Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2001, Side 57
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræð- Inga var haldinn föstudaginn 2. mars að Suður- landsbraut 22. Flér á eftir fer fundargerð fundarins. 1. Staða kjara- og samningamála og kynning á rétt- indum sem áunnist hafa. Alls hafa verið haldnir níu fundir með samninganefnd ríkis- ins. Tilboð hennar er 14% launahækkun á samningsfíma- bilinu sem er 4 ár. Þessa sfundina er ekki verið að ræða launahækkun heldur er lögð áhersla á að ræða greiðslu fyrir álagsfengda þætfi. Helstu kröfur félagsins eru hækkun grunnlauna, hækkun vaktavinnuálags og stytting vinnu- vikunnar. Verið er að semja um reglur varðandi endurnýjun stofnanasamninga. Slitnað hefur upp úr viðræðum margra aðildarfélaga BHM við ríkið. Eina félagið, sem hefur samið, er Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Ekki er hægt að gera kröfur um afturvirkni samninga frá þeim tíma er samningar voru lausir. Athuga þarf hvort hægt er að setja þá kröfu inn í næstu samninga. Helga Birna Ingimundardóttir kynnti samkomulag um réttindi starfsmanna vegna veikinda og slysa, ný lög um fæðingar- og foreldraorlof og fjölskyldu- og styrktarsjóð. Þessar upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins. 2. Kynning á rekstrarreikningi 2000 Ingunn Sigurgeirsdóttir kynnti rekstrarreikning ársins 2000. Staða hans er ekki endanleg en samkvæmt reikningnum, eins og hann stendur í dag, er mikill hagnaður hjá félaginu. Meginskýringin er sú að launahækkun hjúkrunarfræðinga varð meiri en gert hafði verið ráð fyrir við ákvörðun félags- gjalda árið 1999. Umræður urðu um hvernig fara ætti með þennan hagnað. Herdís sagði að verið væri að kanna hvort hægt væri að leggja stóran hluta hagnaðarins í vinnudeilusjóð félagsins og stytta þannig þann tíma sem félagsmenn borga í sjóðinn. Sigrún Gerða Gísladóttir bar fram þá tillögu að endurgreiða hjúkrunarfræðingum félagsgjöldin. Tillögur komu frá nokkrum formönnum fagdeilda um að hækka styrk til fagdeilda. Herdís benti á að ekki mætti auka útgjöld félagsins vegna hagnaðar þessa eina árs. Stjórnin mun leggja fram tillögu um lækkun félagsgjalda á fulltrúaþinginu í vor. Þá var rætt um að skoða almennt stefnu félagsins varðandi greiðslur til nefndar/félags- manna vegna vinnuframlags þeirra til félagsins. Einnig var rætt um að leggja fyrir álitlega fjárhæð til ritunar sögu hjúkrunar á íslandi en það mun vera 10-12 milljón króna verkefni. Aðalheiður Dagmar Matthíasdóttir lýsti ánægju sinni með stöðu félagsins. Sigrún Gerða taldi félagsmenn verða vara við minni þjónustu af hendi félagsins og þeim fyndist félagið hafa fjarlægst hinn almenna félagsmann. Á þetta einkum við minni þjónustu við samningagerð, þ.e. aðlögunarsamninga og framgangskerfi. Kristín Sigurðar- dóttir, formaður Austurlandsdeildar, kannaðist ekki við þetta umkvörtunarefni. 3. Fréttir frá stjórn Herdís sagði frá helstu verkefnum stjórnar þessa stundina. • Búið er að skipa vinnuhóp til að vinna áfram með niðurstöður hjúkrunarþings varðandi skilgreiningu á hjúkrunarmeðferð, þ.e. að félagið setji einhvers konar siðareglur eða leiðbeiningar um hvað teljist til hjúkrunarmeðferðar og hvað ekki. • Fræðslu- og menntamálanefnd hefur fundað með stjórn og iagt fram tillögur að breyttu starfssviði nefndarinnar. Stjórn líst vel á þær hugmyndir. • BHM hefur rekið tvö dómsmál fyrir félagsmenn. Annað vannst en hitt tapaðist. • Ákveðið hefur verið að stjórn tilnefni Sigríði Guðmunds- dóttur hjúkrunarfræðing til Florence Nigthingale orð- unnar. • Þá hefur verið ákveðið að tilnefna hóp hjúkrunar- fræðinga gegn reykingum til „Nordiska folkhálsopriset” • Starfslýsingar starfsfólks á skrifstofu hafa verið endur- skoðaðar. • Nýr starfsmaður hefur verið ráðinn til starfa í afgreiðslu í stað Önnu Árnadóttur. Hún heitir Steinunn Helga Björnsdóttir og var kynnt og boðin velkomin til starfa. • Námskeið um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni fyrir hjúkrunarfræðinga er samvinnuverkefni félagsins og Háskóla Reykjavíkur. Námskeiðið hefst 12. mars nk. • Niðurstöður úr könnun á vinnuálagi hjúkrunarfræðinga hafa verið kynntar í Tímariti hjúkrunarfræðinga. Tvær greinar af þremur hafa þegar birst. • Verið er að vinna að ráðningu sagnfræðings til að rita sögu hjúkrunar á íslandi. Nefnd var stofnuð til að sjá um þetta mál og er formaður hennar Ásta Möller. 137 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.