Fréttablaðið - 10.05.2018, Síða 30

Fréttablaðið - 10.05.2018, Síða 30
Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Einar Bárðarson, eigandi KIA Gullhringsins, segir slysið í fyrra hafa breytt öryggisstöðlum allra keppna á landinu. MYND/SIGTRYGGUR ARIEinar Bárðarson athafnamaður dróst inn í hjólreiðasportið fyrir tilviljun þegar Logi Geirsson einkaþjálfari sendi hann út að hjóla sér til heilsubótar. Áður en hann vissi af var hann kominn í keppnislið. „Eitt af því sem mig langaði að prófa var að hjóla Reykjanes­ brautina endanna á milli og þegar ég réðst í það var eftir því tekið. Í kjölfarið komu þeir Hafsteinn Ægir Geirsson, margfaldur Íslands­ meistari, og Pétur Þór Ragnarsson sem þá var á kafi í sportinu og buðu mér að vera með þeim í liði í Bláa­ lónsþrautinni,“ segir Einar. „Mér fannst það galin hugmynd en þess vegna sló ég til. Svo hjólaði ég með þeim, algjörlega óreyndur, þessa erfiðu braut og við lentum í öðru sæti í liðakeppninni. Þá varð ekki aftur snúið.“ Hugmyndin að KIA Gullhringn­ um kviknaði í framhaldinu og fór fyrsta keppnin fram í lok sumars 2012. Um 90 keppendur tóku þátt. Árið 2015 voru keppendur orðnir um 800 talsins. Stærsta hópslys greinarinnar Í fyrra varð alvarlegt slys í keppn­ inni þegar keppandinn Hörður Ragnarsson fór með framdekk ofan í rauf á rimlahliði við Brúará og kastaðist átta metra. Þetta leit illa út en auk Harðar slasaðist fjöldi annarra keppenda sem féllu hver um annan þveran á miklum hraða. Einar segir hræðilega óvissu hafa einkennt fyrstu klukkutímana eftir slysið. „Ég hugsa til þessa kvölds með blendnum tilfinningum. Ég er stolt­ ur af viðbragðsaðilum okkar og hversu fljótt allt teymið var komið á slysstað og hugsa með þakklæti til keppendanna sem biðu fyrir aftan hina slösuðu úti í vegkanti. Kepp­ endur sýndu ótrúlega yfirvegun og æðruleysi í aðstæðum sem enginn þeirra hafði staðið frammi fyrir áður,“ segir Einar. Taldi keppandann af „Þetta leit svo illa út fyrstu klukku­ tímana eftir slysið. Ég var farinn að búa mig undir að Höddi væri hrein­ lega ekki á lífi. Það bjartasta sem ég leyfði mér að vona var að hann væri á lífi en yrði að glíma við varanleg meiðsl og fötlun,“ segir Einar. Meiðsl Harðar reyndust sem betur fer minni en útlit var fyrir í fyrstu. Einar segir slysið hafa lagst þungt á hann sjálfan sem ábyrgðaraðila keppninnar. Eftir slysið setti hann sig í samband við þá sem slösuðust. „Það var auðvitað erfitt en mikil­ vægt að hitta þau og fá þeirra sýn. Allir hafa náð sér betur en maður þorði að vona en ég get ekki ímyndað mér að bataferlið andlega og líkamlega hafi verið auðvelt.“ Vaknaði upp um nætur „Það er ekki hægt að fara í gegnum svona án sjálfsásakana og ann­ arra hugsana sem ég varla kann að nefna. Í marga mánuði vaknaði ég upp um nætur með andköfum og fannst fólk enn þá liggja slasað á vettvangi og að allt væri óleyst,“ segir Einar. Hann fékk síðar stað­ fest af sérfræðingi að hann þjáðist af áfallastreituröskun. „Ég gaf mér bara ekki leyfi til að huga að þeim þætti fyrr en kannski alltof seint. Hugur minn var hjá þeim sem slösuðust og framtíð keppninnar.“ Hann hafi íhugað að slá keppnina alfarið af en snerist hugur. Endurskipulagði keppnina „Áhrifafólk í greininni vildi meina að það hefði neikvæð áhrif á hjól­ reiðasportið í heild ef þessi keppni hætti. Læra þyrfti af atvikinu og efla keppnishald enn frekar. Ég ákvað að taka þeirri áskorun,“ segir Einar. „Við endurskoðuðum keppnina frá A til Ö. Við fengum Ólaf Guð­ mundsson, tæknistjóra EuroRAP/ FÍB, á Íslandi sem óháðan aðila til að taka út allar leiðirnar. Þá erum við í góðu samstarfi við Vega­ gerðina og lögregluna og munum í ár loka leiðum á svæðinu. Þá köllum við breiðari hóp stjórnenda inn í mótið. Búið er að keyra allar leiðirnar og mynda í HD­gæðum. Vegagerðin fer yfir það með okkur og eftir nauðsynlegar úrbætur verða leiðirnar myndaðar aftur og settar á netið. Þá geta keppendur kynnt sér aðstæður,“ segir Einar. Hann finni fyrir jákvæðu viðhorfi til keppninnar. „Ég vissi ekkert hvernig þessu yrði tekið í ár en ég finn fyrir miklum velvilja og skráningarnar eru síst færri en á sama tíma í fyrra. Þetta slys hefur bætt öryggis­ kúltúr í allri greininni og aðstand­ endur allra keppna hafa tekið allt til endurskoðunar hjá sér. Það er aldrei hægt að koma í veg fyrir slys en það er hægt að ganga þannig frá hlutum að þeir sem hjóla geti verið vissir um að brugðist verði við verstu aðstæðum, komi þær upp, hratt og örugglega.“ Slysið hefur eflt KIA Gullhringinn Alvarlegt slys stöðvaði stærstu götuhjólakeppni landsins í fyrra. Einar Bárðarson, eigandi keppninnar, segir tímann á eftir hafa verið helvíti sem tók tíma að vinna úr. ÁRMÚLI 40 - 517 4600 100% Þjónusta - Veldu topp merki! WWW.MARKID.IS ÞÚ FINNUR HJÓLIÐ ÞITTHJÁ OKKUR! LEIKTÍÐIN ER HAFIN Topp þjónusta í meira en 35 ár! TOPP VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA 4 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . M A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RúT AÐ hjóLA 1 0 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B D -5 F E C 1 F B D -5 E B 0 1 F B D -5 D 7 4 1 F B D -5 C 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.