Víkurfréttir - 10.11.1983, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. nóvember 1983 17
í sandölum og ermalausum bol
Nú líöur varla sú vika aö
ekki sé opnaöur nýr staður
fyrir þá sem vilja fá smá lit á
kroppinn, og ekki nóg með
það, biðlistarnir til að kom-
ast að eru svo langir að þeir
hjá ASÍ myndu verða
ánægðir með fjöldann á
þeim. Þetta er með öðrum
orðum þetta fyrirbrigði sem
kallað er sólbekkir og eru
eins og samlokur með
lömpum á alla vegu. Sól-
baðsstofur eru það nýjasta
sem við höfum fengið
maníu fyrir, nú má sjá alla
með þennan fína lit og þú
spyrð viðkomandi að því,
hvort hann hafi verið að
koma að utan. Nei, nei,
hann var bara að koma úr
tíma sem hann pantaði í
fyrra.
Þetta uppátæki hefurgert
' r\ *
viMxm
það að verkum að sólar-
landaferðir hafa ekki selst i
neinu mæli, því hvað ert þú
líka að spandera gjaldeyri í
svoleiðis ferð ef þú getur
farið i sólbað í næsta húsi?
Þetta er óneitanlega farið
að minna á að heima er
best. Eitt virðist þó vanta á
sæluna og það er að þú
hefur engan bjór eða romm
og kók í þessum „sólarferð-
um“. Það stendur kannski
allt til bóta, því hvað má ekki
gera, ef viljinn erfyrir hendi.
Gullbrúðkaup
N.k. laugardag 12. nóv-
ember, eiga hjónin Jóhann
Bergmann og Halldóra
Árnadóttir, gullbrúðkaup.
Heimili þeirra er að Suður-
götu 10, en þau hjón hafa
búið í Keflavík alla tíð. Jó-
hann starfar enn sem bif-
vélavirki hjá Sérleyfisbif-
reiðum Keflavíkur. Þau hjón
eiga 4 syni, 8 barnabörn og
3 barnabarnabörn.
Munu þau ásamt ættingj-
um og vinum halda upp á
tilefniö í Kirkjulundi n.k.
laugardagskvöld.
Ráðhús Keflavíkur og
Njarðvíkur við Flugstöðina
( fjörugum umræðum
sem urðu um sameiningu
sveitarfélaga, og þá aðal-
lega Keflavíkur og Njarð-
Ýsugengd í
kjölfar vestan-
áttarinnar
Að undanförnu hafa afla-
brögð í öll veiðarfæri verið
mjög léleg hjá landróðra-
bátum. En undan vestan-
áttinni sem gekk hér yfir í
byrjun síðustu viku, virðist
sem fiskur hafi flúið hér inn í
bugtina, því á miðikudag í
síðustu viku brá svo við að
netabátarnir komust allt
upp í rúm 21 tonn í Garð-
sjónum. Var hér bæði um að
ræða ýsu og þorsk.
Degi síðar var afli enn
góður og þá var hann
orðinn að mestu ýsa. Voru
dæmi um að bátur landaði
þá 12 tonnum, þar af um 10
tonnum af ýsu. - epj.
víkur, á aðalfundi SSS á
dögunum, varpaði Ellert
Eiríksson sveitarstjóri í
Garði, fram þeirri spurn-
ingu, hvers vegna aðal-
stöðvar beggja sveitarfé-
laganna yrðu ekki staðsett-
ar í byggðarkjarna sem
skapast mun umhverfis
nýju flugstöðina.
Sagði hann að málum væri
nú þannig háttað varðandi
sameiningu þessara
tveggja byggðarlaga, að
menn væru á móti þessu
einungis af tilfinningasjón-
armiðum. Njarðvíkingar
vildu ekki að aðalstöðvarn-
ar yrðu Keflavikur megin og
Keflvíkingar væru á móti
þeim í Njarðvíkum, og því
væri lausnin að setja þær á
svæði sem tilheyrði hvor-
ugu byggðarlaginu, en væri
þó miðsvæðis, s.s við nýju
flugstöðina.
Að sjálfsögðu er þetta
ekki svo vitlaus hugmynd,
það er bara spaugilegast
við hana, að þá yrði ráðhús
Keflvíkinga og Njarðvík-
inga í Miðneshreppi. - epj.
kannski verður ekki langt
að bíða að við getum setið
og horft á video, veriö í sól-
baði og haft glas við hönd.
Kannski getum við líkafarið
í sólbað meðan við bíðum
eftir bankastjóranum, bæj-
ar- eða sveitarstjóranum,
og lækni á heilsugæslunni.
Takmarkið er: sólarbað á
hvern stað. Hitaveitan ætti
auðveldlega að geta komið
sér upp svona aðstöðu
meðan hún sýnir gestum
sínum kvikmyndina ódýru,
því þeir hafajú sérfræðing-
inn í sólskini. Iðnráðgjafi
Suðurnesja ætti að athuga
hvort þetta er ekki hug-
mynd að nýjum heimilisiðn-
aði, þá gætu húsmæðurnar
hætt að prjóna „ódýrar"
lopapeysur fyrir útlendinga
og líka hætt að vinna í frysti-
húsi. Nú er bara að byrja og
opna einn sólarstaðinn enn,
strax í dag.
Framtíð bíöur, betri en nú
best að fara að opna stofu.
Því hvað er verra en falleg frú
föl á húð og líkust vofu?
P.S. Næsta skrefið hlýtur
að vera að opna stofu með
sænskt nudd og tyrkneskt
bað, þá er iðnaðurinn kom-
inn í lag hér um slóðir.
Tilsölu 155 m2
einbýlishús
ísmíðum
............
--- ■ H- —
að Klapparbraut 3, Garði.
Húsið er fokhelt, en selst á því
byggingarstigi sem kaupandi
óskar eftir. Upplýsingar í síma
1766 eftir kl. 19.
Breyting á
umferðarrétti
á gatnamótum Hringbrautar
og Flugvallarvegar
umferð á Hringbraut.
Breytingin er gefin til kynna með biðskyldu-
merki á Hringbraut við gatnamót Flugvall-
arvegar.
F.h. umferðarnefndar Keflavíkurbæjar
Bæjartæknifræðingur