Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Blaðsíða 26

Stjórnmálatímarit - 01.01.1884, Blaðsíða 26
26. Jón Ólafsson: haför, þá er auðsætt, að fyrir fræði-kreddulega pappírs- gagns-menn, sem hanga í bókstafnum, en hugsa ekki um andann, liggr mjög nærriað segja: hver þau lög, er ríkis- þiug og konungr hafa gefið í sameiningu, þeim hafa ríkisþing og konungr vald og rétt til að breyta eftir vild, þá er þeim þóknast; ið sama löggjafarvald, sem getr gelið lög, hver helzt sem þau eru, getr og breytt þeim eða numið þau úr gildi að vild sinni. — þ>að stoðar ekki, eftir þessari kenningu, þó að einliverjum sé gefinn sérstakr réttr með slíkum lögum, sem hann yrði skertr við breyt- ing þeirra eða afnám, úr því að honum er ekki trygðr þessi réttr í lögunum, hvorki um tiltekinn tíma né um aldr og æfl; því að í þessu, að lionum er á engan hátt trygðr réttrinn, liggr það, að hann hafi eklci neinn rétt sem sjálfstæðr samningsbær málsaðili, heldr sé hann veittr af frjálsum vilja og fullvelíli, þ. e. af náð. Eftir þessu ætti ríkisdagr Dana og konungr í samein- ingu að geta breytt stöðu-lögunum eða numið þau úr gildi með öllu, live nær og á hvern liátt, sem þeim þóknast, án þess að Islendinga samþykki þurfi til, eða þeir hafi nokkurn rétt til að segja annað þar um en: «Konungr og ríkisdagr gáfu! konungr og ríkisdagr tóku! konungs og ríkisdagsins nöfn sé vegsömuð!» Og þessi er kenning sú, sem flutt er við háskólann í Danmörku um landsréttindi vor. A hve völtum fótum landsréttindi vor standi eftir þessu, má öllum augljóst vera. önnur (2.) gr. stöðulaganna hljóðar svo: «Á meðan að Island ekki liefir fulltrúa á ríkisþiuginu, tekr það engan þátt í löggjöfinni um in almennu málefni ríkisins;

x

Stjórnmálatímarit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjórnmálatímarit
https://timarit.is/publication/1254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.