Víkurfréttir - 28.11.1991, Side 24
r
,s'
rce^
iiU’
,rner
996444
BEIIM LINA
SPBRISJÓÐURIHH
_______________)
Húshliðin sem snýr að Suðurgötu
Gamli Sparisióöurinn aö glæsilegu sérhúsnæöi fyrir aldraöa .
Ólafur tók fyrstu skóflustunguna
Ólafur Björnsson, formaður
Byggingafélags eldri borgai'a á
Suðurnesjum tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýju sérhúsnæði
fyrir aldraða sl. laugardag.
Húsið er byggt í kringum gamla
Sparisjóðshúsið við Suðurgötu
samkvæmt teikningu Páls V.
Bjarnasonar, sem einnig teikn-
aði Hombjargið en það var
fyrsta sérhannaða húsnæðið á
Suðurnesjum fyrir aldraða reist
af einkaaðilum.
Húsanes hf. mun byggja hús-
ið en fyrirtækið stóð að bygg-
ingu Hombjargs sem kunnugt
er. Framkvæmdir hófust í vik-
unni. í húsinu verða 24 íbúðir
ásamt 64 m2 sameign. Búnaður
verður allur sá sami og í Horn-
bjargi eins og neyðarhnappar,
gerfihnattasjónvarp, dyrasími
og fleira. Bílageymsla verður
þó ekki undir húsinu á Suð-
urgötunni.
Þegar hafa all nokkrir aðilar
ákveðið að kaupa í húsinu á
Suðurgötunni en sala íbúða er
hafin hjá Eignamiðlun Suð-
umesja.
Breytingar hafa orðið á nafni
Bygginasamvinnufélagsins. Nú
heitir félagið Byggingafélag
eldri borgara á Suðurnesjum,
BES. Að sögn Ólafs Björns-
sonar er það gert til að losna við
afskipti Húsnæðisstofnunar.
Sparisjóðurinn í Keflavík
mun aðstoða við fjármögnun í-
búðanna með sama hætti og í
Hornbjargi.
„Það er almenn ánægja með
allt í Hornbjargi. Félagslíf er
byrjað og fólk kemur saman til
að spila og föndra og hér líður
fólki vel. Aðilar sem þekkja til
svona bygginga annars staðar
sem skoðað hafa Hombjarg
segja þetta með því besta sem
þeir hafa séð“ sagði Ólafur
Björnsson.
Stjórn BES ásamt fulltrúum Sparisjóðsins og Húsaness.
Ljósm.: pket.
Kirkjuvogskirkja 130 ára:
Hátíð haldin í Höfnum
Þess verður minnst á sunnu-
dag. þann 1. desember að 26.
nóvember sl. voru liðin 130 ár
frá vígslu Kirkjuvogskirkju í
Höfnum. Klukkan 14 hefst há-
tíðarguðsþjónusta í kirkjunni þar
sem biskup Islands herra Ólafur
Skúlason mun prédika og fyrir
altari þjóna prófasturinn sr.
Bragi Friðriksson, fynum sókn-
aiprestur séra Örn Bárður Jóns-
son og núverandi sóknarprestur
séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
Ekkja séra Jóns Áma Sigurðs-
sonar fyrrum sóknarprests. Jóna
Sigurjónsdóttir verður viðstödd
athöfnina.
Tónlist verður fjölbreytt, svo
og söngur, sem m.a. kór heima-
inanna leiðir. Anna Vilhjálms
mun syngja einsöng. Ung Hafn-
amær Lilja Dögg Bjarnadóttir
mun leika einleik á fiðlu og Inga
Björk Runólfsdóttir úr Grinda-
vík leikur einleik á trompet.
Organisti verður Svanhvít Hall-
grímsdóttir.
Sunnudagaskólaböm og
fermingarböm hetja athöfnina
nieð því að tendra aöventuljós í
kirkjunni. Að messu lokinni
verður býður sóknamefndin upp
á kaffisamsæti í Samkomu-
húsinu, þar verður saga kirkj-
unnar rakin, ávörp verða flutt
o.n.
Miklar endurbætur hafa farið
fram á kirkjunni að undanfömu
og hún málið úti sem inni. Voru
það brottfluttir Hafnamenn sem
stóðu fyrir málningarvinnunni
utan á kirkjunni.
í
m
Fyrsta flokks veitingasalur,
ekki bara fyrir hótelgesti
- heldur einnig fyrir þig.
FIHG
Ttrestone
vetrar-
dekk
Mý og sóluð
Qreiðsluskilmálar
BILAKRINGLAN
Grófin 7 og 8
Símar 14690 - 14692
PASSA-
MYNDIR í
ÖLL
SKÍRTEINI
TILBÚNAR
STRAX!
_ LD)zAALkiLPCoj_______
I.ͻMiiMiilnslota |
HAFNARGÖTU 52 KEFLAVÍK SÍMI 14290
GERIÐ
GÓÐ
KAUPÁ
TILBOÐS-
TORGINU
mm
iswMlmui
Kjarabót til félaga VSFK.
5-31% afsláttur
hjá 16
fyrirtækjum
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavfkur og nágrennis hefur
náð samningum við 16 þjón-
ustuaðila og verslanir um afslátt
til handa félagsmönnum VSFK.
Um er að ræða afslátt frá 5 og upp
f 31% í einstökum tilfellum. Al-
gengast er að veittur sé gegn
framvísun félagsskírteinis 10-
15% afsláttur í viðkomandi fyr-
irtækjum.
Jafnframt hefur félagið nú
beint þeim tilmælum til fé-
lagsmanna sinna að versla fremur
við þá aðila sem veita afslátt, en
nöfn þeirra koma fram á bakhlið
félagsskírteinisins sem nú hefur
verið sent út og gildir til 31. des-
ember 1992. Að sögn Guðrúnar
Ólafsdóttur, varaformanns VSFK
er hér um góða kjarabót að ræða
sem félagsmenn hafa tekið vel í.
Tökum
að okkur
VEISLUR og
mannfagnaði.
Möfum sal
fyrir allt að
80 manns.
LANG jsX.
Sími14777