Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.12.2015, Page 15
20.12. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Mild og sterk skata Tindabikkja Skötustappa tvær tegundir ( vestfirsk og hvítlauks stappa) Saltfiskur Plokkfiskur Síldaréttir tvær tegundir Að sjálfsögðu verða á boðstólum sjóðandi heitir hamsar og hnoðmör, hangiflot, kartöflur, rófur, smjör og rúgbrauð. EFTIRRÉTTUR Jólagrautur með rúsínum og kanilsykri Verð 3.700 kr.* pr. mann *Fyrirtæki sem eru í hádegisáskrift hjá okkur, verð 3.200 kr. verður að panta fyrirfram. MATSEÐILL veislulist.is Vinsamlega pantið tímalega í síma 555 1810 Skötuveisla 23.des Í HÁDEGINU Á ÞORLÁKSMESSU Húsið opnar kl 11:30 Skötuhlaðborð í hádeginu á Þorláksmessu í veislusal okkar. Boðið verður upp á skötu fyrir amlóða upp í fullsterka. Á árunum 2009 til 2013 mældist hag- vöxtur á landinu mestur á Vestur- landi eða um 13%. Fólki í héraðinu fækkaði reyndar um tæplega 1% á þessu tímabili og laun hækkuðu allt að 5% minna en á landsvísu. En samt er héraðið í sókn, svo sem í stóriðju og veiturekstri og opinberri þjónustu. Einnig í skólastarfi og heilbrigðisstarfsemi. Hlutdeild stóriðju og veitna er rösklega 30% af framleiðslu á Vest- urlandi. Hlutdeildin jókst um nokk- ur prósent á árunum 2009 til 2013. Sjávarútvegur stóð árið 2913 undir 12% af framleiðslu á Vesturlandi sem er heldur minna en í öðrum landshlutum og þó eru á svæðinu stórar verstöðvar, svo sem á Snæ- fellsnesi. Í samantekt Byggðastofnunar sem ber yfirskriftina Hagvöxtur landshluta 2009-2013 segir að hlutur höfuðborgarsvæðisins í landsfram- leiðslu sé um 70% og hafi aukist 5% á því tímabili sem er undir í könn- uninni. Fólki á þessu svæði er líka að fjölga og launin að hækka. Mest dróst framleiðsla saman á Suðurnesjum og Vestfjörðum á áð- urnefndu árabili eða um 11-12% Fólki vestra fækkaði um 5% á þessu tímabili, og helst það í hendur við samdrátt í sjávarútvegi – þótt ýmis merki séu um að taflið þar sé að snú- ast, meðal annars í tengslum við fiskeldi á svæðinu. Í Reykjavík og nærliggjandi svæðum er það ferða- þjónusta í breiðustu merkingu þess orðs sem stendur undir meiri hag- vexti – eins og víðar á landinu. Sjávarútvegur er enn stærsta at- vinnugreinin á Vestfjörðum og Aust- fjörðum, en mest munar um stóriðju í framleiðslu á Vesturlandi og á Austurlandi. Landbúnaður er stór hluti af framleiðslu á Suðurlandi og á Norðurlandi vestra, en annars staðar skiptir þessi atvinnugrein minna máli, segir í skýrslunni um landsbyggðina. VESTURLAND Gömlu húsin eru áberandi í bæjarmyndinni í Stykkishólmi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Góður hagvöxtur Í síðustu viku útskrifuðust alls 13 nemendur úr námi í gæðastjórnun frá Fisktækniskóla Íslands í Grundavík. Starfsemi skólans hófst fyrir fimm árum og fjöldi fólks hef- ur þar aflað sér haldgóðrar mennt- unar í því hvernig vinna skal gæða- fisk. Nú er svo komið að skólinn býður upp á sérhæfðara nám og meiri áhersla er lögð á gæðamál hverskonar. Þá er unnið með tækni fyrirtækjum eins og Marel að námsbrautum og fiskeldisnám verður í samstarfi við Hólaskóla í Hjaltadal. „Matvælavinnsla í dag er nú öll unnin samkvæmt gæðakerfum og stöðlum Mér þykir ánægjulegt að skynja frá nemendum einlægan áhuga fyrir gæðum í fiskiðnaði og sannfæringu um nauðsyn vandaðra vinnubragða,“ sagði Nanna Bára Maríasdóttir aðstoðarskólameistari í samtali við Morgunblaðið. „Markmiðið með þessu námi er að innleiða góða starfshætti á vinnustaði þannig að fólk þekki gæðakerfin og geti stýrt vinnslu samkvæmt þeim,“ segir Nanna Bára ennfremur. Vantar fólk með menntun Nemendurnir í gæðastjórninni sem útskrifaðir voru frá Fisktækniskóla Íslands á dögunum hafa, að sögn Nönnu Báru, mismunandi bak- grunn. Sumir hafa tekið tveggja ára fisktækninám en aðrir til dæm- is farið í raunfærnimat. Hafa því aðeins þurft að bæta við sig námi í völdum greinum. Í gæðastjórn eru svo tekin fyrir fög eins og stjórn- un, staðlamál og gæðahandbækur og margt fleira. Námið er kennt í samstarfi við matvælaskóla Sýni. „Í sjávarútveginum vantar fólk með menntun í gæðastjórnun og því er þetta fólk sem við vorum að brautskrá núna með góð verkfæri til frama í starfi,“ segir Nanna Bára og bætir við að nemendur hafi afar ólíkan bakgrunn. Þeir komi víða af landinu og úr veröld- inni. Sumir hafi starfað lengi við sjávarútveg en aðrir séu að hasla sér völl í faginu. Allt sé fólkið nú komið með sterk spil á hendi og bjóðist margvísleg áhugaverð störf í sjávarútvegi. GRINDAVÍK Fá verkfæri til frama í starfi FISKUR ER UNDIRSTAÐAN Á ÍSLANDI. GÆÐIN ÞURFA LÍKA AÐ VERA VÍS, EINS OG SJÁVARÚTVEGSNEMAR HAFA NÚ LÆRT. Frá útskrift. Gæðastjórnunarfólkið er nú komið með sterk spil á hendi og bjóðast áhugaverð störf í sjávarútvegi. Í dag er íslenskur sjávarútvegur orðinn háþróuð atvinnugrein, þar sem mikið þarf að leggja upp úr gæðum til að mæta ýtrustu kröfum markaðarins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í fyrsta sinn í 11 ár er verið að reisa nýtt íbúðar- húsnæði á Kirkjubæjarklaustri, sem þykir til vitnis um góðan gang í byggðarlaginu. Íbúum Skaft- árhrepps á þessu ári hefur fjölgað úr 460 í 465. Skaftárhreppur Of fáir læknar eru við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og það skapar vanda, segir á vef bb. Fjórir fastráðnir læknar eru á Ísafirði nú, en ættu að vera 9 auk sérnámslæknis. Vegna þessa hefur læknisþjónusta t.d. á Flateyri lagst af. Vestfirðir „Þörf fyrir fólk með starfs- menntun í sjávarútvegi er mik- il,“ segir Nanna Bára Mar- íusdóttir. „Fyrirtækin leita að fólki sem aflað hefur sér menntunar í greininni, en einnig gera kaupendur erlendis kröfu um slíkt, sem aftur helst í hendur við þær kröfur og staðla sem starfað er samkvæmt.“ Í vetur eru um 80 nem- endur í Fiskitækniskóla Ís- lands. Um 60 af þeim eru í al- mennu grunnnámi, sem spannar tvo vetur. Að því loknu, til dæmis eftir raun- færnimat, opnast fólki svo ýmsir möguleikar til frekara náms á þremur sérsviðum skólans, það er í fiskeldi, gæðamálum og Mareltækni, þar sem notkun voga, flokkara og véla frá Marel er í öndvegi. „Við störfum náið með fyr- irtækjum sem eru fús að taka við okkar fólki sem kemur í kynnisferðir til þeirra og er áhugasamt,“ segir Nanna Bára. Nanna Bára Maríasdóttir Krafa kaupenda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.