Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 30.12.2016, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. desember 2016 Erla Sigurlaug Sigurðardóttir ritstjorn@frettatiminn Margrét Örnólfsdótt-ir er einn reyndasti handritshöfundur leikins sjónvarps-efnis í íslensku sjón- varpi. „Við erum nokkrar konur sem erum að skrifa fyrir sjónvarp og ég veit að það eru fleiri sem vonandi hafa áhuga á að bætast í hópinn. Núna eru allir að spá í þetta, að það sé nauðsynlegt að hafa konur með í skrifunum enda hlutur kvenna í kvikmyndagerð verið mikið í um- ræðunni undanfarin ár. Það er engin ein skýring á því hvers vegna færri konur eru í þessu. Í raun er eiginlega óskiljanlegt að nokkur skuli halda út í þessu fagi, vinnu- tíminn er óreglulegur og maður þarf alltaf að hafa nokkur verk- efni í gangi á sama tíma til að þetta gangi upp og það koma langir bið- tímar. Það tekur rosalega langan tíma, orku og úthald að koma einu verk efni í gegnum allt ferlið, skrifin, þróunina, framleiðsluna, og þar til verkið er tilbúið til sýningar. Ég, eins og allir höfundar, hef skrifað mörg handrit sem fara aldrei í fram- leiðslu af einni eða annarri ástæðu. Maður verður þess vegna mjög glað- ur og eiginlega svolítið hissa þegar þetta kemst loksins í sýningu. Eins og núna þegar Fangar eru loks að koma fyrir sjónir almennings eftir margra ára vinnu.“ Kynjaskekkjan að jafnast Margrét segir mikla meðvitund í kvikmyndageiranum um hlut kvenna í handritagerð og að það sé nánast talið ótækt að setja saman kvenlaust teymi í ljósi umræðunn- ar undanfarið. Það sé kominn tími á að þessi kynjaskekkja jafnist. Í Svíþjóð hafa reglur um jafnt kynja- hlutfall í úthlutunum styrkja ver- ið teknar í gagnið og sá ótti að það yrði mögulega á kostnað gæðanna reyndist ástæðulaus því sænskar kvikmyndir unnu til fleiri verð- launa árið eftir að reglan kom til. „Kynjakvóti er í raun örþrifa- ráð og ég er fylgjandi svoleiðis að- gerðum á meðan þær fela ekki í sér eitthvert gífurlegt misrétti. Ég vil að fólk sé metið að verðleikum og verkefni út frá gæðum en ef það er rétt að konur eigi erfiðar uppdrátt- ar í kerfinu þá þarf að laga kerfið. Ég trúi ekki að umsóknir frá kon- um séu verri eða betri en frá körl- um, þær eru bara alls konar hjá báðum kynjum. Í nýju samkomu- lagi um kvikmyndagerð, milli kvik- myndageirans og ríkisins, er kveðið á um sérstakt átaksverkefni til að rétta hlut kvenna í kvikmyndagerð. „Ég veit ekki enn hvað þetta felur nákvæmlega í sér en það verður Framtíðin er í sjónvarpinu Margrét Örnólfsdóttir er listakona sem þrífst á sköpun og fá Íslendingar meðal annars að njóta hæfileika hennar á næstunni í sjónvarpsseríunni Föngum og nýrri seríu af Ófærð. Margrét ræðir meðal annars um vinsældir og möguleika leikins íslensks sjónvarpsefnis á heimsvísu, hvernig það er að vera kona í karllægum kvikmyndageiranum og um staðalmyndir kvenna í íslenskum kvikmyndum sem hún, ásamt fleirum, vinnur að því að breyta. spennandi að sjá hvort það hefur áhrif til hins betra. Reyndar stefn- ir í að 2017 verði mikið kvennaár. Það eru að koma út þrjár leiknar bíómyndir eftir konur, Ísold Ugga- dóttur, Kristínu Jóhannesar og Ásu Hjörleifsdóttur.“ Hrist upp í föstum ímyndum Þótt það sé mikið gleðiefni að kon- ur fái meira pláss í iðnaðinum vill Margrét ekki meina að kynferði skipti það miklu máli í vel heppn- aðri framleiðslu. „Það skiptir mig akkúrat ná- kvæmlega engu máli hvers kyns ég er, það bara vill svo til að ég er kona. Ég er nú kannski hætt að pirra mig á því núna en á tímabili var ég ofboðs- lega viðkvæm fyrir því að það væri hringt í mig og sagt að það vant- aði konu í einhver verkefni. Ég var pirruð yfir því að það þyrfti að taka það fram og að það væri eitthvað sérstakt atriði að vera kona. Hvert einasta verkefni þarf kemistríu sem gengur upp og hún hefur ekk- ert með kynferði að gera og í raun heldur ekkert með hversu hæfileik- aríkt fólk er, stundum kveikir fólk rétt á hlutunum og það verður til skapandi flæði í hópnum, stundum ekki. Það má samt alveg pota aðeins í karlkyns kollega mína fyrir hversu gjarnir þeir eru á að skapa einsleitar kvenpersónur. Ég er sannfærð um að þetta muni smám saman lagast með fleiri konum í höfundahópn- um. En það sem mig dreymir um er að við komumst á þann stað að við hættum að velta okkur svona mik- ið upp úr þessu, sem gerist. Konur koma þar inn sem ákveðinn and- blær og hrista upp í föstum ímynd- um. Mig sem kvenhöfund langar samt ekki einungis að hugsa um konur þegar ég skrifa, ég hef alveg jafn mikinn áhuga á að skrifa um miðaldra karlmenn og á að hafa leyfi til þess, mér finnst það meira að segja mjög spennandi efni.“ Staðalmyndir kvenna Margrét segir að allir sem stundi handritaskrif þurfi í ljósi nútíma- samfélags að hugsa vel um hvern- ig kvenpersónur séu skapaðar. Það sé því miður ákveðin tilhneiging að skrifa konur á svipaðan hátt í gegnum tíðina og því hafi viðhald- ist ákveðnar staðalmyndir á kven- persónum sem eigi sér litla stoð í raunveruleikanum. „Ég velti því oft fyrir mér hvers vegna höfundar sækja fyrirmyndir ekki í meira mæli í raunveruleik- ann og nærumhverfi en virðast oft frekar grípa næstu erkikventýpu úr kvikmyndasögunni. Algeng kven- persóna er til dæmis „eiginkonan“. Á Íslandi er það konsept varla til, getur kannski gengið í einhverri annarri menningu en er bara hlægi- legt í okkar samhengi. Kona er fyrst og fremst eitthvað annað áður en hún er en eiginkona einhvers. Við sem höfundar berum ábyrgð á því að grípa ekki alltaf fyrstu einföldu lausnina sem viðheldur einhverju inngrónu og gamaldags. En svo má ekki gleyma því að við erum að skrifa skáldskap og okkur leyfist ýmislegt, að ýkja og bjaga og útví- kka veruleikann, ábyrgð okkar ligg- ur fyrst og síðast í því að skapa eitt- hvað nógu áhrifamikið og vera trú einhverri eigin sannfæringu sem þarf ekki alltaf að vera pólitískt rétt eða viðurkennd.“ Kynlausir karakterar „Þegar ég skrifa hugsa ég eiginlega ekki um kyn karaktera. Ég held að kynferði skipti mig ótrúlega litlu máli yfir höfuð. Það er frekar þessi þörf fyrir að segja sögur og búa eitt- hvað til. Eitt sem ég hef prófað að gera oftar en einu sinni er að skipta um kyn á persónu sem ég skrifa. Ég held maður eigi ekki að skrifa karakter með fyrirfram ákveðnu kyni, nema það sé eitthvað sem kalli alveg sérstaklega á það. Mér finnst mikilvægara að skapa persónuna út frá því hvaða hlutverki hún gegnir í sögunni sem maður er að segja. Það þarf að gefa persónunni einhver „Kynjakvóti er í raun örþrifaráð og ég er fylgj- andi svoleiðis aðgerðum á meðan þær fela ekki í sér eitthvert gífurlegt misrétti. Ég vil að fólk sé metið að verðleikum og verkefni út frá gæðum en ef það er rétt að konur eigi erfiðar uppdráttar í kerf- inu þá þarf að laga kerfið.“ Myndir | Hari HEILSUTÍMINN Þann 7. janúar Heilsutíminn auglysingar@frettatiminn.is 531 3300

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.