Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Síða 46

Bókasafnið - 01.07.2017, Síða 46
46 Bókasafnið Menntun og starfsfólk í námi til prófgráðu 1989, 2001 og 2014 Menntun starfsfólks var fjölbreytt. Árið 1989 var upplýsing- um safnað um fjölda starfsmanna og stöðugilda miðað við menntun í bókasafnsfræði, með annað háskólapróf, starfs- menn í háskólanámi, bókavarðamenntun, kennaramenntun frá Kennaraskóla Íslands7, ófaglærða, aðra menntun, og ólaunaða sjálfboðaliða8. Árið 2001 bættist við skjalastjórnar- menntun og árið 2014 bókasafnstæknimenntun. Tafla 8. Starfsfólk í námi til prófgráðu Ár Fjöldi í námi alls Fjöldi launaðs starfsfólks í námi Fjöldi starfsfólks almenningsbóka- safna í námi Hlutfall launaðs starfsfólks almenningsbóka- safna í námi Í námi erlendis 1989 51 7.7% 28 54.9% 10.0% 2001 81 8.5% 26 32.1% 6.2% 2014 130 13.6% 24 18.5 % 2.3% Flest var starfsfólk almenningsbókasafna í námi árið 1989. Þá var hlutfall starfsmanna almenningbókasafna í námi hærra en sem nam hlut þeirra af heildarfjölda launaðra starfsmanna, en nálægt honum ef sjálfboðaliðar voru teknir með í reikninginn. Árið 2014 var hlutfall starfsmanna al- menningsbókasafna í námi um helmingi lægra en sem nam hlut þeirra af heildarfjölda starfsmanna. Þá voru hlutfallslega flestir skjalastjórnarstarfsmenn í námi. Athygli vekur að sífellt hærra hlutfall starfsmanna stundar nám og samtímis voru sífellt færri í námi erlendis 1989-2014 eftir því sem náms- framboð og fjarnám á Netinu jókst hérlendis (sjá töflu 8). Viðtalskönnun 2005 Töluverðar breytingar áttu sér stað frá 1989 til 2001 á fram- boði starfa og vinnuumhverfi. Ljóst var að til skamms tíma réðst þróunin af viðhorfum forstöðumanna á rannsóknar- sviðinu. Ákveðið var að gera viðtalsrannsókn meðal þeirra 2005. Talað var við þrettán valda forstöðumenn sem starfað höfðu lengi sem slíkir og við tvo notendur sem höfðu bæði reynslu af þekkingaröflun af pappírs- og rafrænum miðlum. Ekki er fjallað um notendaviðtölin hér. Spurningarnar tóku mið af kenningunum sem lagðar voru til grundvallar. Þær snerust um breytingar á eðli starfa á rannsóknarsviðinu, framboði starfa og vinnuumhverfi, annars vegar vegna sí- felldra breytinga svo sem lagabreytinga og hins vegar vegna byltingakenndra breytinga þegar nýr miðill og nýtt táknkerfi var þróað fyrir vistun, geymd og miðlun þekkingar. Slíkt hefur örsjaldan gerst í sögu mannkyns. Eftirfarandi var meðal þess sem fram kom í viðtölunum við forstöðumenn. Lagabreytingar og opinber stefnumörkun voru af flestum viðmælendum talin hafa mikil áhrif. Sams konar niðurstöður höfðu fengist erlendis (Myers, 1986; Rowley, 1989; Slater, 1979; Stefanía Júlíusdóttir, 2013a, bls. 270-273; Sutton, 1999). Almennings- og skólabókasöfn voru stofnuð með lagasetningum. Þær voru taldar hafa áhrif á framboð starfa í þessum tegundum bókasafna og einnig á framboð starfa við skjalastjórn. Auk þess voru þær taldar hafa áhrif á hvernig menntunar var krafist af starfsmönnum. Lagabreytingar á sviði skjalastjórnar leiddu gjarnan til þarfar á menntuðum skjalastjórum og hertu eftirliti við skjalastjórn9. Einnig kall- aði sameining stofnana og fyrirtækja, sem kom til í kjölfar lagabreytinga á aukinn aga við skjalastjórn að mati viðmæl- enda. Staðlar voru álitnir mjög mikilvægir við skjalastjórn og skjalavörslu. Þeir virkuðu sem rammi utan um verksviðið og voru leiðbeinandi um hvaða verkefni skyldi vinna þar10. Áhrif byltingarkenndrar tækniþróunar voru talin gríðarleg bæði á bóka- og skjalasöfnum. Netið var notað til sam- skipta innan stofnana sem út fyrir þær, bæði innanlands og milli landa. Á einu bókasafni hafði Netið dottið niður eftir hádegi. Þá lagðist starfsemin af. Senda þurfti starfsfólk heim. Það var óstarfhæft án Netsins. Í sumum bókasafnanna voru starfsmenn sjaldan beðnir um aðstoð við leitir í rafrænum gagnasöfnum en þegar það gerðist var safngestum kennt á leitarkerfið í því skyni að gera þá sjálfbjarga við leitirnar. Það stuðlaði enn frekar að því að starfsfólk hafði minna að gera við upplýsingaöflun fyrir safngesti í rafrænum gagnasöfnum. 7. Kennarar frá Kennaraháskóla Íslands töldust með þeim sem höfðu annað háskólanám en bókasafnsfræði eða skjalastjórnarmenntun. 8. Margir þeirra höfðu ýmis konar menntun á öllum skólastigum, jafnvel doktorspróf. 9. Dæmi: Lög um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985, sem ollu á sínum tíma straumhvörfum á sviðinu, Upplýsingalög nr. 50/1996, Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000, og Stjórnsýslulög nr. 37/1993. 10. Dæmi: Staðlarnir ÍST-ISO 15489 Upplýsingar og skjalfesting, Skjalastjórn I og II, ÍST-BS Stjórnkerfi upplýsingaöryggis, ÍST-ISO Heimildaskráning og ÍST-EN-ISO 9000 gæðastjórnarstaðlar voru helst nefndir.

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.