Kvennaframboðið - 01.05.1982, Blaðsíða 20
-
Á undanf'örnum árum hafa fjölmiðlar af og til
fjallaö um ofbeldi i fjölskyldum hér á landi, sér-
lega um ofbeldi karla gagnvart eiginkonum og
sambýliskonum. Opinberir aðilar sem spurðir
hafa verið um umfang þessa oíbeldis hafa verið
langt frá þvi að vera á einu máli um hve algengt
það sé. Litil viöbrögð hafa komiö frá almenningi
i framhaldi af þessari umfjöllun. Viðbrögð yfir-
valda og almennings eru I samræmi við það sem
gerðist i fyrstu i öðrum löndum, þegar farið var
að ræöa um hve mikiö pg alvarlegt ofbeldi hlyti
að vera innan fjölskyidna þar. Þetta er við-
kvæmnismál og margir gera sér ekki Ijóst hve al-
varlegar barsmiðar og ofbeldi af öðru tagi á sér
stað i skjóli friöhelgi einkalifsins. Konur sem
beittar eru ofbeldi af mönnum sinum eru oft ein-
angraðar og þora ekki að leita aðstoðar eða ræða
við aðra um eríiðleika sina vegna niðurlægingar
og af ótía við refsingu mannsins ef upp kemst.
Ofbeldið alls staðar
1 Brétlandi, Bandarikjunum
og i flestum löndum Vestur-
Evrópu hefur ofbeldi i fjölskyld-
um veriö mikið til umræðu siðan
i kringum 1970. Sérlega á þetta
við um ofbeldi karla gagnvart
fjölskyldum sinum, konum og
börnum.
Kvennahreyfingar i þessum
löndum hafa komið konum sem
orðið hafa fyrir ofbeldi til að-
stoðar á margvislegan hátt.
Þær hafa barist fyrir réttlátari
meðferð yfirvalda á kærum og
aðstoðarbeiðnum frá konum og
aðstoðað konur við málsókn.
Konur hafa einnig komið á fót
eigin ráðgjafarstöðvum fyrir
konur sem orðið hafa fyrir
nauðgunum og barsmiðum og
opnað hús þar sem konur geta
leitaðskjólsmeðbörnsin, þegar
þær neyðast til að flýja heimili
sin undan ofbeldi eiginmanna og
Takmarkið er:
Hjálp
vegna sinnuleysis yfirvalda
þegar þær kæra eða leita
aðstoðar. Þessi hús eru nú köll-
uð kvennaathvörf og skipta þau
hundruðum i nágrannalöndum
okkar. 1979 voru kvennaathvörf
i Bretlandi, Hollandi, Vestur-
Þýskalandi, Sviss, Noregi
Finnlandi, áelgiu, Ka’nada,
Frakklandi, Ástraliu, Nýja-Sjá-
landi og Bretlandi. 1981 voru at-
hvörfin a.m.k. 100 i Kanada, 250
i Bandarikjunum og 200 i
Bretlandi. Danmörk hefur nú
bæst i hópinn, en þareru athvörf
a.m.k. i Kaupmannahöfn og Es-
bjerg. Alls staðar endurtekur
sama sagan sig. Þegar opnaður
er neyðarsimi fyrir konur sem
verða fyrir öfbeldi eða athvarf
tekur til starfa kemur i ljós
gifurleg þörf fyrir aðstoð, at-
hvörfin yfirfyllast og mönnum
verður ljóst að barsmiðar og
annað ofbeldi innan veggja
heimilanna er ótrúlega útbreitt.
Með þvi að konur hafa tekið að
berjast gegn ofbeldi i fjöl-
skyldum hefur hulu verið svipt
af þessu máli og nú er löngu
ljóst að hér er um mjög um-
fangsmikið og alvarlegt mál að
ræða.
Eftir Guðrúnu Kristinsdóttur