Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 23.09.2016, Blaðsíða 32
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. VERTU MEMM! EDINBORG f rá 7.999 kr.* okt . - mars BRISTOL f rá 7.999 kr.* okt . - mars STOKKHÓLMUR f rá 7.999 kr.* nóv. - mars AMSTERDAM f rá 7.999 kr.* nóv. - mars KÖBEN f rá 7.999 kr.* nóv. - mars LONDON f rá 7.999 kr.* des . - mars Abenu Darko hefur lengi dreymt um að kynna mat- armenningu Gana fyrir Íslendingum. Þegar íslenskt forlag vildi ekki gefa kokka- bókina hennar út ákvað hún að gera það sjálf. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Ég var nýbúin að klára nám í tölv- unarfræði og var komin í starfsnám þegar mig langaði allt í einu til að gera eitthvað alveg nýtt. Ég fór inn á skrifstofu í Bekwai sem sér um skiptiprógram fyrir ungt fólk og sagðist vilja fara bara eitthvert að vinna sem sjálfboðaliði. Og ég var send hingað án þess að hafa hug- mynd um hvert ég væri að fara.“ Síðan eru liðin ellefu ár og Abena Darko hefur ekki farið aftur til Gana síðan. Hún fékk vinnu sem matráð- ur á leikskóla, varð ástfangin af manni frá Gana og ákvað að setjast hér að. Þegar hún skildi við mann- inn sinn fyrir nokkrum árum flutti móðir hennar til Íslands til að létta undir með Abenu sem á þrjú börn. Yngri systir hennar fluttist svo til þeirra í fyrra þegar hún hóf hér nám í kennslufræðum. Safnar fyrir hárgreiðslustofu í Gana „Ég hef alltaf elskað að elda og var mjög glöð þegar ég fékk vinnu sem matráður á leikskólanum Ægis- borg,“ segir Abena sem vinnur hjá Íslandspósti í dag. „Á meðan ég eld- aði og bakaði fyrir börnin leyfði ég mér að dagdreyma um framtíðina og hvernig það væri að reka minn eigin veitingastað. Ég sá hann alltaf fyrir mér í Gana en ég er hætt að hugsa þannig, nú langar mig að vera áfram á Íslandi. Ég hugsa samt enn til Gana og langar að láta gott af mér leiða þar. „Ég veit að mikið af ungum konum með menntun sem fá ekki vinnu og nú er ég búin að ákveða að opna þar hárgreiðslu- og saumastofu þar sem þessar ungu stelpur geta unnið,“ segir Abena sem er nú þegar komin með rými undir reksturinn í húsi sem er í eigu fjölskyldu sinnar í Bekwai. Hún er með stuðning fjölskyldunnar til að vinna að verkefninu en hún leit- ar ýmissa leiða til að fjármagna drauminn, til dæmis með því að prenta sína eigin kokkabók og láta allan ágóða af sölu hennar renna í hárgreiðslu-og saumastofuna. „Ég fór í íslenskt forlag með hug- mynd um að kynna afríska mat- argerð fyrir Íslendingum en þeir sögðu ekki vera markað fyrir það. Svo ég ákvað að gera bókina bara sjálf,“ segir Abena og nær í lít- inn stafla af bókum sem kom úr prentun fyrir mánuði. „Ég hef ver- ið að bjóða fólki heim sem vill prófa mat frá Gana og nokkrir hafa keypt eintök. Svo er hægt að kaupa hana af mér á facebook. Þetta eru fyrstu eintök en í næstu prentun langar mig að bæta myndirnar. Maður lær- ir á leiðinni,“ segir hún og brosir. Djúpsteiktur banani í uppáhaldi „Ég hef lengi haft hug á því að gera litla kokkabók en vöruúrvalið stoppaði mig því sumir hlutir sem eru algjörlega nauðsynlegir í afríska matargerð fengust ekki hér. En svo opnaði ung kona frá Gana verslun með afrískar vörur í Breiðholti og þá ákvað ég að slá til því nú eru til hér hlutir eins og fufu sem er borð- að á hverjum einasta degi í Gana,“ segir Abena og dregur fufu-mjöl út úr einum eldhússkápanna. „Úr þessu mjöli gerum við deig sem lítur dálítið út eins og kartöfl- umús og þetta borðum við með öll- um mat. Mjölið sem er notað í fufu er úr jukkurót (cassava), maísmjöli eða semolamjöli en oftast er það úr plantain,“ segir Abena og bendir á risastóra græna banana sem liggja á eldhúsborðinu. „Þetta er ávöxtur af bananaætt en bragðast meira eins og rótargrænmeti. Við notum plantain mikið í Gana og einn af mínum uppáhaldsréttum er djúp- steikt plantain með sterkri chili- -sósu.“ Fufu eins og kartöflur „Allir borða fufu alla daga. Fufu er uppistaðan í matarmenningu Ghana og er í alvöru borðað á hverj- um einasta degi. Við setjum það stundum ofan á kássur eða í súpur en oftast er það á sérstökum diski til hliðar við aðalréttinn. Svo býrðu til litlar bollur með höndunum úr deiginu og dýfir í matinn til að fá bragðið í fufu-ið. Eldri kynslóðin vill fá þetta með öllum mat en yngra fólkið vill prófa nýja hluti,“ segir Abena og hlær. „Þetta er dá- lítið eins og með kartöflurnar á Ís- landi, sumir vilja þær með öllum mat.“ Áhugasamir um kokkabók og matargerð Abenu geta kíkt á face- book-síðu hennar; Good food for a good cause. 32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 23. september 2016 Allir borða fufu alla daga Abena Darko segir Gana-samfélagið á Íslandi vera nokkuð stórt og mjög samheldið. Stærsti hluti þeirra hittist reglulega og borði saman. „Mér finnst aðalmunurinn á matnum hér og í Gana vera kryddin því við notum miklu fleiri og sterkari krydd. Og hér er allt úrbeinað en í Gana borðum við bæði og notum miklu meira af beinum og skinni.“ Myndir | Rut Abena með móður sinni og systur. „Ég hef lengi haft hug á því að gera litla kokkabók en vöruúrvalið stoppaði mig því sumir hlutir sem eru al- gjörlega nauðsynlegir í afríska matargerð fengust ekki hér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.