Fréttablaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 39
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
2. maí 2018
Tónlist
Hvað? MayDay! 02.05!
Hvenær? 20.00
Hvar? Húrra, Tryggvagötu
DJ DOMINATRICKS, AXIS
DANCEHALL, Bervit, Geisha
Cartel, TERATOMA!!!, MIO
DIOR(Kaupa Dót) & Sigmund.
Viðburðir
Hvað? Bókakaffi | Sólveig Ásta
Sigurðardóttir fjallar um innflytjendur
í íslenskum bókmenntum
Hvenær? 20.00
Hvar? Borgarbókasafnið Gerðubergi
Á bókakaffi í maí fjallar Sólveig
Ásta Sigurðardóttir um birtingar-
myndir innflytjenda í íslenskum
bókmenntum. Hvað getur íslensk-
ur skáldskapur sagt okkur um
fjölmenningu á Íslandi? Hvernig
geta bókmenntarannsóknir lagt til
gagnrýninnar umræðu um stöðu
innflytjenda í íslensku samfélagi?
Hvað? Bróderað landslag
Hvenær? 12.00
Hvar? Safnahúsið, Hverfisgötu
Í erindi sínu mun Harpa fjalla um
sérkennileg myndverk frá árunum
1914-1956, þar sem himinn og vatn
er málað en landslag saumað út
með listsaumi. Verkin kallast á við
þá landslagsdýrkun sem kom fram
hjá íslenskum listmálurum á sama
tíma og tengist sjálfstæðisbaráttu
og styrkingu á sjálfsmynd þjóðar
sem rís á þessum árum til fullveldis
og síðar til fulls sjálfstæðis. Sýning
á nokkrum slíkum verkum verður
opnuð í Safnasafninu um miðjan
maí.
Hvað? Menning á miðvikudögum |
Gjörningur um skírdreymi
Hvenær? 12.15
Hvar? Gerðarsafn, Kópavogi
Miðvikudaginn 2. maí kl. 12.15
verður fluttur gjörningurinn
Embassy of Lucid Dreaming eftir
Mariu-Magdalenu Ianchis, meist-
aranema í myndlist. Í gjörningnum
birtist óræður heimur skírdreymis
þar sem sá sofandi er meðvitaður
um að hann dreymi og getur breytt
framvindu drauma sinna. Gjörning-
urinn fer fram á ensku og er þátt-
taka gestum að kostnaðarlausu.
Sýningar
Hvað? Mokkaland
Hvneær? 09.00
Hvar? Mokka-Kaffi
Andvaka, þunglynt, öfundsjúkt
eða dautt fólk flækist um í litríkum
heimi. Tilgangsleysið er algjört
og hvorki ástin né ríkidæmi geta
bjargað þeim. Myndlistarsýning
Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur
Hvað? Ex libris | Sýning á bókmerkjum
Hvenær? 10.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Tryggvagötu
Í dag eru bókmerki ekki algeng
sjón, en áður fyrr voru slík skraut-
merki hönnuð af listafólki og sett
innan á bókakápur til að tilgreina
eiganda þeirra. Óhætt er að segja
að um er að ræða menningarverð-
mæti sem lítið hefur farið fyrir
og gaman er að kynna betur fyrir
yngri kynslóðinni. Það þótti því
kjörið að fá nemendur við Mynd-
listaskólann í Reykjavík til að
spreyta sig á hönnun bókmerkja
með skírskotun í hefðina en um
leið með skýra tengingu inn í
nútímann. Nemendum var jafn-
framt gert að setja fram hönnunar-
ferli sitt með skissum og myndum
sem gefa til kynna hvaðan hug-
myndir þeirra eru sprottnar.
Hvað? Eitt leiðir af öðru og öðru og
öðru – Ásgeir Skúlason
Hvenær? 10.00
Hvar? Bókasafn Mosfellsbæjar
Ásgeir er fæddur árið 1984 og býr
í Mosfellsdal. Hann útskrifaðist
úr myndlistardeild Listaháskóla
Íslands árið 2013 og er þetta
fyrsta einkasýning hans. Myndlist
Ásgeirs einkennist af þráhyggju-
kenndri endurtekningu með
aðferðir og efnivið en öll verkin á
sýningunni eru unnin úr PVC-raf-
magnseinangrunarteipi. Um ferlið
segir Ásgeir: „Ég ræð ekki við mig,
þegar þráhyggjan kemur yfir mig
verð ég að gera tilraunir, ég verð að
halda áfram sama hver endanleg
útkoma verður, burtséð frá því
hvort mér þyki hún góð eða slæm.
Verkin á sýningunni eru afrakstur
þessara tilrauna og þróunar.“
Sýningu Ásgeirs lýkur 4. maí og er
aðgangur ókeypis.
Hvað? Hilmar Hafstein Svavarsson
Hvenær? 16.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Hilmar hefur tekið þátt í sam-
sýningum en þetta er fyrsta
einkasýning hans og spannar 60
ára feril myndlistarmanns. Elstu
myndina á sýningunni málaði
hann 12 ára gamall, önnur var í
vinnslu í fimmtíu ár. Hilmar vann
við loftskeytastörf og verslunar-
rekstur um ævina en stundaði
alla tíð myndgerð. Hann tók
fjöldann allan af námskeiðum í
Myndlista- og handíðaskólanum
og Myndlistaskóla Kópavogs,
auk þess sem hann sótti einka-
tíma hjá listamönnum á borð við
Guðmundu Andrésdóttur, Sigfús
Halldórsson, Hring Jóhannesson
og Sverri Haraldsson. Listfengi
Hilmars fær einnig að njóta sín í
fluguhnýtingum. Allar myndirnar
á sýningunni eru til sölu.
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
BYRJAR Í DAG
KL. 10:00
Fyrstir koma
fyrstir fá;)
SUMAR ÚTSALA
Af tölvuskjám
Allt að20%Afsláttur
Af fart
ölvum
Allt að
80.000
Afslátt
ur
Fyrir upphæð all
t a
ð
35
0.
00
0
KA
UP
IR
N
ÚN
A -
GR
EIÐIR 1. ÁGÚST 2018SU
MA
RGREITT 2.95%
lántökugjald og greiðslu- og tilk
ynn
ing
ar
gj
al
d
kr
. 1
95
Af yfir
1000
vörum
Allt að
90%
Afslátt
ur
2. m
aí 2018 • Útsölutilboð gilda 2-31. m
aí eða m
eðan birgðir endast. B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
SUMAR
10:00
TÖLVUTEKS HEFST
ÚTSALA
Í DAG 2. MAÍ
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21m i ð V i K U D A g U R 2 . m A í 2 0 1 8
0
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
4
-5
E
7
4
1
F
A
4
-5
D
3
8
1
F
A
4
-5
B
F
C
1
F
A
4
-5
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K