Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 18

Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 18
stia 18. SIÐA Aprfl 1983 Samfélagið kallar á konur . Konur í Norðurlandskjördæmi eystra hafa sam- einast um að bjóða fram til Aþingis. Nú er sýnt að fullreynt er að stjórnmálaflokkarnir hafa ekki áhuga fyrir að konur sitji á þingi og þeirsinna ekkiáhugamál um kvenna svo umtalsvert sé. Því erþað niðurstaða okkar að eina leiðin til að vekja virkan áhuga á barátt- umálum kvenna sé sú, að þær bjóðifram til Alþingis einar og sér. Við höfum lagt fram stefnu- skrá okkar. Þar sem við tilgrein- um þau mál sein við munum ganga til liðs við, og berjast fyrir. Pau mál varða alla innan þessa þjóðfélags og við teljum að eng- inn geti vikist undan því að taka afstöðu til þessa. Heimili þessa lands, hvert og eitt eru í raun smækkuð mynd af þjóðfélaginu. Um aldir hefur konum verið treyst til að standa vörð um hagsmuni heimilanna - sýna þar umhyggj u og forsj á. Við sjáum ekki ástæðu til annars, en okkur sé á sama hátt treystandi til að standa vörð urn hagsmuni þjóðfélagsins. Sjónarmið karlmanna hafa verið ráðandi við alla gerð þess samfélags sem við búum við. Okkur finnst fyllilega tímabært og réttmætt að sjónarmið og lífs- viðhorf kvenna fái að ráða nokkru um mótun þess - því fyrr - því betra. Konur hafa í ýmsu önnur við- horf en karlar, og í þjóðfélagi sem byggir svo á vinnu kvenna jafnt innan heimils sem utan, eiga þau viðhorf kröfu á því að tillit sé tekið til þeirra. Við erum mótað- ar af því hlutverki, sem við höfum ávallt gegnt, að ala börn og ann- ast þau. Við höfum unnið störf, sem karlmenn hafa yfirleitt ekki sinnt, og lífið mótar okkur á annan hátt. Einkum vil ég leggja áherslu á að það sem hverri konu liggur jafnan þyngst á hjarta, er framtíð og velferð barna hennar. Pví viljum við fá að standa við hlið þeirra karlmanna, sem taka ákvarðanir í þeim málum sem varða fjölskylduna, en þau mál hljóta alltaf að vera sá grundvöll- ur sem þjóðfélagið byggir á, og við förum fram á, að þekking okkar sjónarmið og lífsreynsla fái einnig að móta þær ákvarðanir. Bændasamfélagið í bændasamfélaginu sem við bjuggum við fram undir miðja þessa öld, vann öll fjölskyldan saman að atvinnurekstrinum - búskapnum. Þar lögðust allir á eitt, og stundirnar voru ekki tald- ar. Ennþá er þetta svo víða um land. En nú hefur það gerst, að þjóðfélagið hefur tekið slíka koll- steypu í atvinnuháttum á síðari áratugum, að það hefur tæpast náð áttunum enn eftir hana. Nú er meiri hluti þjóðarinnar launa- fólk. Húsmæður hafa verið kall- aðar út í atvinnulífið, og af hálfu þess opinbera hefur of lítið verið gert til að létta þeim þá kvöð. Flestar útivinnandi húsmæður bæta heimilisstörfum og aðhlynn- ingu barna ofan á dagsverkið. Of fáir heimilisfeður telja sjálfsagt að taka jafnan þátt í þeim störfum á við þær og orsökin er fyrst og fremst sú að þeir eru ekki aldir upp með það fyrir augum. Þó skal viðurkennt að meðal yngra fólks er þetta að breytast, og það er vegna þess að kringumstæðurnar krefjast þess. Hér þarf að verða hugarfarsbreyting. Foreldrar verða að ala börn stn - drengi og stúlkur - upp við það, að taka jafnan þátt í störfum fjölskyld- unnar, innan húss sem utan. Það þarf að auka heimilisfræðsluna í skólunum og þar ætti að brýna fyrir börnum og unglingum af báðum kynjum, að þau beri jafna ábyrgð á barna uppeldi - heimil- isstörfum og rekstri og umönnun heimilis. Þetta eru mikilvægustu forsendur þess, að sú hugarfars- breyting sem við stefnum að, nái fram að ganga. Hagsmunir kvenna Á alþingi íslendinga verður það okkar hlutverk, að standa vörð um hagsmuni kvenna og barna. Konur eiga hagsmuna að gæta á öllum sviðum samfélagins. Öll mál, jafnt efnahagsmál sem uppeldismál, varða konur sem þátttakendur í íslensku þjóðfé- lagi. Öll mál eru því kvennamál engu síður en karla. Konur eru stærsti láglaunahópur þessa lands. Yfir80% íslenskra kvenna eru á vinnumarkaðinum 70% giftra kvenna vinna utan heimilis, en aðeins 3% þessa stóra hóps ná meðaltekjum. Við viðurkennum ekki þau sjónarmið sem ráða þegar laun fyrir störf kvenna eru ákveðin. Við viljum að starfs- reynsla kvenna við húsmóður- störf sé metin jafngild annarri starfsreynslu til launa hefji konur launuð störf. Við viljum að hús- móðurstarfinu sé sýnd fyllsta virðing af öllum þegnum þjóðfél- agsins, og við hörmum þá lítils- virðingu sem því hefur oft og tíð- um verið sýnd bæði í ræðu og riti, en þó alveg sérstaklega með því að heimavinnandi húsmæður skuli vera eina stétt þjóðfélagsins sem ekki nýtur lífeyrisréttinda. Við viljum að í efnahagsmálum þjóðarinnar sé ráðandi stefna hinnar hagsýnu húsmóður sem neitar sér fremur um stundar- gæði, en að lifa um efni fram. Æðisgengin keppni um lífsgæði og stöðutákn er okkur ekki að skapi og við viljum að verð- mætamat fólks miðist ekki ein- göngu við ytri gæði. Samtakamáttur kvenna Við höfum lagt fram stefnu- skrá okkar og trúum því staðfast- lega, að íslenskar konur geti sam- einast um það sem þar er að finna. Ég hef bent á það fyrr í þessari grein hve konur virðast eiga örðugt með að komast til áhrifa innan stjórnmálaflokkanna. Við álítum að allar konur, hvar í flokki sem þær standa geti sam- einast um stefnuskrá okkar og með því hrint því átaki í fram- kvæmd að koma konum inn á Alþingi. Ég minni á þann sam- takamátt sem konur fyrr og síðar hafa sýnt. Minnumst átaks þeirra við stofnun Háskólans - bygging- ar barnaspítala Hringsins og stofnunar húsmæðraskólanna. Fjöldamargt fleira mætti telja, sem sýnir hverju þær fá áorkað þegar þær leggjast á eitt. Samfél- agið kallar á, að konur séu með þar sem þeim ráðum er ráðið, sem hafa afdrifarík og mótandi áhrif á líf þegna þessa lands, sem er okkar land. Kjósum konur. Málmfríður Sigurðardóttir. Ram sf. Tískuverslun ungs fólks áöllum aldri. SjáumstíRam Garðarsbraut9 Húsavíks. 41453 SANDKAKA msmmss Það er okkur öllum fyrir bestu að borða íslenskar kökur. Þær eru líka svo góðar. Smakkaðu!! X x* > x x X XX K XX X X XX VÍ.X XXXX XX xx x XX xx X X X>%' X XX XXX XX XX X v XX K X X X X XX XX Xa xx X 1 X X X X A X xxxx X X X X X . X XX. xx X XX x vv ttX. X XX X X X V X X XX XXXX u X X \ X X xV.X< x x =X xx X XX X X X x X xX ... XXX XX ,XX XX. X XS X XX X XX XX XX XX XX X X X X xxx X X Á X XX XX XX X X x X X X X X xxxx X x. x X, XX X XX Xx XXX xxx?x >Vxxx xxv x >/

x

Kvennalistinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn
https://timarit.is/publication/1236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.