Fréttablaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 8
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Eitt er víst.
Við munum
aldrei þróa
eitt tiltekið lyf
sem hentar
öllum.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
vill reisa
bíllausa
byggð
– mannvæna
byggð í sátt
við útgerð
og fisk-
vinnslu.
Ljúfsár lykt af sjávarfangi vekur minningar. Dægradvöl við dorgveiði á sólríkum degi. Skip koma að höfn til hvíldar. Börn bralla við bryggju í brælu. Lifandi tengsl fólks við
haf og höfn. Æskuminningar úr sjávarplássinu Hafnarfirði.
Búsetukostir og hafnarstarfsemi fóru laglega saman. Gamla
höfnin í Reykjavík hefur tekið breytingum. Umsvif útgerðar
á hafnarsvæðinu hafa minnkað. Hafnsækin starfsemi þarf
nú minna landrými en áður. Ásókn rekstraraðila í húsnæði
sem áður hýsti sjávarútveg hefur aukist. Þar finnst nú blómleg
verslun og þjónusta. Örfirisey er lifandi – en þar býr ekkert
fólk.
Það er skortur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Skorturinn
er viðvarandi og endurspeglast í mikilli verðhækkun íbúða.
Fjölga þarf hagstæðum búsetukostum vestarlega þar sem eftir-
spurn er mikil. Tryggja þarf fleiri búsetumöguleika í námunda
við stærstu vinnustaði borgarinnar. Tugþúsunda íbúðaþörf
næstu ára verður ekki að fullu svarað á þéttingarreitum í mið-
borg og nágrenni. Það þarf ný svæði og nýjar hugmyndir.
Örfirisey er að mestu byggð á landfyllingum – svæðið mætti
stækka enn frekar. Með þeim hætti hafa ýmis hverfi höfuð-
borgarsvæðisins risið. Framkvæmdin er einföld á grunn-
sævi, fyllingarefni úr húsagrunnum ódýrt og uppdæling af
sjávarbotni auðveld. Fjárfestingin er góð enda eignast borgin
verðmætt land. Sjálfstæðisflokkurinn sér möguleika á 4.000
íbúða lágreistri byggð með áherslu á spennandi lausnir fyrir
ungt fólk. Hagstæðar lóðaúthlutanir til byggingar hagkvæmra
búsetueininga. Allt yrði þetta viðfangsefni vandaðrar skipu-
lagsvinnu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill reisa bíllausa byggð – mannvæna
byggð í sátt við útgerð og fiskvinnslu. Vistvæna og græna
byggð sem ekki þrengir að hafnsækinni starfsemi. Byggð sem
stendur vörð um gömlu höfnina og mikilvægi hennar fyrir
atvinnulíf og sögu borgarinnar. Byggð sem blandar saman
búsetukostum og borgarstarfsemi – samspil sjávar og mann-
lífs – sjálfbæra og lifandi Örfirisey.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir frelsi og val – fjölbreytta
borg fyrir fjölbreytt fólk. Frelsið til að velja samgöngukosti og
fjölbreytta búsetukosti. Frelsið til að velja bíllausa byggð – til
kaupa á fasteign, án kaupa á bílastæði. Val um hagkvæmar
búsetueiningar. Val um að eignast heimili. Sáldrandi sjarma
við sjávarplássið og lifandi byggð við sjávarsíðuna.
Sjarmi við sjávarplássið
Hildur
Björnsdóttir
skipar 2. sætið
á lista Sjálf-
stæðisflokks-
ins í Reykjavík
CHARMING
laugardaginn 19. maí, kl. 12:30 í Smárabíói.
Taktu þátt á vefslóðinni
frettabladid.is/forsyning
Fréttablaðið býður í bíó!
FRUMSÝND 23. MAÍ
Samhliða hækkandi aldri heimsbyggðarinnar mun tilfellum vitglapa fjölga gríðarlega. Úr fimmtíu milljónum í dag í 152 milljónir um miðja öld þegar fjárhagsleg byrði slíkra minnissjúkdóma mun nema um tvö þúsund milljörðum Bandaríkjadala á ári, margfalt
meira en samanlagður kostnaður af krabbameinum
og hjartasjúkdómum.
Vitglöp eru ekki eðlilegur fylgifiskur öldrunar.
Þau eru ekki það að gleyma hvar maður setti veskið,
heldur hvað veskið nákvæmlega er.
Vitglöp eru í raun regnhlífarhugtak yfir einkenni
sem rekja má til ágengra og óafturkræfra heilasjúk-
dóma eins og Alzheimer og Lewy Body. Vitglöp eru,
og verða, eitt stærsta viðfangsefni okkar kynslóðar.
Okkar framlag til þessarar löngu baráttu ætti að
vera öflugt og skapandi vísindastarf ásamt heild-
stæðri áætlun um það hvernig við ætlum að takast
á við það vaxandi vandamál sem vitglöp eru, og
hvernig hægt er að búa innviði okkar og samfélag
undir að hlúa enn betur að þeim sem sökkva hægt
í óreiðu andlegrar hnignunar. Þegar vísindin eru
annars vegar þá hafa fræðin tekið gríðarlegum
framförum á undanförnum árum, að minnsta kosti
hvað varðar skilning okkar á vitglöpum, þó margt sé
enn á huldu um tilurð þeirra. Lyfjatilraunir á þessari
öld hafa skilað litlum sem engum árangri.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær eru vísinda-
menn nú vongóðir um að nýtt lyf sem hindrar efna-
ferla sem leiða til Alzheimer muni skila tilætluðum
árangri. Íslensk erfðaþekking gegndi mikilvægu
hlutverki í að staðfesta lyfjamörk lyfsins og hún
gegnir lykilhlutverki í prófun þess. Eitt er þó víst.
Við munum því miður aldrei þróa eitt tiltekið lyf
sem hentar öllum.
Þannig er það óumflýjanlegt að við þurfum
að takast á við þær krefjandi áskoranir sem fylgja
auknum fjölda þeirra sem glíma við vitglöp. Flest
vestræn ríki gera sér grein fyrir þessu og hafa unnið
umfangsmiklar áætlanir til að takast á við þær.
Alþingi Íslendinga samþykkti í mars á síðasta ári
þingsályktunartillögu þess efnis að ráðist yrði í
gerð slíkrar áætlunar. Ekkert hefur gerst síðan þá.
Starfshópurinn hefur ekki tekið til starfa og nú geta
200 manns átt von á að bíða í allt að tvö ár eftir
að komast í dagþjálfun, með tilheyrandi afturför
í sjálfsbjargargetu. Eins og bent var á í ritstjórnar-
grein Læknablaðsins nýverið, þá ríkir sannarlega
úrræðaleysi í málaflokknum.
Brýn þörf er á að móta heildstæða stefnu í
málefnum þeirra sem glíma við heilabilun og
aðstandenda þeirra. Stefna þessi þarf að taka til
heilbrigðisþjónustunnar, skráningar á einkennum
og sjúkdómum, vísindavinnu hér á landi og erlendis
til að auðvelda innleiðingu nýrra og gagnreyndra
úrræða, og um leið til fræðslu og stuðnings þar sem
vakin er athygli á erfðafræðilegum áhættuþáttum
sem og þeirri mikilvægu staðreynd að heilsusamlegt
líferni getur minnkað líkur á vitlöpum umtalsvert.
Vitglöp okkar
Saklaus maður
Formaður Kennarasam-
bandsins, Ragnar Þór Péturs-
son, hefur sætt ásökunum um
blygðunarsemisbrot gagnvart
pilti sem hann kenndi fyrir
hartnær 20 árum. Hann hefur
sjálfur greint frá því að málið
hafi borist til lögreglu en lög-
reglumenn ekki séð tilefni til
að ljúka rannsókn. Ragnar var í
öllu falli aldrei sakfelldur fyrir
brotið. Í réttarríki eru menn
saklausir þar til sekt er sönnuð.
Þrátt fyrir það sáu nokkrar
konur á þingi KÍ, sem fram
fór nýverið, ástæðu til þess að
hvetja Ragnar til að taka ekki
embætti formanns, sem hann
var þó réttkjörinn til að gegna.
Eðli málsins samkvæmt varð
ekkert úr því.
Linnulaus málflutningur
Í gær barst svo yfirlýsing frá
Kvennaframboðinu þar sem
tilkynnt var að fulltrúar fram-
boðsins myndu ekki mæta á
fund Kennarafélags Reykja-
víkur, sem fram fór í gær og
ræddar voru áherslur flokkanna
í menntamálum. Ástæðan var sú
að Ragnar Þór Pétursson myndi
halda opnunarerindi á fund-
inum. Það þarf svo kannski ekki
að koma á óvart að einn fulltrúi
kvennanna, sem skoruðu á
Ragnar Þór að taka ekki emb-
ættið sem hann var réttkjörinn
til að gegna, er einmitt líka á
lista hjá Kvennaframboðinu.
jonhakon@frettabladid.is
1 5 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R8 s k o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-B
2
F
0
1
F
C
4
-B
1
B
4
1
F
C
4
-B
0
7
8
1
F
C
4
-A
F
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K