðum og fyrir okkur. Þótt undiraldan sé þung í harmleik eins og Óþelló þá er samt rými fyrir húmor og ást. Við nýtum það rými í þessari uppfærslu.“ Arnmundur: „En svo er líka stór­ kostlegt ferðalag að fylgjast með þessum reynsluboltum vinna og læra af þeim. Þetta er stórskota­ lið. Gói, Ingvar Sigurðsson, Björn Hlynur, Ólafur Egill og Nína.“ Arnmundur er svo til alinn upp í leikhúsi. Aldís þekkir líka Þjóðleik­ húsið og fékk stundum að heim­ sækja afa sinn þangað í vinnuna. Aldís: „Afi minn var verkefnastjóri í leikhúsinu, Sigmundur Örn Arn­ grímsson. Hér fékk ég stundum að hanga. Hann var vel liðinn og það fattar það enginn af sjálfsdáðum að ég er barnabarn hans. Ég horfði á sumar sýningarnar aftur og aftur, eins og til dæmis Kardi mommu­ bæinn sem var í uppáhaldi.“ Arnmundur: „Þetta er nú munur­ inn á okkur. Á meðan þú varst að horfa á Kardimommubæinn, þá var ég að horfa endurtekið á fars­ ann Sex í sveit og var kominn með mikið óþol fyrir því verki.“ En hafa þau bæði verið ákveðin í að verða leikarar? Aldís: „Já og nei. Ég gekk í Versl­ unarskólann og komst ekki inn í Nemó. Ég hafði kannski ekki sama kjark og þor og aðrir sem fengu þar inni. Ég var meira leitandi og var búin að skrá mig í kínverska við­ skiptafræði í HÍ en endaði í Lista­ háskólanum. Ég hefði kannski ekki komist þangað ef mér hefði ekki verið hafnað, ég held það sé hollt. Þá horfist maður í augu við það sem maður vill og annaðhvort heldur áfram eða ekki.“ Arnmundur: „Það er alveg rétt. Baráttan er mikilvæg. En það þarf ekki síður sterkan skráp í það þegar vel gengur. Maður er hættulegastur sjálfum sér þegar það gengur vel. Þá fer hégóminn af stað. Ég var svo mikill unglingur. Í leiklistinni gekk mér vel, þegar boltinn fór að rúlla leið námsáhuginn fyrir það. Þannig að hér er ég nú. Kannski vil ég nú samt einhvern tíma læra frönsku? Eða bara eitthvað annað.“ Aldís: „Hafðu nú ekki áhyggjur af þessu. Ég lærði á Excel, ég hef ekkert að gera við það í dag. Þú getur lært frönsku seinna, Arnmundur. Það er nefnilega málið, leiklistin er ein af þeim starfsgreinum þar sem þú verður að hamra járnið meðan heitt er, á meðan þú ert ungur. Hlutverkin eru mörg skrifuð fyrir ungt fólk, sérstaklega konur. Það er, held ég, ekki tekið inn í skólann eftir að þú verður 28 ára. Þetta eru hlutir sem maður þarf að uppgötva snemma og vita að þetta er það sem þú ætlar að gera. Þetta er fórn.“ Grípa í skugga á sviðinu MAÐUR ER HÆTTULEG- ASTUR SJÁLFUM SÉR ÞEGAR ÞAÐ GENGUR VEL. ÞÁ FER HÉGÓMINN AF STAÐ. 3 . D E S E M B E R 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :0 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 8 B -C 6 E C 1 B 8 B -C 5 B 0 1 B 8 B -C 4 7 4 1 B 8 B -C 3 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 2 _ 1 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.