Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 48
Meistaranám í heilbrigðisvísindum við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri Valnámskeið innan heilbrigðisdeildar sem nemendum standa til boða eru: ÖHÍ0105 Öldrun og heilbrigöi í íslensku samfélagi (fyrst Boöið er upp á meistaranám í heilbrigðisvísindum til meistara- gráöu (M.S.) við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Eg var sjálf í þverfaglegu doktorsnámi og fannst ómetanlegt aö geta ver- ið í námi með fólki úr öðrum fræöigreinum, það víkkar alltaf sjóndeildarhringinn. V'05) KRA0105 Krabbamein, alnæmi og líknandi meðferð (fyrst H'05) EEL0105 Endurhæfing, efling og lífsgæði (fyrst V'06) LSL0105 Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman (V'06) F0S0105 Fötlun og samfélag (H'06) Markmið námsins er að þeir sem útskrifast úr náminu veröi gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn, breytingarliðar og víðsýnir og skap- andi leiðtogar. Þetta eru þeir námskrárþræöir sem eru rauöu þræöirn- ir I uppbyggingu og innihaldi námskeiða, og leiðarljós í kennsluháttum og námsmati. Kennt er í lotum (3-4 á önn) og námið skipulagt þannig að stunda megi vinnu meö náminu. Yfir hverju námskeiði eru 2-3 um- sjónarkennarar og eru þeir hver af sínu sérsviöi. Þetta er gert til aö tryggja þverfaglega nálgun. Þess má geta að það voru 5-8 manna þverfaglegir hóp- ar (með ráögjöfum) sem þróuðu hvert námskeið. Ég vil hvetja hjúkrunarfræðinga til að kynna sér þennan möguleika vel. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2004. Meistaranámið er 60 einingar og er byggt upp af 6 námskeiðum (5 ein- ingar hvert) og meistararitgerð sem er 30 einingar. Þrjú námskeið eru skyldunámskeið (alls 15 einingar) en hin þrjú eru valnámskeið. Heimilt er aö veita sérstakt skírteini þegar nemandi hefur lokið 30 einingum I námskeiðum til staðfestingar á því (diploma). Skyldunámskeiöin þrjú eru: SHH0105 Heilbrigði og heilbrigöisþjónustuna: Staða, stefnur og straumar (fyrst H'04) EIG0105 Eigindlegar rannsóknir og rannsóknaraðferðir (fyrst H'04) MEG0105 Megindlegar rannsóknir og rannsóknaraðferðir (fyrst V'05) Umsóknareyöublöð fást í afgreiðslu Háskólans á Akur- eyri og á skrifstofu heilbrigðisdeildar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar um námiö á heimasíðu háskólans (http://www.unak.is). Nánari upplýsingar veita prófessor Sigríður Halldórsdóttir forstöðumaður framhaldsnáms, sími 463 0911, sigridur@unak.is, Lára Garðarsdóttir, skrifstofustjóri heil- brigðisdeildar, sími 463 0536, larag@unak.is og Solveig Hrafnsdóttir, námsráðgjafi, sími 463 0552, solveig@unak.is. Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við heilbrigðisdeild HA. Ályktun stjórnar Fíh um sérhæföa hjúkrun í heimahúsum Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfrœðinga (Fihj mótmœlirharðlega einhliða ákvörðun Tryggingastofnunar rikisins (TR) um breytingará framkvœmd samnings við Félag íslenskra hjúkrunarfrœöinga um hjúkrun í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa. ísamningi Fíh og TR frá 21. ágúst 2003 er bókað að á samningstimanum muni samningsaðilar rœða um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar. Ekkert samráð var haft við Fíh um þœr breytingar á skipulagi við framkvœmd samningsins sem TR hefur nú tekiö í gildi. Sérhæfö heimahjúkrun hefur byggst upp s.l. 15 ár og sífellt meiri þörf er fyrir þjónustuna. Með sérhæfðri heimahjúkrun hefur tekist aö útskrifa sjúklinga fyrr af sjúkrahúsum en ella væri, en veita þeim eftir sem áður flókna verkjameðferö og aðra einkennameöferð, eða þá hjúkrunarmeðferð sem erforsenda útskriftar af sjúkradeildum. Sérhæfð hjúkrunarþjónusta í heimahúsum hefur einnig skpaö skilyröi þess að sjúk börn geti frekar fengið meöferð utan sjúkrahúsa. Hið sama á viö um geðsjúka. í Ijósi yfirvofandi samdráttar í þjónustu Landspítala háskólasjúkrahúss og þess aö stjórnendur hafa boðaö aö legutími á LSH verði styttur meir en oröið er, má Ijóst vera aö enn frekari þörf verður fyrir sérhæfða hjúkrun í heimahúsum. Þær breytingar á skipulagi þjónustunnar sem TR hefur nú einhliða gripið til stefna hins vegar sérhæfðri heimahjúkrun í hættu. Stjórn Félags islenskra hjúkrunarfræðinga krefst þess aö TR afturkalli þær breytingar sem oröið hafa og í samræmi viö bókun í samningi aðilanna, hafi fullt samráð við Fíh um alla endurskoðun á fyrirkomulagi þjónustunnar. Samþykkt á fundi stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga 15. desember 2003. Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.