Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2015, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 12.03.2015, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. mars 2015 Verkefnið fengið mjög góðar viðtökur og er nokkuð ljóst að samstaða er innan fagaðila á svæðinu um að sporna eins og hægt er gegn brotthvarfi úr fram- haldsskólum. Með þátttöku í verkefninu fá fagaðilar í hendur efni sem nota má til þess að inn- leiða aðferðina í þeirra vinnuum- hverfi,“ segir Særún Rósa Ást- þórsdóttur, verkefnastjóri hjá MSS, en Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er aðili að Evr- ópuverkefninu CAPWIN. Verk- efnið er unnið í samstarfi 7 landa og snýr að innleiðingu aðferða sem draga eiga úr brotthvarfi í skóla. Aðferðunum er ætlað að styrkja fagfólk í vinnu sinni með brotthvarfsnemendum og gefa nemendum færi á að virkja styrkleika sína um leið og þeir skoða eigin ákvarðanatöku. Nýlega hófst svokallað reynslu- tímabil eða ,,testing phase“ þar sem aðferðir og verkfæri gegn brotthvarfi eru kynntar fagaðilum á svæðinu. Tímabilið nær yfir 6 vikur og hlýtur fagfólk þjálfun í aðferð Robert Michit sem þróuð hefur verið í franska skólanum Arc en Ciel. Hópurinn sem tekur þátt í reynslutímabilinu samanstendur af náms- og starfsráðgjöfum frá MSS, grunnskólum, Fjölbrauta- skóla Suðurnesja og hjá Keili, fé- lagsráðgjöfum hjá félagsþjónustu sveitarfélaga auk félagsráðgjafa hjá Samvinnu, starfsendurhæfingu innan MSS. Markmið MSS með verkefninu er að koma á samstarfi við aðila sem koma að brotthvarfi á Suður- nesjum. Athygli fagaðila innan skólasamfélagsins hefur undan- farið beinst að brotthvarfsvanda og ráðist hefur verið í margvíslegar aðgerðir til þess að draga úr brott- hvarfi og ekki síst að fyrirbyggja vandann. Þar vill MSS leggja lóð sín á vogarskálarnar sem fræðsluaðili á Suðurnesjum og taka þannig þátt í að efla menntunarstig, árangur og ekki síst vellíðan einstaklinga sem hafa átt í erfiðleikum með nám og námsástundun. ■■ Evrópuverkefnið CAPWIN hjá MSS fer vel af stað: Fagfólk sameinast gegn brotthvarfi ■XBæjarráð Sandgerðis hefur falið fræðslu- og menningarfulltrúa að rita formönnum Knattspyrnufélagsins Reynis, Kvenfélagsins Hvatar, Björg- unarsveitarinnar Sigurvonar, Golfklúbbs Sandgerðis, Lionsklúbbs Sand- gerðis og Listatorgs bréf þar sem kannað verði hvort félögin séu tilbúin til að taka að sér undirbúning og framkvæmd Sandgerðisdaga 2015, annað hvort ein sér eða í samvinnu við önnur félög í bænum. Í minnisblaði ferða- og menningarfulltrúa um undirbúning og fram- kvæmd Sandgerðisdaga 2015 kom fram að Kvennakór Suðurnesja sjái sér ekki fært að taka að sér undirbúning hátíðarinnar í ár. Atvinnu-, ferða- og menningarráði Sandgerðis er falið að vinna úr svörum formanna félaganna þegar þau berast og leggja tillögur fyrir bæjarráð. Vilja endurvekja dag félagasamtaka í Vogum ■XFrístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga hefur áhuga á að endurvelja dag félagasamtaka í Vogum og telur mikilvægt að ræða við fé- lögin og kanna hug þeirra til slíks verkefnis. Dagur félagasamtaka getur verið gott tækifæri fyrir félagasamtök að kynna starfsemi sína og sækja nýja félaga. Starf félagasamtaka er mikilvægt í hverju samfélagi og auðgar það. Frístunda- og menningarnefnd telur að gott væri að stefna að slíkum degi á haustdögum 2015. Bæjarstjórn Voga tekur undir með nefndinni og samþykkti fundargerð nefndarinnar. -fréttir pósturX vf@vf.is ■XLíkanið af Goðafossi og þýska kafbátnum U300 er komið á byggðasafnið á Garðskaga. Suðurnesjamenn geta því notið þess að skoða líkanið með eigin augum en fjallað var um smíðina í Víkurfréttum og Sjónvarpi Víkurf- rétta á dögunum. Það voru þeir Ásgeir Hjálmarsson og Friðrik Friðriksson sem unnu að líkaninu í sameiningu. Friðrik smíðaði Goðafoss og kafbátinn en Ásgeir gerði líkan af byggðinni í Garði og staðsetti Goðafoss í Garðsjónum, þar sem hann var skotinn niður af þýska kafbátnum fyrir rétt liðlega 70 árum. Byggðasafnið á Garðskaga verður opið um helgina á sérstakri safnahelgi á Suðurnesjum en líkanið verður áfram á Garðskaga og verður einnig hægt að njóta þess að skoða það þar næsta sumar. Hver vill taka að sér Sandgerðisdaga? Goðafoss kominn á Garðskaga Vogar Stóru- Vogaskóla Tjarnargötu 2. Laugardagur kl. 13:00 - 14:30. Lestrarfélagið Baldur. Bókasafnið í Stóru-Vogaskóla. Sýning á ýmsum munum í eigu Vogabúa sem tengjast hinum Norðurlöndunum og norrænu samstarfi. Gestir eru hvattir til að hafa meðferðis muni og sýna þá á staðnum. Tónleikar: Þorgerður Ása Aðalsteins- dóttir vísnasöngkona syngur og leikur sönglög frá Norðurlöndum. Á efnisskrán- ni eru m.a. lög eftir Barböru Helsingius, Bergþóru Árnadóttur og Olle Adolphson. Álfagerði Akurgerði 25. Laugardagur kl. 15:00. Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar minnist aldar- afmælis rithöfundarins Jóns Dan Jónssonar. Hann var fæddur á Vatnsleysuströnd og í mörgum af bókum hans má þekkja sögusvið úr bernskusveit hans. Sagt verður frá Jóni og lesið upp úr nokkrum ritverkum hans. Allir velkomnir. SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 14. -15. MARS ÓKEYPIS Á ÖLL SÖFN VERIÐ VELKOMIN Á SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM DAGANA 14. -15. MARS PANTONE 3135 PANTONE 4505 C 100 M 0 Y 16 K 11 C 0 M 15 Y 70 K 50 Leturgerð: Letter Gothic STD Bold Sandgerði Bókasafn Sandgerðis Skólastræti, opið laugardag kl. 13:00 - 16:00. Kynning á Comenius Regio verkefni á vegum Sandgerðisbæjar og stofnanna í bænum. Verkefnið er unnið í samstarfi við Mänttä-Vilppula, bæjarfélag í Finnlandi. Verkefnið snýst um gerð námskrár í mynd- og handmennt og náttúrufræði og tengingu skólastiga og stofnanna í bæjarfélögunum á sviði náttúrurannsókna og myndlistar. Þátttakendur í Sand- gerðisbæ eru Grunnskólinn í Sandgerði, Leikskólinn Sólborg, Þekkingarsetur Suðurnesja, Náttúrustofa Suð-vesturlands, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum og Lista- torg. Listatorg Vitatorgi. Opið alla daga vikunnar frá 13:00 - 17:00. Í Gallerýi Listatorgs er heill ævintýraheimur af margskonar handverki. Sýning í húsinu: „Dúkkur frá síðustu öld“ verður laugardag og sunnudag frá 13 -17. Um er að ræða sýningu á dúkkum og fylgihlutum frá síðustu öld sem heimamenn og aðrir velunnarar hafa lánað til Listatorgs. Þekkingarsetur Suðurnesja Garðvegi 1. Opið laugardag og sunnudag 13:00 - 17:00. Sjá thekking- arsetur.is Tvær sýningar í húsinu: Náttúrugripasýning er á efri hæð Þek- kingarsetursins með yfir 70 uppstoppuðum dýrum. Þar má einnig sjá ýmis lifandi sjávardýr og jafnvel koma við þau. Gaman er að flétta fjöru eða tjarnaferð saman við heimsókn á náttúrusýninguna. Þá er smádýrum safnað í fjörunni og þau svo skoðuð í víðsjá á sýningunni. Heilmikinn fróðleik er að finna í bókakosti Þekkingar- setursins sem staðsettur er á Náttúrusýningunni. Heimskautin heilla er samvinnuverk- efni Sandgerðisbæjar og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum og fleiri aðila. Sýningin er um franska heim- skautafarann Jean-Baptiste Charcot, einn merkasta landkönnuð síðustu aldar en hann fórst með skipi sínu Pourquoi-pas? og áhöfn við Mýrar 1936. Sýningin er í tveimur nýjum sölum þar sem líkt er eftir brú og káetu í skipi frá tíma heimskautafarans. Einkasafn poppstjörnu Opið laugardag og sunnudag kl. 11:00 - 18:00. Sjá rokksafn.is Guðlaugur H. Guðlaugsson Löggiltur fasteignasali Halldór Magnússon Löggiltur fasteignasali Haraldur Freyr Guðmundsson Sölumaður Þverholt 11 – 230 Reykjanesbær Glæsilegt einbýli á vinsælum stað í Keflavík. 4-5 herbergja samtals 178,1m2 þar af bílskúr 40m2. Eignin er mikið endurnýjuð (nánari uppl í síma). 39.000.000,- Pósthússtræti 3 – 230 Reykjanesbær Glæsilegt íbúð á 5. Hæð í 7 hæða fjölbýli Íbúðin er samtals 101,6m2 3ja herbergja Lokaðar svalir með útsýni yfir Reykjanesbæ 30.000.000,- Þrastartjörn 9 – 260 Reykjanesbær 5 herbergja parhús með bílskúr í Njarðvík. Eignin er samtals 160m2 þar af bílskúr 37,7m2. Mikið vönduð eign á flottum stað, nálægt skóla. 34.900.000,- Sunnubraut 38 – 230 Reykjanesbær 200m2 hæð á frábærum stað í Keflavík. 5 herbergja efri sér hæð ásamt 60m2 bílskúr. Stutt er í allar tómstundir og skóla. 26.000.000,- Hjallavegur 15 – 260 Reykjanesbær Íbúð á efri hæð í fjórbýli í Njarðvík. 4ra herbergja samtals 104m2. Nálægt miðbænum, stutt í tómstundir. 18.800.000,- Efstaleiti 67 – 230 Reykjanesbær Skemmtilegt endaraðhús í vinsælu hverfi. Eignin er samtals 129,4m2 þar af bílskúr 31,5m2. Stutt í skóla, verslanir, íþróttahús og sundmistöð. 29.000.000,- Stuðlaberg - Hafnargata 20 - 230 Reykjanesbæ - Sími 420 4000 - www.studlaberg.is 420 4000 s t u d l a b e r g . i s Hópur Suðurmesjamanna sem vinnur að verkefinu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.