Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Qupperneq 5
Formannspistill „Auðs afla iðnar hendur" Herdís Sveinsdóttir Málsháttinn í titli þessa pistils var að finna í litlu páskaeggi sem ég fékk nokkru áður en páskahátíðin gekk í garð. Ég hef tals- vert hugsað um hann og um aðra svipaða eins og „vinnan göfgar manninn”. Ástæða þess að mér er tíðhugsað um þessa málshætti er vitaskuld yfirstandandi samn- ingaviðræður við samninganefnd ríkisins og pælingar um hvað hjúkrunarfræðingar bera úr býtum. í undirbúningsvinnu samn- inganefndar Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga og við samningaborðið eiga sér stað umræður sem taka á grundvallar- atriðum, eins og hvort iðnar hendur hjúkrunarfræðinga afli þeim auðs og hvort hjúkrunarstarfið göfgi þann er það vinnur. Líkt og allir vita þá felast störf hjúkr- unarfræðinga í því að vinna með fólki, ann- ast fólk, styðja við fólk. í starfi sínu kynnast hjúkrunarfræðingar öllu litrófi tilfinninga og nándar. Þeir eru iðulega til staðar á gleðiríkustu og erfiðustu stundum fólks. Skjólstæðingar hjúkrunarfræðinga umbuna þeim líka ríkulega og þakkarorð ánægðs sjúklings eru vissulega auðgandi. Að fara heim af vaktinni vitandi það að starf þitt með einni manneskju, einni fjölskyldu, skipti sköpum í velferð viðkomandí, er gefandi og jafnframt göfgandi. Gömul gildi sem fela í sér að hjúkrunarfræðingar beri ávallt hag annarra fyrir brjósti eru jafnmikilvæg í dag og þau hafa ávallt verið. Það vita líka allir að fórnfýsi og óeigin- girni er ekki umbunað á þann máta sem samfélag 21. aldar umbunar þ.e. að fólk geti lifað sómasamlegu lífi af afrakstri launavinnu sinnar. Rúmlega fjórðungur hjúkrunarfræðinga (27%) fær í dagvinnu- laun 155 þúsund eða minna og tæplega fjórðungur (23%) fær meira en 175 þúsund í dagvinnulaun. Þessar tölur ná til allra hjúkrunarfræðinga, frá nýgræðingum og upp í æðstu stjórnendur. Fljúkrunar- fræðingar telja þetta bera vott um að iðnar hendur þeirra afli ekki auðs í formi fjár. En eru íslenskir hjúkrunarfræðingar hreinlega nógu iðnir? Könnunin á vinnu- álagi hjúkrunarfræðinga sem kynnt hefur verið í síðustu tveimur tölublöðum tíma- ritsins sýnir að þeir upplifa mikið álag í vinnu. Þeir vinna líka mikið. Hjúkrunar- fræðingur sem ræður sig í 100% starf vinnur að meðaltali 7,5 yfirvinnustundir á viku. Vinnuhlutfallið ers.s. 120%. Meðal- starfshlutfall hjúkrunarfræðinga er tæplega 80% eða 32 stundir á viku. Meðalvinnu- vika hjúkrunarfræðings í könnuninni var hins vegar að meðtalinni yfirvinnu 38,5 stundir eða sem samsvarar 96,25% vinnuhlutfalli. Hjúkrunarfræðingar, sem ég hef rætt við, telja vinnu sem þeir eru neyddir til að vinna ekki göfgandi. íslenskir hjúkrunarfræðingar vinna langan vinnudag og þeir afkasta miklu. Samanburður við hjúkrunarfræðinga á Norðulöndum sýnir að fjöldi hjúkrunarfræðinga fyrir hverja 100 þúsund íbúa í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku er 959 á meðan að á íslandi eru 637 hjúkrunarfræðingr á hverja 100 þúsund íbúa. Það eru því þriðjungi færri hjúkrunarfræðingar sem hjúkra sama hópi hér á landi miðað við hin löndin. Ekki standa þeir sig þó ver eins og ánægjuleg frétt um páskahelgina bar vott um, en greint var frá því að árangur hjartaaðgerða á íslandi væri 50% betri hér en í Evrópu og tíðni sýkinga lægri. Gæðakannanir þar sem ánægja skjólstæðinga með hjúkrun hefur verið könnuð sýna jafnframt mikla ánægju þeirra með hjúkrunina. Af hverju afla iðnar hendur vel mennt- aðra íslenskra hjúkrunarfræðinga þeim ekki góðra launa? Vigdís Jónsdóttir, hag- fræðingur, rakti í grein í aprílhefti Tímarits hjúkrunarfræðinga 1999 að lögmálið um framboð og eftirspurn virtist ekki eiga við um okkur. Taldi hún ástæðurnar vera fákeppni, þ.e. svo til eingöngu einn vinnu- veitandi ásamt þeirri hefð að greiða ekki eða illa fyrir kvennastörf. Benti hún jafn- framt á að það væri ábyrgðarhluti hjá stjórnvöldum að nýta sér aðstæður ófullkominnar samkeppni til að þrýsta niður launum hjá stórum hópi kvenna í opinberri þjónustu. Tölur úrfélagaskrá okkar sýna að hjúkrunarfræðingar sætta sig illa við slíkt. Á tveimur árum, frá því í mars 1999 þar til í mars 2001, hefur hjúkr- unarfræðingum sem eru „ekki starfandi við hjúkrun" fjölgað úr 308 í 377 eða um 22%. Á sama tíma hefur hjúkrunarfræðingum alls fjölgað um 167 eða um 10,5%. Þetta er vísbending um að hjúkrunarfræðingar eru farnir að sækja á önnur mið en þau hefðbundnu. Þeir, sem teljast ekki starf- andi við hjúkrun, eru jafnt þeir sem starfa við kennslu, við önnur störf eða eru heimavinnandi. Þeir eiga það þó sam- merkt að halda fagleg tengsi við sitt félag með því að greiða lágmarksfélagsgjald. Hjúkrunarfræðingum sem hafa hreinlega sagt sig úr félaginu eða hirða ekki um að greiða félagsgjöld hefur hins vegar fjölgað úr 129 í 231 eða um 79% á þessum sama tíma. Það eru alvarlegar tölur, því þessi hópur hefur að eínhverju marki sagt skilið víð hjúkrunarstarfið. Álykta má að ástæður séu léleg umbun fyrir mikla vinnu. Ég man ekki eftir að hafa hitt hjúkrunar- fræðing sem segist ekki starfa við hjúkrun vegna starfsins sjálfs. Þvert á móti eru kjörin alltaf tiltekin en áréttað að starfið sé skemmtilegt. Nú eru tæpir sex mánuðir liðnir frá því kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga við fjármálaráðherra var laus og lítið hefur áunnist í samningaviðræð- um. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar á fjármálaráðherra að misnota ekki aðstöðu sína sem meginvinnuveitandi þessa stóra hóps og ganga hratt og af sanngirni til samninga. Gerber Því lengi býr að fyrstu gerð Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001 85
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.