Víkurfréttir - 28.11.1991, Page 19
19
íþróttir
Víkurfréttir
14. nóv. 1991
Krebs ték
Pétur í nefið
■ og Grindvíkingar fóru létt meö Tindastól, 115:82
Grindvíkingar létu hörm- dagskvöld ekki hafa áhrif á
ungar sjóslyssins á föstu körfuboltann hjá sér. Eftir að
• Dan Krebs átti frábæran leik gegn UMFT og skoraði 38 stig.
Ljósm.: mad.
hafa vottað aðstandendum
samúð sína, með því að rísa úr
sætum, tóku þeir stjömum prýtt
lið Tindastóls í kennslustund.
UMFG hafði yfirburði í leikn-
um, og hafði náð 17 stiga for-
ystu þegar flautað var til loka
fyrri hálfleiks, 50:33.
Dan Krebs átti stórleik hjá
Grindavík, og skyggði á risann
Pétur Guðmundsson, sem var
nýkominn heim og lék með
Tindastóli. Valur Ingi-
mundarson lét mótlætið fara í
taugarnar á sér og var rekinn út
úr húsinu fyrir að berja á einum
leikmanni UMFG með oln-
boganum.
Grindvíkingar heldu sfnu
striki í síðari hálfleik og bættu
við forskot sitt. í Iokin fengu
varamennimir að spreyta sig, og
náðu þeir að halda forskotinu í
33 stigum. Lokatölumar urðu
115:82.
Dan Krebs skoraði 38 stig í
leiknum. Guðmundur Braga 22,
Marel Guðlaugs 19, RúnarArna
10, Bergur Hinriks 9, Pálmar
Sigurðs 8, Atli Áma 4, Hjálmar
Hallgríms 3, og Ingi Karl Ing-
ólfsson 2.
Karfa/1. d. kvenna:
Góður sigur
UMFG
- gegn íslands-
meisturunum
Grindavíkurstúlkumar halda
áfram að koma á óvart í 1. deild
kvenna í körfuknattleik. Um
helgina lögðu þær sjálfa Is-
landsmeistara Í.S. af velli í
Grindavík með 58 stigum gegn
41. Stúdínur hafa ekki verið
svipur hjá sjón það sem af er
mótsins, en Grindavíkurstúlkur
hafa leikið vel.
Sigur UMFG var öruggur
allan tímann og baráttan góð hjá
liðinu.
Stigahæst varð Anna Dís
Sveinbjömsdóttir með 15 stig,
Stefanía Jónsdóttir skoraði 10,
Svanhildur Káradóttir 9 en aðr-
ar minna.
Skíðafélagið
endurvakið
Mikill áhugi er nú fyrir því að
endurvekja Skíðafélag Suð-
urnesja, en síðasti aðalfundur
þess var haldinn á árinu 1988.
Hafa áhugaaðilar ákveðið að
halda aðalfund kl. 20.30 þ. 5.
desember í Holtaskóla.
Helstu markmiðin með end-
urvakningu félagsins er bygging
nýs skíðaskála í Bláfjöllum fyrir
Suðurnesjamenn. Verða þau mál
rædd á t'undinum.
Njarðvíkingar
sigruðu Val
- þrátt fyrir manneklu
Njarðvíkingar sigruðu Vals-
menn unt helgina í Japis-
deildinni, þrátt fyrir að stórt
skarð væri hoggið í leikmanna
hóp þeirra fyrir leikinn.
Njarðvíkingar sigruðu 88:81.
og voru yfir nær allan tímann.
Valsmenn náðu að vísu að jafna
og komast einu stigi yfir undir
lok leiksins, en Njarðvíkingar
keyrðu þá upp hraðann og
bundu endahnút á leikinn.
UMFN lék án fyrirliða síns,
Hreiðars Hreiðarssonar, sem
lenti í bílslysi sl. föstudag, og
varð að gangast undir uppskurð.
Þá lék Friðrik Ragnarsson ekki
nteð, þar sem hann var putta-
brotinn.
Teitur skoraði mest fyrir
Njarðvík, 19 stig. Kristinn Ein-
ars gerði 16, en gat ekki leikið
allan leikinn, Ronday gerði líka
16, Jóhannes og ísak gerðu 14,
Agnar Olsen gerði 6, allt ntik-
ilvæg stig í lok leiksins, og
Ástþór gerði 3.
létt gegn Skallagrími
- ÍBK sigraöi meö 42 stigum
Hann fór eins og flestir áttu von
á leikur IBK og Skallagríms í
Japisdeildinni á sunnudagskvöldið.
Heimamenn hreinlega rúlluðu yftr
Borgnesingana og gerðu úti um
leikinn í fyrri hálfleik. Staðan í
hálfleik var 65:27, svo augljóst var
að meira en kraftaverk þurfti til að
bjarga ..Sköllunum".
I síðari hálfleik slökuðu heima-
mcnn verulega á pressunni sem þeir
höfðu óspart beitt í leiknum. Fyrir
vikið gekk Skallagrími betur að
skora og geta þeir verið ánægðir
mcð leik sinn í síðari hálfleik. sem
lyktaði 57:53, fyrir Keflavík. Loka-
tölurnar urðu því 122:80.
Yfirburðir ÍBK voru of miklir í
leiknum til að meta eitistaka leik-
menn, en Jonathan Bow skoraði
mest, 36 stig. Jón Kr. skoraði 17,
Sigurðurog Hjörtur 14, Nökkvi 12,
Albert 10. Kristinn 7, Brynjar 6,
Júlíus 4. og Böðvar 2.
Vítanýtingin var 11/15, eða
73.3%.
ÍBK mætir KR og Njarövík næstu daga:
„Tveir alvöru
leikir í röð"
- segir Jón Kr. þjálfari
Keflvíkingar eiga erfíða leiki
í Japisdeildinni í kvöld og á
laugardaginn. í kvöld mæta þeir
KR-ingum á Seltjamamesi, og
á laugardaginn mæta þeir
Njarðvíkingum í Njarðvík, og
verður sá leikur í beinni út-
sendingu hjá Bjarna Fel.
En hvemig leggjast þessir
leikir í Jón Kr. Gíslason, þjálf-
ara ÍBK?
„Þetta verða tveir alvöru
leikir í röð. Við leikum gegn
tveimur efstu liðunum í A-
riðlinum og þau eru jafnframt
síðustu andstæðingamir sem
við mætum í fyrstu umferðinni.
Það má eiginlega segja að núna
loksins eigum við erfiða leiki
fyrir höndum. Grindavíkur-
leikurinn er í raun sá eini sem
eitthvað hefur reynt á það sem
af er, en var þó alltaf í öruggum
höndum.“
-Nú leikur John Baer ekki
með KR, en þeir hafa fengið
annan liðstyrk-
„Já það er rétt. Olafur Gott-
skálksson er farinn að leika með
þeim. svo ætli það megi ekki
segja að úrslit leiksins í kvöld
ráðist á því hvemig Kefl-
víkingarnir í KR standa sig.“
-Hvaö með leikinn gegn
Njarðvík?
„Það verður örugglega erf-
iður leikur, en annars erum við
ekkert farnir að hugsa um hann
ennþá. Við tökum einn leik í
einu og snúunt okkur ekkert að
Njarðvíkurleiknum fyrr en við
erum búnir með leikinn í kvöld.
Við stefnuin þó að sjálfsögðu að
því að halda okkar striki og
okkar fulla húsi stiga.“ sagði
Jón Kr.
Karfa/1.deild kvenna:
ÍBK heldur sínu striki
Kellavíkurstúlkumar halda
sínu striki í fyrstu deildinni í
körfunni, ekkert síður en karl-
arnir. Þær unnu einnig sinn sjö-
unda sigur í röð á sunnudaginn,
þegar þær lögðu ÍR. 75:65, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
38:26.
IBK náði öruggri forystu
þegar í byrjun, og komust
stelpumar í 21:6. Svipuð staða
kom upp í síðari hálfleik, en þá
komst ÍBK í 62:43.
Það voru þrjár stúlkur sem
sáu að mestu um að skora stigin
fyrir ÍBK. Olga Færseth gerði
24, Anna María Sveins 20 og
Björg Hafsteins 16. Anna María
virðist óðum vera að ná sér af
hnémeiðslunum. Restina af
stigunum skoruðu þær Krisín
Blöndal 8, Guðlaug Sveins 5 og
Elínborg Herberts 2.