Víkurfréttir - 28.11.1991, Page 13
12
Viðtalið
Fréttin uin skjót við-
brögð slökkviliðs
Brunavarna Suður-
nesja er eldboð barst
frá Hornbjargi í síðasta tölu-
blaði, hefur vakið athygli. Pess
vegna lögðum við leið okkar
upp á slökkvistöð og fengum
Jóhannes Sigurðsson, vara-
slökkviliðsstjóra til að greina
frá þeirri |>jónustu sem stöðin
veitir í þessum efnum.
Sagði Jóhannes að á slökkvi-
stöðinni væri búið að setja upp
móttökubúnað er tekur á móti
boðunt frá viðvörunarkerí'unt.
Væri höfuðáherslan lögð á
tvennt. I fyrsta lagi væri þeir
seni slökkvilið með móttöku á
brunaviðvörunarkerfum sem
væri fyrirbyggjandi aðgerð
varðandi eldsvoða og í öðru lagi
höfðu þeir með höndunt sjúkra-
flutninga og því gætu þeir
brugðist l'yrr við ef sjúklingar
eða aldraðir köliuðu til aðstoðar
með neyðarhnappi.
• Á varðstofu slökkviliðs
Brunavarna Suðurnesja er sól-
arhringsvakt þar sem fylgst er
vel með þeim brunaviðvörun-
arkerfum og neyðarhnöppum
sem tengdir eru stöðinni. Hér
er það Sigurgísli Ketilsson sein
fylgist með boði frá einu kerf-
anna. Að neðan er Jóhannes
Sigurðsson, varaslökkviliðs-
stjóri. Ljósm.: epj.
Neyöarhnappar og brunaviövörunarkerfi beintengd
Brunavörnum Suöurnesja:
SKJOT VIÐBROGÐ OG
AUKIÐ ORYGGI
Að auki hafa þeir nú tök á að
vakta aðra þætti s.s. frystikistur
í verslunum, laxeldisstöðvar,
innbrotskerfi og vatnsnema, svo
eitthvað sér nefnt. En hvers
vegna eruð þið að þessu, Jó-
hannes?
„Fyrst og fremst eiu þetla
fyrirbyggjandi aðgerðir, t.d.
getum við komið í veg fyrir
stórbruna, með því að fá vit-
neskju strax, en frarn að þessu
hefur það allt of oft brunnið við
að slökkviliöið fær vitnesku unt
eldsvoða. þegar hann væri kont-
inn á það stig að erfitt er að af-
stýra stórtjóni. Varðandi neyð-
arhnappinn þá höfum við orðiö
varir við þörfina hjá öldruðum
og sjúkum, sent búa oft heima
án þess að geta veitt sér það ör-
yggi sent þeir þarfnast.
Með því að vera með þetta
tengt beint til okkar sparast
rnikill lími, miðað við það þegar
slík tæki eru tengd aðilum í
Reykjavík, sent síðan þurfa að
koma boðum hingað suður með
símtali. En eins og menn vita
getur álagið á símakerfinu
stundum verið þannig að erf-
iðleikum er háð að ná sambandi
milli Keflavíkur og höfuðborg-
arsvæðisins. Þá er það að auki
stór sparnaöur fyrir sveitarfé-
lögin að hægt sé að bjóða þessa
þjónustu hér heirna l’yrir."
-Nú Itafa tugir aðila látið
tengja slík kerfi við ykkur. Vitið
þið einhver dæmi um að slíkt
hal'i sannað sig?
„Dæmið í Hornbjargi, húsi
aldraða sem þið sögðuð frá í
síðasta tölublaði er góð sönnun
fyrir brunavarnarkerfið.
Þá eru borðleggjandi dæmi
varðandi neyðarhnappa. Eitt
jieirra er um fullorðinn mann
sent hafði legið tímum saman
heirna hjá sér ósjálfbjarga án
þess að geta kailað á hjálp og til
hans kom enginn í heimsókn.
Nú gengur þessi sami maður
með neyðarhnapp unt hálsinn.
sein er beintengdur slökkvi-
slöðinni í Keflavík og nægir
honum að taka í hnappinn þá
berast boð hingað á stöðina."
Sagði Jóhannes að þeir á
Slökkvistöðinni bíði ekki aðeins
eftir boðum, þeir fylgjist einnig
með því að hvert tæki sé í lagi
a.m.k. einu sinni á sólarhring.
Gerist það með þeim hætti að
boð berast á ákveðnum tíma sem
þeir skrá niður, án þess að not-
andi tækisins verði þess var.
Berist boðin ekki á réttunt tíma,
er strax brugðist við og athugað
hvað hafi gerst og sé um bilun
að ræða eru viðgerðarmenn
þegar sendir á staðinn.
Þá vildi Jóhannes nota tæki-
færið til að benda fólki á að hafa
reykskynjara á heimili sínu. því
þeir veiti gríðarlegt öryggi. Á-
stæðan fyrir því hvers vegna lít-
ið er sagt frá þeint í fréttum, er
að þeir láta vita af eldsvoða í
fæðingu og því er oftast hægl að
konta í veg fyrir tjón, séu þeir í
lagi.
SIEMENS UMBOÐ
Þurrkarar
Þvottavélar
Aöventuljós
Útiljósaseríur
Litaöar perur
Þvottavélar
Þurrkarar
Eldavélar
Mikið úrval af úti-
og inniljósum.
Sjón er sögu
ríkari...
Mikiö úrval af
smátækjum
Útvarpsklukkur
Brauöristar
Handþeytarar
MITRE
íþróttavörur
Raflagnavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar
- Heiðartúni 2, Garði -
Yíkurfréttir
28. nóvember 1991
Verslun/Skemmtanalíf
BOÐIÐ
TIL
VEISLU Á
AFMÆLIS-
DAGINN
Um síðustu helgi var haldið
upp á það að liðnir eru tveir ára-
tugir frá því að verslunin Aldan
hóf rekstur sinn við Tjamargötu
í Sandgerði. Allan þennan tíma
hafa sömu eigendur verið að
versluninni, tvenn hjón, Gunn-
þórunn Gunnarsdóttir og Oli B.
Bjarnason og Lydía Egilsdóttir
og Bjöm Maronsson.
Á þessum tveimur áratugum
hafa verið opnuð tvö útibú, þ.e,
bensín og sælgætisbúð við
Strandgötu í Sandgerði og fata-
verslun við Hafnargötu í Kefla-
vík og eru þau enn opin. Versl-
unin Aldan er því nú á þremur
stöðum. Auk þessa byggði
verslunin stærra og meira versl-
unarhúsnæði þar sem að-
alstöðvamar eru við Tjarnargötu
í Sandgerði.
1 tilefni af þessum tímamótum
bauð verslunin upp á 20% afslátt
á öllum fatnaði um síðustu helgi,
auk þess sem viðskiptavinum
var boðið upp á rjómatertu á
sunnudag.
TÓNLIST
í FÉLAGSBÍÓI
lödmobil
fyrir
fullu húsi
■gífurleg stemning
Hljómsveitin Todmobil
skemmti fyrir troðfullu Fé-
lagsbíói sl. föstudagskvöld.
Nemendur Fjölbrautaskóla
Suðurnesja stóðu þá fyrir tón-
leikum í bíóinu þar sem aðal-
númer kvöldsins var þessi vin-
sæla hljómsveit. Aður léku
aðrar minna þekktar sveitir
við góðar undirtektir.
Þetta var sannkölluð tón-
listarveisla og það aðeins
fyrir 899 krónur. Mynda-
smiðurinn Hilmar Bragi tók
meðfylgjandi myndir við þetta
tækifæri. Því er ekki að neita
að þær nytu sín betur í fullum
litum, en gjörið svo vel.
_________13
\Í kurfréttir
28. nóvember 1991
„Grænt númer"
NÝ STAÐA STRAX
ÞJÓNUSTUSÍMINN er tölvuvæddur símsvari í
Reiknistofu bankanna, sem veitir þér upp-
lýsingar um rétta stöðu á tékkareikningi þínum
- og 20 síðustu færslur. Þú þarft ekki lengur að
bíða eftir reikningsyfirliti, heldur getur þú
hringt beint í ÞJONUSTUSÍMANN og fengið
nýjustu stöðuna strax.
Öruggt - einfalt - þægilegt
Þú getur hringt í ÞJÓNUSTUSÍMANN hvaðan
sem er af landinu, jafnt á nóttu sem degi.
„Grænt númer" er 996444 og telst það inn-
anbæjar símtal.
Aðeins þú þekkir leyninúmerið
Viljir þú fá aðgang að ÞJÓNUSTUSÍMANUM
þarftu að velja þér fjögurra stafa leyninúmer.
Hringdu í innlánsdeild Sparisjóðsins í Keflavík
og fáðu leyninúmer.
BEIN LÍNA ALLAN SÓLAR-
HRINGINN AUÐVELDAR
EFTIRLIT MEÐ FJÁRMÁLUM
«»SPRRISJÓÐURIHH
í KEFLAVÍK