Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 20.–21. desember 201626 Menning
Ákvað
sextán
ára að
verða
listmálari
Ú
t er komin bókin Kristín Jóns-
dóttir frá Munkaþverá, en
þar er sagt frá listakonunni
og birtar fjölmargar myndir
af verkum hennar. Kristín
G. Guðnadóttir skrifar grein um
listakonuna og birt er viðtal sem
Steinunn G. Helgadóttir tók við hana.
Kristín er spurð um tilurð bókarinn-
ar. „Sumarið 2015 var ég að laga til
í vinnuherbergi mínu niðri í bæ og
gerði mér grein fyrir því að verkin
mín voru í geymslum úti um allan
bæ. Ég hugsaði með mér að kannski
væri best að gefa út bók um verkin
því þannig yrði til yfirlit um þau. Ég
var svo heppin að ekki löngu seinna
sá ég auglýsingu frá Myndlistarsjóði
um styrkveitingar og meðal annars
til útgáfu. Ég fékk styrk og fór af stað
að vinna í bókinni.“
Hvenær fékkstu fyrst áhuga á
myndlist?
„Það er eins og ég hafi fæðst með
áhugann. Þegar ég var lítil og kom á
bæi þá skoðaði ég alltaf myndir og
man enn í dag eftir myndum sem
voru á veggjum á bæjunum í kring.“
Þú kennir þig við Munkaþverá
þar sem þú ólst upp. Af hverju ger-
irðu það?
„Það er til aðgreiningar frá lista-
konunni Kristínu Jónsdóttur sem var
fyrsta konan, ásamt Júlíönu Sveins-
dóttur, til að gera myndlist að ævi-
starfi.
Náfrændi þeirrar Kristínar, Bald-
ur Eiríksson, var kvæntur frænku
minni og var frístundamálari. Hann
átti sinn þátt í því að ég fór út í mynd-
list því hann lánaði mér olíuliti fyrir
jólin þegar ég var fimmtán ára. Mig
langaði til að gefa pabba og mömmu
í jólagjöf eitthvað sem ég hefði mál-
að. Ég hafði aldrei snert á olíulitum
og átti ekki pening til að kaupa þá en
spurði Baldur hvort hann gæti lánað
mér slíka liti og það var alveg sjálf-
sagt. Ég settist í horn í stofunni hjá
þeim hjónum og málaði landslags-
myndir á kassa sem ég gaf foreldrum
mínum.“
Gerði samning við móður sína
Þú tókst ákvörðun um að fara í
myndlistarnám, var það ekkert snúið
á þessum tíma?
„Við vorum fjögur systkinin og
það var ekki einfalt að koma okkur
öllum til mennta, en pabbi og
mamma lögðu mikla áherslu á að
gera það. Mamma hafði sjálf þurft að
hætta námi vegna efnaleysis.
Þegar ég var sextán ára gömul úti
á túni að raka með foreldrum mínum
sagði ég þeim að ég ætlaði að fara til
Reykjavíkur og verða listmálari. Þetta
var þeim meiriháttar áfall. Þau vildu
að ég lyki stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri. Þau reyndu
bæði að telja mig af þessari ráðagerð
minni en ég var þrjósk og ákveðin.
Það endaði með því að við mamma
gerðum samning. Ég skyldi fara suð-
ur og á námskeið til að sjá hvort ég
hefði myndlistarhæfileika. Ég fór til
Reykjavíkur, réð mig þar í vist, vann
fyrir hádegi fyrir fæði og húsnæði og
smá kaupi og fór á myndlistarnám-
skeið. Seinna sótti ég um í Handíða-
og myndlistarskólanum og var þar
í tvo vetur í myndlistar- og teikni-
kennaradeild.
Ég var alltaf ákveðin í því að
fara til útlanda í framhaldsnám.
Á þessum tíma giftist ég Þrándi
„Þegar ég var sext-
án ára gömul úti á
túni að raka með foreldr-
um mínum sagði ég þeim
að ég ætlaði að fara til
Reykjavíkur og verða list-
málari. Þetta var þeim
meiriháttar áfall.
Skjól frá árinu
2002 Gert í minn-
ingu kvenna sem
voru dæmdar fyrir
að bera út börn sín.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn