Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 18
skiptum við fjölskyldur, 2) endurlífgun, 3) ástvinamissir, 4) lýðbreytur sem vörðuðu hjúkrunarmenntun og hjúkrunar- störf. Lokaðar spurningar voru 49 og opnar spurningar ætlaðar fyrir stuttar athugasemdir og útskýringar voru 15. Svör lokaðra spurninga voru skráð á þrjá mismunandi kvarða sem voru: 1) fimm atriða Likert-kvarði, frá mjög sammála til mjög ósammála, 2) já, nei, 3) já, nei, veit það ekki. Gildi og áreiðanleiki í þeim tilgangi að auka gildi og áreiðanleika spurningalist- ans fór fram forrannsókn meðal tíu bráðahjúkrunarfræð- inga sem unnu á öðrum sjúkrahúsum en tóku þátt í rannsókninni. Meginmarkmið forrannsóknar var að kanna: hve langan tíma tók að svara spurningunum, skýrleika spurninganna, hvort þátttakendur teldu sig hafa nægileg tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvort uppástungur væru um breytingar. Einnig voru orðalag og uppbygging spurningalistans yfirfarin af reyndum fræðimönnum í hjúkrun og töifræðingi. Árangur þessa var sá að spurningum var fækkað og formi og orðalagi nokkurra var breytt. Siðferðilegar vangaveltur Siðferðilegar leiðbeiningar Burns og Groves (1993) og Polits og Hunglers (1995) voru hafðar að leiðarljósi við framkvæmd rannsóknarinnar. Aðgengi að deildum og þátttakendum var fengið frá hjúkrunarframkvæmdastjórum viðkomandi stofnana. Þátttakendur fengu upplýsingar um eðli og tilgang rannsóknarinnar. Rannsóknargögn voru nafnlaus. Greining gagna Tölfræðileg úrvinnsla lokaðra spurninga var unnin í SPSS fyrir Windows. Tilraun var gerð til þess að mæla tengsl milli breyta með Kruskal-Wallis prófi en ekki fengust töl- fræðilega marktækar niðurstöður (p>0,05). Opnar spurn- ingar voru innihaldsgreindar í einingar og þemu. Takmarkanir Rannsóknin takmarkast af fremur litlu þægindaúrtaki með 50% þátttöku. Þá var spurningalistinn hannaður af rann- sakanda fyrir rannsóknina. Niðurstöður rannsóknarinnar eru því aðeins lýsandi fyrir viðhorf og reynslu þátttakenda en hafa ekki alhæfingargildi. NIÐURSTÖÐUR Þátttakendur dreifðust jafnt, 18 frá hverri deild. Starfs- reynsla þeirra í hjúkrun var löng, 85% þeirra höfðu yfir fimm ára starfsreynslu og þar af 30% yfir 15 ára reynslu. Einnig var starfsreynsla þátttakenda á bráðadeildum löng, en 60% þeirra höfðu unnið lengur en fimm ár við slíka hjúkrun og af 202 þeim höfðu 17% yfir 15 ára starfsreynslu. Einungis 9% þátttakenda höfðu upphaflega háskólagráðu í hjúkrun en 91% hafði lokið annarri hjúkrunarmenntun. 72% þátt- takenda hafði síðan aflað sér frekari hjúkrunarmenntunar, þar af 15% BS-gráðu og 6% meistaragráðu í hjúkrun. 96% þátttakenda litu svo á að umönnun fjölskyldna væri innan verkahrings hjúkrunarfræðinga og 91% taldi mikilvægt fyrir sjúklinga að fjölskyldur þeirra nytu umönn- unar á bráðadeildum. Þrátt fyrir að meirihluti þátttakenda teldi að ábyrgð á sjúklingi fæli í sér ábyrgð á fjölskyldunni voru 30% óviss eða ósammála þessari spurningu (sjá mynd 1). Þátttakendur töldu mikilvægt að sinna þörfum Fjöldi 42^% Mjög Sammála Ekki viss Ósammála Mjög Svöruðu sammála ósammála ekki Mynd 1. Felur ábyrgð hjúkrunarfræðings á sjúklingi einnig í sér ábyrgð á fjölskyldu hans? fjölskyldna og 76% þekktu til rannsókna á þörfum þeirra. Að mati þátttakenda voru upplýsingar, öryggiskennd og stuðningur mikilvægustu þarfir fjölskyldna, en aðeins 15% töldu að nálægð við sjúklinga væri þeim mikilvæg. Minni- hluti þátttakenda fylgdist með fræðilegum skrifum varð- andi hjúkrun fjölskyldna (sjá mynd 2). Aðeins 35% Mynd 2. Fylgist þú með fræðilegu efni tengdu hjúkrun fjölskyldna? þátttakenda töldu störf sín byggð á niðurstöðum rann- sókna og 30% notuðu hjúkrunarlíkön sem hugmynda- ramma í störfum sínum. Hvað menntun varðaði töldu 63% þátttakenda sig ekki hafða hlotið næga menntun til þess að sinna sálrænum og Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.