Norðurslóð - 21.02.1984, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 21.02.1984, Blaðsíða 1
Lokið er sýningum hjá Leikfélagi Dalvíkur á leiknum „Þið munið hann Jörund“ eftir Jónas Árnason. Leiksýningar tókust mjög vel og urðu alls 14, var húsfyllir á þeim flestum. Síðasta sýningin var s.I. fimmtudagskvöld 16. febr. Höfundurinn Jónas Árnason mætti á þeirri sýningu. Þar var mjög góð stemning og er myndin tekin þar sem hann syngur lokasöngin með leikurum og áhorfendum. Höfundurinn og leikstjórinn. Fólksfjöldinn 1.12. ’83 Dalvík heldur sínu og vel það Það hefur komið fram í fréttum að íslensku þjóðinni íjölgaði um 1,5% á árinu 1983. Fjölgunin var nálega öll á suðvesturhorn- inu, en á Norðurlandi var hún sáralítil. Á Akureyri t.d. varð engin fjölgun, en hefði átt að vera yfir 200 manns, ef bærinn hefði haldið sínum hlut. En hvernig kom þá Dalvík út úr árinu? Því er fljótsvarað. Dalvík hélt sínu og náði auk þess góðri viðbót annarstaðar frá. En lítum þá á tölurnar. íbúar á Dalvík 1. 12. 1983 (óleiðréttar tölur) 1.375. Á sama tíma 1982 1.341. Fjölgunin er 34 eða 2.54%. Það kemur fram á þjóð- skránni, að dáið hafa á Dalvík 9 manns á árinu 1983, brott hafa flust 45. Hinsvegar fæddust 27 börn og því hafa flust inn í sveitarfélagið 61 maður. Kynferði og aldur Þannig flokkast íbúarnir eftir aldri og kynferði: Alls karlar konur 0- 6 ára 185 98 87 7-14 ára 218 112 106 15 ára 27 12 15 16-18 ára 76 45 31 19-66 ára 738 378 360 67 ára og eldri 131 67 64 Samtals 1.375 712 663 Eins og fyrri daginn eru karlar talsvert fleiri en konur. Skýringin? Jafnan fæðast fleiri drengir en stúlkur og síðan hafa konur meiri tilhneigingu til að flytjast í stóru bæina vegna atvinnumála og eflaust af fleiri ástæðum. Snjóflóð á Skeiðsvatni Snjóflóð hefur runnið úr fjallinu ofan við vatnið Kotsmegin. Það hefur steypst í breiðum straumi niður yfir vatnið og allt yfir að landinu hinumegin. Á leiðsinni helur flóðið brotið upp þykkan ís á vatninu og tekið hann með sér á skriðinu og hlaðið öllu saman, snjó og ís, upp í háar hrannir, sem eru hæstar norður við landið. Flóðið þekur mestan hluta vatnsins og er eins og hafís á að sjá. Það má mikið vera af það tekur ekki sól og vor nokkurn tíma að bræða öll þessi kynstur af samanbörðum ís og snjó. Menn skyldu nú nota tæki- færið, fá sér hæfilega skíða- göngu og sjá þetta náttúru- undur. Gaman verður líka að Sunnudaginn 22. jan. fóru tveir an við Skeið. Er þeir komu upp koma þarna í júnímánuði og sjá skíðamenn upp í Vatnsdal fram- á Skeiðsvatnið gaf á að líta. verksummerki. Séð upp í Vatnsdal - vatnið er bak við hólana. Nýtt fyrirtæki Nýtt fyrirtæki er í undirbúningi hér á Dalvík. Mun fyrirtækið yfirtaka rekstur Sæplasts h/f, sem hefur framleitt plastkör og fleira og er núna starfrækt í Kópavogi. Eftir því sem nærst verður komist (en upplýsingar liggja ekki á lausu hjá undirbúnings- mönnum) þá verður fyrirtækið stofnsett næstu daga, en samningar hafa náðst um kaup- inn og þar með að framleiðslan verður fyrst um sinn fyrir sunnan en í vor flyst hún hingað. Áætlað er að unnið verði á vöktum og þurfi 12-15 manns við rekstur fyrirtækisins. Skíðafélag Dalvíkur Vetrarstarfið Nú er vetrarstarf Skíðafélags ;Dalvíkur í fullum gangi, aðsókn að lyftum hefur verið nokkuð 'góð í janúar og margir trimm- uðu sér til heilsubótar og ánægju í göngubrautinni í Hól- unum. Harðfennið undanfarið virðist hafa dregið úr skíða- iðkun fólks, en reynt hefur verið að rífa upp og mýkja hjarnið með troðaranum bæði í göngu- brautinni og svigbrekkunum og ætti fólk ótraut að halda áfram að stunda skíðin af krafti en láta hjarnið ekki á sig fá. Stundum hefur verið hvartað undan því að lítið pláss sé fyrir hinn almenna skíðamann í brekkunum þegar keppnisfólk er við æfingar eða keppi í fjallinu og því erekki að neitaað það hefur komið fyrir að svig- brautir tækju þar mikið pláss. En það hefur verið reynt eftir föngum að leggja æfinga- og keppnisbrautir í jöðrum troðina brekkna og rhun verða lögð á það áhersla framvegis að hafa í stórsvigi Drengir 8 ára og yngriGunnþór Gunnþórss. 9-10 ára Ágúst Jónsson 11-12 ára Bjarni Jóhannsson Stúlkur 8 ára og yngriHelga R. Traustad. 9-10 ára Sonja Þorsteinsdóttir II-13 ára Kristrún Birgisdóttir 14 ára og eldriIngigerður Júlíusd. í svigi Drengir 8 ára og yngriSveinn Brynjólfsson 9-10 ára Arnar M. Arnþórss. 11-12 ára Jón Áki Bjarnason Stúlkur 8 ára og yngriHelga R. 1 raustad. 9-10 ára Ágústa Bjarnadóttir 11-13 ára Hólmlríður Stefánsd. 14 ára og eldri Ingigerður Júlíusd. ekki var keppt í elstu flokkum drengja. Trimmlandskeppni á skíðum stendur nú yfir og er það keppni milli bæja og héraða á íslandi. Það eina sem þarf að gera til að geta verið þátttakandi er að fara 5 sinnum á skíði 1. klst. í senn fylla út skráningarspjald sem hægt er að fá bæði í skúrnum við göngubrautina og í fjallinu, og hvetjum við alla sem farið hafa 5 sinnum á skíði að skrá sig, og leggja sitt af mörkum í keppninni, til þess að árangur okkar héraðs geti orðið góður. Guðmundur Óskarsson og Baldur Friðleifsson við nýjan göngubrautar- troðara sem þeir smíðuðu og reynst hefur hinn ágætasti gripur. nægar troðnar brekkur fyrir alla sem koma á skíði. Stjórn Skíðafélagsins væri þakklát, ef fólki finnst einhverju ábótavant að það ræði málin strax við starfsmenn í fjallinu eða einhvern úr stjórn félagsins, því þannig getum við best reynt að bæta úr og koma til móts við óskir sem fiestra. Æfingar keppnisfólks og kennslu barna sjá þeir um í vetur Jón Halldórsson og Einar Arngrímsson ogeralltafnokkur hópur við æfingar seinni hluta dags virka daga. Keppnisfólk á vegum félagsins verður mikið á feic.nni í vetur eins og undan- farna vetur. T.d. um síðustu helgi 18.-19. febr. voru kepp- endur á þrem stöðum á landinu á Siglufirði, ísafirði og Akureyri og varð Daníel Hilmarsson sigurvegari Hermannsmótsins á Akureyri, vann þar Hermanns- bikarinn sem keppt er um árlega og kendur er við Hermann Stefánsson íþróttakennara sem nú er látinn. Dalvíkurmót í svigi og stór- svigi var haldið 3.-4. febr. Sigurvegarar urðu þessir: Undanfarnar helgar hefur verið veitt tilsögn í göngu og í meðferð gönguskíða og áburðar og verður eitthvert framhald á þeirri þjónustu og er fólk hvatt til þess að notfæra sér þetta því það er álit þeirra sem reynt hafa, að eftir því sem kunnáttan- eykst, fæst meiri ánægja af skíðaiðkuninni. Nú þegar sól fer að hækka á lofti vonumst við til að sjá sem flesta á skíðum og njóta hollrar útiveru heilnæms fjallalofts og fá á sig hinn eftirsótta brúna lit sem auðveldast fæst í sól og snjó. Skíðafélag Dalvíkur

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.