Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Side 10

Kvennalistinn í Kópavogi - 01.05.1990, Side 10
Á FERÐ UM BÆINN Nokkrar Kvennalistakonur óku um bæinn sinn einn kaldan dag fyrir skömmu. Það var annar laugardagur í sumri og gekk á með hríð og hraglanda. Víða var að sjá fallega staði og vel hirta en annars staðar hafði sumt farið á verri veg. Hér á síðunni eru nokkrar myndanna sem teknar voru í ferðinni ásamt hugleiðingum kvennanna og óskum varðandi viðkomandi staði. Listasafn Gerðar Helgadóttur „Hér blasir við, mitt í þessu fallega holti, listasafnið væntanlega. Það sem við vildum óska er að innan veggja þessa safns væri ekki aðeins list til sýnis, sem er allra góðra gjalda vert. Við vildum óska að það væri þarna lítill tónlistarsalur og barnasalur. Við viljum búa til lifandi barnalistasafn. Einu sinni hrósaði Kópavogur sér af því að hann væri bær barnanna. Við vildum óska að hann yrði fyrsti bærinn á landinu sem hlúði að barnalist og upphæfí barnamenningu. Þetta er okkar draumur, okkar ósk.“ Fyrrverandi gæsluvöllur við Hlíðarhvamm „Hér blasir við ófögur sjón — fyrrverandi gæsluvöllur í niðurníðslu. Hér hefur verið komið upp leiktækjum og dóti, þetta eru verðmæti og við verðum að gæta að þeim. Við óskum þess að á sem flestum stöðum í bænum verði komið upp leiksvæðum fyrir börn þar sem þau geta örugg leikið sér.“ Sundlaugin „Á Rútstúni er verið að byggja stóra sundlaug. Okkur þykir undarlegt að sund- laugarbyggingar skuli ekki hafa haft annan forgang í bænum. Gott er að hafa stóra og góða sundlaug, en heldur hefðum við óskað þess að byggðar hefðu verið minni sundlaugar við skólana inn í Austurbæ.“ Ófrágengnar götur „Sjón sem þessi blasir því miður við í Kópavoginum. Við óskum þess að gert verði heildarskipulag um frágang gatna í bænum og að innan fárra ára geti gang- andi vegfarendur komist öruggir leiðar sinnar." %NA vV^' Auðvitað gera konur vorhreingerningu á líkama og sál — NÁTTÚRULEGA — SJÚKRANUDDSTOFA SILJU Sjúkranudd, sogæöanudd, svæöanudd, hitameö- ferö, vatnsgufa, megrunaraöstoö, Marja Entrich húö- ráögjöf, litgreining m/föðrunarráðgjöf, Marja Entrich húöverndarvörur og vítamín, sjampó og sápur. Brenn í „skinninu" aö sjá þig, SILJA SJÚKRANUDDSTOFA SILJU, HJALLABREKKU 2 E, S: 642085 V_________________________________) 10

x

Kvennalistinn í Kópavogi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennalistinn í Kópavogi
https://timarit.is/publication/1229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.