Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 11
11
Sólhúsið í Hótel Keflavík:
Víkurfréttir
28. nóv. 1991
Ein glæsilegasta
sólbaðsstofa landsins
Það var samdóma álit gesta
við opnun nýrrar sólbaðsstofu
Sólhússins að Vatnsnesvegi 12
í Keflavík, að þarna væri komin
ein glæsilegasta sólbaðsstofa
landsins.
Það var fyrir einum og hálf-
um mánuði sem sú hugmynd
vaknaði að flytja starfsemi stof-
unnar og var húsnæði við
Vatnsnesveginn inni í mynd-
inni. Þá kom Steinþór Jónsson
hótelstjóri Hótel Keflavíkur að
máli við Arna Björn Erlingsson,
einn eiganda Sólhússins. og
sýndi honum kjallarann undir
hótelinu og gamla Ofna-
smiðjuhúsið. Arni sagði í sam-
tali við blaðamann á dögunum
að honunt hafi ekki litist allt of
vel á húsnæðið, enda mikið
þurft að framkvæma. Eftir að
hafa séð frumteikningar hafi
honum hins vegar snúist hugur
og framkvæmdir hafi verið
settar á fullt. Núna tæpum
tveimur mánuðum síðar hefur
sólbaðsstofan verið opnuð.
Opnunarhátíðin var sl. laug-
ardag kl. 16:00, en fimm mín-
útum áður fóru síðustu iðn-
aðarmennimir úr húsi.
Hin nýja sólbaðsstofa býður
upp á átta Ijósabekki, gufubað,
nuddpott, slökunarherbergi og
aðstöðu fyrir tvo nuddara. Þá er
afgreiðslan rúmgóð og þar er
hugguleg setustofa. í setu-
stofunni getur fólk horft á 15
sjónvarpsrásir og einnig er
sjónvarpstæki við nuddpottinn,
þar sem fólk getur slakað á og
horft á sjónvarp.
Nýjunga er að vænta hjá Sól-
húsinu. Meðal hugmynda eru
lokaðir tímar þar sem klúbbar
eða hópar geta komið saman og
látið stjana við sig. Frekari
upplýsingar er að l'á hjá Sól-
húsinu.
SENDING AF GLÆSILEGUM EFNUM í STOFUGARDÍNUR - Engin ranga.
Gamaldags rósótt damask frá kr. 690 pr. m. Tilvaliö til yfirdekkingar
INY | komið JÓLAKAPPAR frá kr. 780,- JÓLAPLASTDÚKAR frá kr. 790,- STRAUFRÍIR JÓLADÚKAR
Efst: Séð í setustofu. - Mið: Þarna verður komið fvrir tæ-
kjuni til léttra æfinga. - Neðst: Þrír af eigendutn Sólhússins.
F.v.: Hafdís Finnbjörnsdóttir, Arni Björn Vilhjálmsson og Árni
Björn Erlingsson.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi
☆ ☆ ☆ • FYRIR JÓLIN ☆ ☆ ☆
• o
Úrval teppa á stigaganga. Gerum föst
verötilboö ykkur aö kostnaðarlausu.
Ný lína í heimilisteppum eftir þekkta
hönnuöi, s.s. Calvin Klein ofl.
Eigum eftirtakmarkaö magn af Beyki- og
Eikarparketi á gamla veröinu.
r (IfOpÍAA
Hafnargötu 90 - sími 14790
• •
FJOLBYLI
SAMEIGNIR