Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 36
Helgarblað 9.–12. desember 201632 Heilsa
ÞITT BESTA VAL Í LITUM
HANNAH NOTAR
LIT 3-65
PALETTE DELUXE
NÚ MEÐ LÚXUS
OLEO-GOLD ELIXIR
GERÐU LIT
AÐ LÚXUS
FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ*
NR. 1 Í EVRÓPU
NÝTT
Börn og lyfjaeitrun
Í Bandaríkjunum er eitt barn meðhöndlað á átta mínútna fresti vegna lyfjaeitrunar
Þ
egar maður er ungur að
aldri, þá gildir einu af
hvoru kyninu, er forvitn
in ein af driffjöðrunum
við að rannsaka heim
inn. Það er gaman að fylgjast með
börnum vaxa úr grasi, sjá þau læra
með tímanum hvernig umhverfi
þeirra virkar, hvaða hættur eru til
staðar og hvernig beri að varast
þær. Við sem eldri erum og höfum
þegar gengið þessa vegferð vitum
að nauðsynlegt er að hafa „vit“ fyrir
þeim yngri og passa að þau fari sér
ekki að voða.
Eðlisávísun
Þetta á við um flesta hluti í umhverfi
okkar. Margir þeirra eru áhugaverð
ir sökum litar, hljóðs eða hreyfingar
og hver kannast ekki við ungbarnið
sem fer að snerta sjónvarpsskjáinn
sem sameinar alla þessa þrjá hluti
í einum. Líklega er það þess vegna
sem það er jafn góð barnapía og
raun ber vitni og er örugglega of
notað í þeim tilgangi víðast hvar. Að
sama skapi eru spjaldtölvur í dag
með snertiskjái og hafa þannig tek
ið forystuna í barnapíuhlutverkinu
á mörgum heimilum með þeirri
vídd sem þær bjóða upp á við að
fanga huga barna okkar.
Allt er þetta eðlilegt út frá því sem
börn veita athygli, en sem betur fer
eru þau ekki stöðugt í slíkum tækjum
og leita því á vit ævintýranna. Fikt
og ýmist brölt, mestmegnis sakleys
islegt en í sumum tilvikum lífshættu
legt. Það á sérstaklega við um lyf sem
þau geta fundið víða á heimilum
fólks, fæðubótarefni og vítamín sem
líta út eins og sælgæti eru klárlega
mjög spennandi fyrir litla einstak
linga að gleypa, því af eðlisávísun
nota börn munninn til að átta sig á
umhverfi sínu.
67 þúsund börn á ári
Við sjáum það reglubundið hér
lendis að börn hafa komist í tæri
við þessi efni og geta þau þá þurft á
bráðri aðstoð að halda. Samkvæmt
rannsóknum t.d. í Bandaríkjunum
eru ríflega 67.000 börn meðhöndl
uð á ári hverju vegna lyfjaeitrunar,
það er eitt barn á 8 mínútna fresti
allt árið um kring. Meira en hálfri
milljón símtala foreldra er svarað
árlega þar sem slíkar áhyggjur eru
viðraðar. Til eru tölur um það hvar
og hvernig þau komast í tæri við slík
lyf, í 40% tilvika hjá afa og ömmu,
30% hjá mömmu, 8% hjá föður og
12% hjá systkinum. Tæplega 30%
eru á gólfinu, 20% í handtöskum og
enn önnur 20% í skúffu sem barnið
kemst í. Þetta eru afar áhugaverðar
tölur og má eflaust heimfæra þær
að einhverju leyti upp á Ísland.
Ýmis fróðleikur
Til eru samtök sem heita
Safekidsworldwide þar sem ýmsan
fróðleik er að finna og leiðbein
ingar varðandi varnir gegn hinum
ýmsu vágestum barna, þ.á.m. lyfja
eitrunum. Þessi samtök tóku við
af National SAFE kids campaign í
Bandaríkjunum sem barnabráða
skurðlæknirinn dr. Eichelberger
stofnaði árið 1988. En honum of
bauð fjöldi þeirra barna sem lét líf
ið vegna aðstæðna sem hefði verið
hægt að koma í veg fyrir. Nokkr
ar ráðleggingar eru afar einfaldar
en geysilega öflugar sem forvörn,
líkt og að geyma lyf og bætiefni þar
sem börn komast ekki að þeim.
Jafnvel þótt það séu engin börn
á heimilinu dags daglega. Læstar
hirslur, háir skápar, ekki í veskjum
og þannig mætti lengi telja.
Það er býsna langt og flókið
mál að telja upp allt það sem get
ur valdið skaða og hvernig, en gott
er að muna að skammtastærðir eru
háðar líkamsþunga í flestum ef ekki
öllum tilvikum. Það er því augljóst
að eitthvað sem er ætlað fullorðn
um sem er 10–20 sinnum þyngri
en barn getur ekki verið hollt, hið
sama á við um bætiefni og vítamín.
Göngum því varlega um þessi efni
og komum sameiginlega í veg fyrir
að þau valdi skaða hjá óvitanum.
Upplýst og opin umræða
Að þessu sögðu má ekki gleyma
þeirri staðreynd að börn eldast og
verða að unglingum og þrátt fyrir
að maður skyldi ætla að þau þekktu
hætturnar eiga sér samt stað lyfja
eitranir slíkra einstaklinga. Ástæðan
er kaldranaleg og sorgleg, en þekkt
er að vísvitandi inntaka til sjálfs
skaða á sér stað í þessum aldurs
hópi. Við sjáum það á Íslandi sem
annars staðar að áföll, vanlíðan, ein
elti og ýmsar aðrar ástæður, jafnvel
ástarsorg, leiða til þess hörmulega
gjörnings að ungur maður eða kona
reynir að svipta sig lífi með lyfjum.
Nauðsynlegt er að sporna við því að
slíkt geti gerst með upplýstri og op
inni umræðu, styðja og aðstoða þá
sem líður illa og beina þeim í réttan
farveg. Hér gildir þó ekki síst sama
reglan og varðandi óvitana að lyf eru
hættuleg, þau eru ætluð ákveðnum
einstaklingi og engum öðrum. Sá
hinn sami ber ábyrgð á öryggi sínu
og þeirra sem í kringum hann eru. n
Teitur Guðmundsson
læknir
Farið varlega
Lyf sem líta út
eins og sælgæti
eru spennandi
í augum ungra
barna.
„Nokkrar ráð-
leggingar eru afar
einfaldar en geysilega
öflugar sem forvörn, líkt
og að geyma lyf og bæti-
efni þar sem börn komast
ekki að þeim.