Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.1991, Síða 1

Víkurfréttir - 28.11.1991, Síða 1
47. töluDiao ■<.. OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM LANDSB'OKA SAFNAHDsi] hverfisgöq 101 REYKJ ~.gangur Fimmtudagur 28. nóvember 1991 500 manna stjórn- kerfi á Suðurnesjum - mætti hæglega fækka niöur í 150 e Þar sem enn eru nokkrír dagar þar til jólasveinarnir koma til byggða var ákveðið að fulltrúi Léttsveitarínnar Karen Sturlaugsson og fulltrúi jólasveinanna hann Gáttaþefur mætt- ust á miðri leið og und- irrítuðu samninginn. Ljósm.: epj. Léttsveit Tónlistarskólans og Hiö íslenska Jólasveinafélag: Samstarfs- samningur við Jólasveina endur- nýjaður Fyrir síðustu jól náði Létt- sveit Tónlistarskólans í Kefla- vík samningum við Hið ís- lenska Jólasveinafélag (HIJ) um samstarf. Samstarfinu var þannig háttað að Léttsveitin tók að sér að skrá niður pantanir jólasveinanna á jólaböll og í heimahús og lagði um leið til hljómsveit á jólaböllin ef eftir því var óskað. Nú hefur þessi samningur verið endumýjaður og verður þjónustan svipuð og í fyrra. Agóðinn rennur í ferða- sjóð Léttsveitarinnar. Þeir sem vilja fá jóla- sveinanna á jólaböll. með eða án hljóðfæra, í heimahús með pakka á aðfangadag eða við einhver önnur tækifæri geta hringt í síma 14904 (Víglundur og Guðrún) eða í síma 11291 (Sigurður og Dröfn) og borið upp óskir sínar. Reynt verður að gera öllum til hæfis í þjónustu og verðlagningu. Eins og sveitarstjómarkerfið er í dag á Suðurnesjum eru 51 - 52 sveitarstjórnarfulltrúi og í heild eru 500 manns í nefnda- kerfinu. Væru Suðumesin sam- einuð væri auðveldlega hægt að skera þetta niður í 1 1 bæj- arfulltrúa og 150 nefndarmenn, en það er sú tala sem er á Ak- ureyri, sent er bæjarfélag með svipaðan íbúafjölda og Suð- umesin í dag. Þessar upplýsingar komu nýlega fram í erindi er Sigfús Jónsson form. nefndar Fé- lagsmálaráðuneytis um skipt- ingu landsins í sveitarfélög, hélt á fundi Rotarýklúbbs Kefla- víkur. A bls. 22 í blaðinu í dag birtum við kafla úr ræðunni. Bæjarstjórn Njarövíkur fundaði meö utanríkisráöherra: Starfsmannamál Varnarliðsins tekin föstum tökum - Fleiri starfsmönnum sagt upp í gær Bæjarstjóm Njarðvíkur átti í vikunni fund með Jóni Baldvin Hannibalssyni ut- anríkisráðherra þar sem lagt var á borð fyrir ráðhema nýr rökstuðningur fyrir fjölgun starfsmanna á Keflavíkur- flugvelli. Að sögn Kristjáns Páls- sonar, bæjarstjóra í Njarðvik féllst ráðherra á að hann og Róbert Trausti Ámason, skrifstofustjóri Vamarmála- deildar héldu þegar í næstu viku fund með sendiherra Bandaríkjanna og yfirmönn- um Vamarliðsins, þar sem fastara yrði rekið á ráðn- ingamálunt hjá Varnarliðinu. í þá átt að fjölga stöðugildum þar. Á fundinum færðu Njarðvíkingamir. ráðherra fregnir unt að um 30 starfs- mönnum hefði átt að segja upp í gær. Lofaði ráðherra að athuga þeirra mál sér- staklega. Sagði Kristján að bæj- arstjómin væri ntjög ánægð með viðtökumar hjá ráð- herra og styddi hann fylli- lega í því sem framundan væri í þessum málum. ÁUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA ^ 14717,15717 • FAX ^ 12777

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.