Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Side 17

Jólablað verkakvenna - 01.12.1931, Side 17
þær síðan koma aftur til vinnu fá þær hálftíma frí tvisvar á dag, auk venjulegs matmálstíma, til þess að leggja barnið á brjóst. Vinnutíminn er þó aðeins 6—7 tímar. Þar er einkunnarorðið: „Ekkert barn í heiminn nema því sé tekið með gleði“. Iiin óstjórnlega neyð og versnandi horfur verkalýðsins í auðvaldslöndunum hefir þjappað honum betur saman, og í hessari sívaxandi baráttu hans á A. S. V. einmitt erindi. Frá því A. S. V. hóf starf sitt 1921 hefir það útbýtt um 100 mil- jónum króna og telur nú um 20 miljónir meðlima. Verkakonur! Hvort heldrur þið vinnið við heimilisstörf eða utan heimilis, menntakonur og allar þið, sem samúð hafið með verklýðsbaráttunni, hvort beldur þið eruð í söfnuðum eða utan safnaða, hverja pólitíska skoðun sem þið hafið, allar eigið þið heima í A. S. V. Al- staðar þar sem auðvaldið ræður, þar er líka neyð. Verkalýðnum finnst yfirleitt auðmýkjandi að þiggja gjafir af hinum borgaralegu góðgerðafélögum. A. S. V. er samúðar- og samhjálparstarfsemi verkalýðsins sjálfs. Það er því aldrei auðmýkjandi að þiggja styrki A. S. V., því þeir eru aðeins einn liður í stétta- baráttunni. Leggið allar lítinn skerf. Ger- ist meðlimir Alþjóðasamhjálpar verka- lýðsins. Ingibjörg Steinsdóttir. Eflíð samtðkin! Ég hefi aldrei fyr tekið mér penna í hönd, vegna þess að ég hefi ekki fundið neina skyldu hjá mér til þess að tala máli stéttar minnar. Ég er ein þeirra verkakvenna, sem hefi flotið með straumnum án þess að aðhafast nokkuð það sem gæti orðið stéttinni til bóta eða sigurs. Við verkakonurnar erum alt of Stúlkur að bursta tennur i Rússlandi. lítið samtaka í baráttunni fyrir bættum kjörum okkar og það var eiginlega fyrst s. 1. sumar, sem ég fann greinilega til þess hvað samtök verkalýðsins eru hon- um nauðsynleg og að ég opnaði augun fyrir minni eigin dyggð og margra ann- ara kvenna, sem vinna án þess að fylkja sér um réttmætar kröfur á hendur vinnu- kaupendum. Ég vann s. 1. sumar við síldarsöltun á Siglufirði og var svo heppin, eða það á- leit ég í fyrstu, að fá pláss hjá „Söltun- arfélagi verkalýðsins á Akureyri“. Ég lærði mikið og í fyrstu var margt mér nærri því óskiljanlegt; t. d. vegna hvers stjórn Síldareinkasölunnar ekki raðaði skipunum niður á söltunarstöðvarnar, 15

x

Jólablað verkakvenna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólablað verkakvenna
https://timarit.is/publication/1224

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.