Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 33

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 33
2. Veitið athygli ummerkjum um ofbeldi og misbeitingu og fylgið málinu eftir. 3. Sé uppi grunur um líkamlegt ofbeldi, gerið það þá að venju að spyrja hvort sjúklingurinn hafi nokkra reynslu af ofbeldi eða misbeitingu. 4. Tryggið að konum og stúlkum, sem beittar hafa verið líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi, sé veitt læknis- meðferð og að ofbeldisins sé getið I læknaskrám. 5. Vísið sjúklingum á viðeigandi félagsþjónustu, neyðar- athvarf eða stuðningshópa. 6. Berið virðingu fyrir þörf sjúklingsins fyrir trúnaðartraust og gætið þagnarskyldu um læknaskrár eða aðrar upplýsingar. Spurningar fyrir fórnarlömb Því er haldið fram af háifu WHO að hægt sé að auka færni starfsfólk í heilbrigðisstéttum við að aðstoða konur og stúlkur, sem eru fórnarlömb ofbeldis og/eða misbeitingar, með þjálfun og með því að leggja fram skriflegar ieiðbein- ingar um hvernig hægt sé að koma fórnarlömbum til hjálpar. Það sannar dæmi frá sjúkrahúsi í Bandaríkjunum þar sem fimmfalt fleiri konur, sem orðið hafa fyrir ofbeldi, finnast nú en áður en farið var að framfylgja ákveðnum vinnureglum. Eftirfarandi spurningar eru dæmi um það sem hjúkrunarfólk og læknar á sjúkrahúsi á Þennsylvaníufylki spurðu konur. Þessar spurningar má nýta að vild því konur um allan heim búa að mestu leyti við sömu vandamál. „Ofbeldi er mjög algengur þáttur í lífi kvenna og því spyr ég allar konur sem ég ræði við um heimilisofbeldi. Hefur maki þinn nokkru sinni barið þig eða misþyrmt?" „Stundum ræði ég við konur sem hafa fengið áverka eins og þú ert með vegna þess að þær voru barðar. Kom það fyrir þig?“ „Þegar fólk kemur á deildina með sömu einkenni og þú ert með, má stundum rekja það til vandamála heima fyrir. Hefur einhver gert þér mein?“ „Þú nefndir að maki þinn drekkur áfengi. Hættir honum stundum til að beita ofbeldi?" Almennar vinnureglur fyrir starfsfólk heilbrigðis- stétta WHO hefur tekið saman lista yfir leiðbeiningar fyrir starfs- fólk heilbrigðisstétta til að komast að raun um hvort konur hafi verið beittar ofbeldi. 1. Óttist ekki að spyrja. Öfugt við það sem almennt er talið eru konur yfirleitt viljugar til að opna sig og fletta ofan af líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi, séu þær spurðar á beinan hátt og án fordóma. Margar þeirra bera reyndar í brjósti þá duldu ósk að einhver spyrji þær. 2. Mótið umhverfi sem styður við konuna án fordóma. Leyfið henni að segja sögu sína og leggið áherslu á að enginn eigi undir nokkrum kringumstæðum barsmíðar eða nauðgun skilið. 3. Verið vakandi fyrir viðvörunarmerkjum. Ákveðin meiðsl eða ástand ættu að vekja grunsemdir um ofbeldi og kynferðislega misbeitingu. Sem dæmi má nefna: 1) sífelldar, óljósar kvartanir án neinnar sjáanlegrar ástæðu; 2) meiðsl sem ekki ber saman við útskýring- una á hvernig þau komu til; 3) maka sem er ofurnærgætinn, stjórnsamur eða vill ekki yfirgefa konu sína; 4) líkamleg meiðsl við þungun; 5) tilraunir til sjálfsvígs og 6) bið á því að slys verður og þar til konan hefur samband við sjúkrastofnun eða slysadeild. 4. Leggið mat á hvort konan og börn hennar eru í yfirvofandi hættu og aðstoðið þau við að íhuga hvaða leiðir eru færar. Gæti vinur eða ættingi verndað hana eða ætti að vísa henni á t.d. kvennaathvarfið? 5. Gerið konunni grein fyrir að heilbrigðis- og dómskerfið standi með henni. Samkvæmt hegningarlögum flestra ríkja eru nauðganir og líkamlegt ofbeldi glæpsamlegt athæfi, jafnvel þótt ekki séu til sérstök lög um heimilis- ofbeldi. Reynið að komast að því hverra kosta konan á völ um lögfræðilega aðstoð. 6. Bjóðið konunni nýjan tíma til að fylgja eftir aðstoðinni við hana. 7. Látið liggja frammi veggspjöld og bæklinga um heimilisofbeldi, nauðganir og kynferðislegar misþyrm- ingar ásamt upplýsingum um hvar sjúklingar geta leitað hjálpar og stuðnings. 8. Farið gætiiega í að ávísa róandi lyfjum því þau geta dregið úr færni sjúklings til að sjá fyrir og bregðast við árásum makans og þannig sett hana í enn meiri hættu en annars. 9. Mótið og haldið vakandi tengslum við bæði opinber og óháð samtök sem aðstoða konur sem verða fyrir ofbeldi. Þessar leiðbeiningar eru ætlaðar starfsfólki heilbrigðis- stétta. WHO leggur áherslu á að samþætta verður baráttu gegn ofbeldi gegn konum almenna heilbrigðiskerfinu, bæði í héraði og á landsvísu, og að óháð samtök tengist starfseminni. Aðalmarkmið þessarar baráttu er að breyta viðhorfum bæði kvenna og karla. Sem dæmi má nefna að í Uraco Rueblo í Hondúras eru bæði leikræn tjáning, umræður og hlutverkaleikir þættir í þjálfunaráætlun fyrir starfsfólk heilbrigðisstétta um heimilisofbeldi og kynferðis- lega misbeitingu kvenna og barna. Lesið meira á: www.who.int/frh-whd/VAW infopack.htm Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000 213

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.