Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 6
6 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR PÁLL KETILSSON RITSTJÓRNARPISTILL Helguvíkurmengun og íbúakosning Það er óhætt að segja að frétt­ irnar úr Helguvík hafi verið fjöl­ breyttar að undanförnu og þessi staður sé búinn að vera í eldlínu umræðunnar. Kísilverið Thor­ sil sem íbúakosning stendur um gaf það út í auglýsingu í Víkurf­ réttum að meðallaun yrðu um 600 þús. kr. og lofar því að starfa í sátt við íbúa og umhverfi á Reykjanesi um ókomna tíð. Þar segir einnig að fyrirtækið hafi valið Reykjanesbæ vegna jákvæðra viðhorfa bæjaryfirvalda, traustra innviða á svæðinu, aðgangs að hæfu vinnuafli og vel staðsettrar hafnarlóðar fyrir starfsemi sína. Íbúakosningu um málefni Thorsils lýkur 4. des. en þátttaka í rafrænu kosningunni er afar lítil. Þegar tveir dagar voru eftir af henni höfðu aðeins um 600 manns farið á netið og tekið þátt eða um 6% íbúa en um 10 þúsund manns eru á kjörskrá í Reykjanesbæ. Bæjarstjórinn í Reykja­ nesbæ vekur athygli á þessu í pistli í vikunni, segir kjörsókn óheppilega dræma og að það skjóti skökku við að af þeim 2800 manns sem rituðu nafn sitt á undirskriftalistana, þar sem kosningar var krafist, skuli aðeins 600 af þeim hafa tekið þátt. Fyrir þessa kosningu var ljóst að hún myndi engin áhrif á fyrirætlanir bæjaryfirvalda sem hafa alltaf sagt að hún yrði aldrei meira en ráðgefandi og í raun marklaus því ákveðið hafi verið að breyta ekki neinu í ferlinu varðandi kísilver Thorsil. Því hafa margir furðað sig á þessum látum og veseni mót­ mælenda. Hitt er svo annað að hópurinn hefur vakið athygli á mengunarþættinum sem hann telur að sé ekki að fullu skýr þó svo Umhverfisstofnun hafi gefið grænt ljós. Það hafi ekki verið nógu grænt. Í nýrri frétt okkar í Víkurfréttum kemur fram að kísilverin bæði í Helguvík skipuleggi sjálf meng­ unarmælingarnar og velji eftirlitsaðila sem reyndar Umhverfisstofnun þarf að samþykkja. Einhverjum kann að þykja þetta full frjálslegt og í frétt VF er viðtal við bónda í Hvalfirði sem lýsir reynslu sinni af mengunarmálum þar vegna nærveru við álver. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa farið fram á það að vera virkur aðili í eftirliti á vöktuninni og þau (ásamt Umhverfisstofnun og kísilverunum) verða með fulltrúa í samráðshóp þar sem farið verður yfir niðurstöður mælinga. Hvernig sem því líður þá er það ljóst að þetta mál þarf að að vera á hreinu og nokkuð víst, að jafnvel hörðustu fylgjendur starfseminnar í Helguvík vilja að þessi þáttur verði í fullkomnu lagi og að engu verði til slakað í þeim efnum. AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 vf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, dagnyhulda@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is og kylfingur.is ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN: AUGLÝSINGASTJÓRI: UMBROT OG HÖNNUN: AFGREIÐSLA: PRENTVINNSLA: UPPLAG: DREIFING: DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA: Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug- lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju- dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Fjölbreytileikinn er allsráð­andi í Myllubakkaskóla þar sem einn þriðji hluti nemenda er af erlendum uppruna. Sam­ tals tala nemendur skólans 25 tungumál. „Hér eru töluð mörg tungumál og það er dásamlegt. Hjá okkur er mikil fjölbreytni sem gefur lífinu lit,“ segir Bryn­ dís Guðmundsdóttir, skólastjóri Myllubakkaskóla. Í skólanum eru börn sem eiga upp- runa sinn að rekja til Rússlands, Póllands, Bandaríkjanna, Kanada, Indlands, Kirgistan, Taílands og fleiri landa. Flestir erlendu nem- endanna eru af pólskum uppruna. Þegar nemendur af erlendum upp- runa hefja nám við Myllubakka- skóla er haldinn fundur með foreldrum þar sem túlkur er við- staddur. Svo er nemendum sýndur skólinn og farið er yfir helstu áherslur í skólastarfinu. Nemendur eru meira og minna inni í sínum bekk en aðlögun er einstaklings- miðuð. Lögð er áhersla á kennslu í orðaforða til að nemendur geti bjargað sér. „Um daginn hafði kennari til dæmis útbúið möppu með myndum af öllum í bekknum og kveðjum fyrir nýjan nemanda sem hann fékk áður en hann hóf fyrsta skóladaginn. Þá þekkti hann bekkjarfélagana í sjón og var fljótari að læra nöfnin. Núna er þessi nem- andi orðinn einn af hópnum þrátt fyrir að hafa komið til okkar fyrir aðeins nokkrum vikum.“ Bryndís segir börnin í Myllubakkaskóla vön því að í skólanum séu nemendur af ýmsum uppruna og því sé það hið eðlilegasta mál. Mörg barnanna eru fljót að læra íslensku en eins og gengur og gerist eru þau misfljót. „Sum læra íslensku á mjög stuttum tíma þegar önnur taka lengri tíma, tungumál liggja misvel fyrir fólki. Nemendum af er- lendum uppruna gengur mörgum mjög vel í námi og ná að aðlagast íslensku samfélagi vel.“ Bryndís segir afar mikilvægt að bera virð- ingu fyrir móðurmáli barnanna. Nú er til skoðunar hjá Reykjanesbæ að bjóða nemendum af erlendum uppruna upp á kennslu í móður- máli sínu. „Því betri sem börn eru í sínu móðurmáli því betur gengur þeim að læra ný tungumál.“ Á dögunum voru fjölmenningar- dagar í Myllubakkaskóla þar sem allir nemendur teiknuðu sína fána og kynntu sína menningu. „Það er mjög gaman fyrir nemendur af erlendum uppruna að kynna sína menningu og sömuleiðis fyrir ís- lensku nemendurna að læra um menningu annarra. Við erum öll hluti af þessu samfélagi og hjálp- umst að við að láta öllum líða vel.“ Aðspurð segir Bryndís ólíkan upp- runa nemenda alveg örugglega gera kennsluna meira krefjandi fyrir kennara, þeir þurfi að vera sveigjanlegir og stunda einstakl- ingsmiðaða kennslu. Starfið gangi þó mjög vel enda séu kennararnir komnir með mikla reynslu. „Þeir eru svo færir að þetta virðist ganga eins og smurð vél.“ Fjölbreytileikinn ráðandi í Myllubakkaskóla í Keflavík. Einn þriðji hluti nemenda af erlendum uppruna: Nemendur tala 25 tungumál Þessir nemendur sungu afmælis- sönginn á pólsku fyrir nem- anda frá Krigistan. Nemendur í Myllubakka- skóla eru af fjölbreyttum uppruna. Þeirra á meðal eru nemendurnir á myndinni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.