Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 02.09.1999, Page 14

Víkurfréttir - 02.09.1999, Page 14
REYKJANESBÆR Útivistartími barna Fjölskyldu og félagsmálastofnun Reykjanesbæjar vekur athygli foreldra á að frá 1. september til 7. maí er útivistartími barna sem hér segir: Börn, 12 ára og yngri mega ekki vara á almannafæri eftir klukkan 20 nema í fylgd með fullorðnum. Börn, sem eru á aldrinum 13 -16 ár skulu að sama skapi ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-. íþrótta eða æskulýðssamkomu. Félagsmálastjóri hROSKAHJÁLP A SUÐURNESJUM H/ .............- Forstöðumaður óskast Þroskahjálp á Suðurnesjum í Reykjanesbæ auglýsir eftir forstöðumanni í Leikfangasafn. Óskað er eftir þroskaþjálfa, iðjuþjál- fa, leikskólakennara eða starfsman- ni með aðra uppeldisfræðilega menntun. Starfið er laust nú þegar og er umsóknarfresturtil 15. september n.k. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu félagsins, Suðurvöllum 9, Reykjanesbæ, sími 421 5331 Atvinna Óskum eftir að ráða starfsmann til almennra hreinsunarstarfa. Upplýsingar í síma 421 4143 og 421 2638 á kvöldin Atvinna Framtíðarstörf Bakkavör hf. er leiðandi fyrirtæki á matvælamarkaði, sem sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á ferskum, létt rotvörðum og kældum sjávarafurðum. Eftirfarandi framtíðarstörf eru til boða hjá fyrirtækinu: 1. Framleiðslustörf: Almenn störf við framleiðslu fyrirtækisins. Óskað er eftir einstaklingum með reynslu við framleiðslu á matvælum. 2. Akstur: Almennur akstur með vörur fyrirtækisins. Einvörðungu einstaklingar með meirapróf koma til greina. Bakkavör hf. er með starfsemi á Islandi, í Svíþjóð, í Frakklandi og á Bretlandi. Starfsmenn fyrirtækisins hljóta þjálfun samkvæmt ISO - 9000 vottuðu gæðakerfi félagsins. Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu fyrirtækisins að Brekkustíg 22, 260 Reykjanesbæ. Bakkavör Siglingafræði Námskeið í siglingafræði fyrir 30 tonna próf hefst í Keflavík, miðvikudaginn 8. september. Upplýsingar í sfma 421 1609 Starfsmannafélag Suðurnesjabyggða Skrifstofa Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða er flutt að Hafnargötu 15, efri hæð. Skrifstofan er opin á þriðjudögum og fimm- tudögum frá 13-17. Sími 421 2390 Stjórnin Útivistarátakið hefst á busa- balli FS í kvöld Á hverju hausti fer af stað samvinnuverkefni lögreglu, útideildar, Fjölskyldu- og fé- lagsþjónustu Reykjanesbæjar, verkefnið Reykjanesbær á réttu róii og Foreldrafélag grunnskólanna (foreldrarölt) j þar sem reynt er eftir megni að aðstoða foreldra við að fara að lögum um útivistar- tíma bama og unglinga. „Það var ákveðið að Reykjanesbær myndi ekki setja sérreglur um útivist barna og ungmenna, eins og mörg bæjarfélög hafa gert hér á landi, heldur aðeins framfylgja þeim lögum sem í gildi eru“ sagði Stefán Bjarkason tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar. „Utivistar- tímatakmörk barna og ung- linga hefur oft verið ásteyt- ingarsteinn hjá fjölskyldum og flestir foreldrar fengið að heyra að allir fái að vera úti, nerna börnin þeirra. Þessu átaki er ætlað að hjálpa for- eldrum að segja að hr. Allir sé kominn inn, löngu kominn inn. Átakið hefst sem sagt á busaballi Fjölbrautarskóla Suðumesja og verður athvarf- inu komið fyrir í íþróttavallar- húsinu við Vallarbraut í Njarðvík. Lúsin mætt á fyrsta degi Á hverju hausti verður vart lúsar í einhverjum grunnskól- anna á Suðurnesjum og að sögn Þórunnar Benediktsdótt- ur, hjúkrunarforstjóri Fleil- brigðisstofnunar Suðumesja, sagði í viðtali við VF að nú þegar hefðu upplýsingar borist H.S urn lúsatilfelli í Reykjanesbæ. „Svo virðist sem lúsin sé fyrr á ferðinni en vanalega og mikilvægt að for- eldrar og forráðamenn bregð- ist rétt við. Því miður eru ekki komnir skólahjúkrunarfræð- | ingar í alla skóla en sá vandi leystist fyrir skömmu og verða komnir hjúkrunarfræð- ; ingar í alla skóla um miðja næstu viku. Vil ég hvetja for- eldra og forráðamenn bama til að vera vakandi og skoða böm sín reglulega." 14 Víkurfiéttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.