Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2000, Page 47
Helga Birna Ingimundardóttir hagfræðingur Spurningar og svör um k]ArAmÁl Kæru hjúkrunarfræðingar. Sú nýbreytni verður á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga www.hjukrun.is undir kaflanum um kjaramál, að komið verður fyrir nýjum lið er ber heitið „spurningar og svör um kjaramál". Ætlunin er að þar verði leitað svara við almennum og algengum spurningum hjúkrunar- fræðinga um kjaramál. Líta verður á þessa grein sem upp- haf þess sem verða skal á heimasíðu félagsins á komandi vetrarmánuðum. Algengustu spurningarnar eru um rétt til fæðingar- og veikindaleyfis. Einnig eru þær mismunandi eftir árstíðum. Til dæmis eru spurningar um sumarorlof mjög algengar þegar vora tekur. Þá eru spurningar um bætingu vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga og helgidagafrí tíðar þegar nær dregur hátíðisdögum. Hér á eftir koma nokkur dæmi um algengar og almennar spurningar og svör við þeim. Það er ósk okkar hér á félaginu að þetta fyrirkomulag, að hafa spurningar og svör um kjaramál á heimasíðu þess, gefist vel. Á þann hátt geta hjúkrunarfræðingar leitað svara við þeim spurningum sem á þeim þrenna á auðveldan og þægilegan hátt. Þeir hjúkrunarfræðingar, sem ekki hafa aðgang að netinu, hvorki heima né í vinnu, geta pantað tíma á hóflegu verði, t.d. á Borgarbókasafni, og fengið þannig aðgang að tölvu og neti. Þá vil ég endilega hvetja hjúkrunarfræðinga til að hafa samband bæði á símatímum og með tölvupósti í helgabirna@hjukrun.is út af þeim spurningum sem vaknað hafa. Kær kveðja, Helga Birna. Spurning: Hvernig eru yfirvinnulaun greidd í barns- burðarleyfi ? Svar: í reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins nr. 410/1989 segir í 4. grein: „Fyrstu 3 mánuði í barnsburðarleyfi svo og í framlengdu leyfi skv. 6. og 7. gr. skal auk dagvinnulauna greiða meðaltal þeirra yfirvinnu-, vakta-, gæsluvakta- og óþægindaálagsstunda sem konan fékk greiddar síðasta 12 mánaða uppgjörstímabil yfirvinnu áður en barnsburðarleyfi hófst." Spurning: Hvernig má lengja barnsburðarleyfi? Svar: í 5. gr. reglugerðar um barnsburðarleyfi segir: „Ef fastráðin kona óskar eftir að taka lengra barnsburðarleyfi en hún annars á rétt á, gegn tilsvarandi skerðingu launa sbr. 1., 3. og 4. gr., skal viðkomandi stofnun leitast við að verða við þeirri ósk. Heimilt er að barnsburðarleyfi nái þannig allt að tvöfaldri lengd." Þetta þýðir að ef kona vill lengja barns- burðarleyfi gegn tilsvarandi skerðingu launa, t.d. að fá 12 mánaða barnsburðarleyfi á 'h launum eða 9 mánuði á 2h launum, skal stofnun leitast við að verða við ósk hennar. Spurning: Má hjúkrunarfræðingur, sem er í barns- burðarleyfi hjá x-stofnun, fara að vinna við z-stofnun meðan hann er í leyfi frá störfum? Svar: Svarið er nei. Ef báðar stofnanirnar eru ríkisstofnanir má það alls ekki. Ef önnur stofnunin er ekki ríkisstofnun er það álitamál. Hins vegar ber að vara við því. Spurning: Eru leyfisdagar vegna veikinda barna, 7 dagar árlega, bundnir við starfshlutfall ? Svar: Já, öðru foreldri er heimilt að vera frá vinnu í samtals 7 daga árlega vegna veikinda barns. Það er samkvæmt reglugerð um veikindaleyfi starfsmanna ríkisins sem vísað er til í kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Þessi heimild, þ.e. 7 dagar árlega er miðuð við starfshlutfall hvers og eins. Það þýðir að hjúkrunarfræð- ingur, sem vinnur 100% starf, á rétt á að vera heima hjá veiku barni í 7 daga árlega eða samtals 56 vinnustundir. Með sama móti er hjúkrunarfræðingi, sem vinnur 80% starf, heimilt að vera frá vinnu vegna veikinda barns í samtals 5,6 vinnudaga árlega, eða 45 vinnustundir. Spurning: Lengist orlof ef það er tekið eftir sumar- orlofstímabil? Svar: Orlof lengist alltaf ef það er tekið eftir að sumar- orlofstímabili lýkur, þ.e. eftir 30. september, og gildir þá einu hvort vinnuveitandi bað viðkomandi starfsmann um að fara í orlof á þeim tíma eða ekki. Spurning: Lengist orlof ef það er tekið fyrir sumar- oriofstímabil. Svar: Orlof, sem tekið er fyrir sumarorlofstímabil, lengist aðeins ef vinnuveitandi biður viðkomandi starfs- mann um að fara í orlof áður en sumarorlofstímabil hefst, þ.e. fyrir 15. maí. Spurning: Hvernig reiknast laun staðgengla, yfirvinna og ökutækjastyrkur og fleira þess háttar? Svar: í kafla 9 um staðgengla er talað um að stað- gengill fái laun eftir flokki yfirmanns. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 76. árg. 2000 227

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.