Fréttablaðið - 15.05.2018, Qupperneq 10
Stjarnan - Víkingur R. 3-3
1-0 Þórarinn Ingi Valdimarsson (14.), 1-1
Rick Ten Voorde, víti (32.), 2-1 Hilmar Árni
Halldórsson, víti (37.), 2-2 Arnþór Ingi Krist-
insson (58.), 3-2 Hilmar Árni, víti (64.), 3-3
Ten Voorde, víti (90+5.).
Efri
Breiðablik 9
FH 6
Valur 5
Víkingur R. 5
KA 4
Grindavík 4
Neðri
KR 4
Fylkir 4
Stjarnan 2
Fjölnir 2
Keflavík 1
ÍBV 1
Nýjast
Pepsi-deild karla
Ford KA+ er snjall bíll með litríkan persónuleika sem skín í gegnum
nýtt útlit hans með töffaralegu Ford grilli og rennilegum framljósum.
Ford KA+ er svo snjall að í honum getur þú með raddstýringu
hringt og svarað símtölum, hlustað á sms skilaboð eða
spilað uppáhalds tónlistina þína.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
22.955 kr.
• Miðað við 79% Lyk
illán
• Kaupverð 1.790.00
0 kr.
• Útborgun 370.000
kr.
• Vextir 7,95%
• Lánstími 84 mánuð
ir
• Árleg hlutfallstala k
ostnaðar 9,54%
Mánaðargreiðsla:
FORD KA+
STÓRI SMÁBÍLLINN!
VERÐ FRÁ:
KR.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford KA+
1.790.000
ford.is
Ford_KA+_Stóri smábíllinn_5x15_20180507_END.indd 1 07/05/2018 12:37
Fótbolti Berglind Björg Þorvalds-
dóttir og samherjar hennar hjá
Breiðabliki mæta HK/Víkingi í
nágrannaslag í þriðju umferð Pepsi-
deildar kvenna í knattspyrnu í
Kórnum í Kópavogi í kvöld. Berglind
Björg hefur, líkt og Breiðabliksliðið
allt, farið vel af stað í deildinni á yfir-
standandi leiktíð.
Nýliðar HK/Víkings hafa hins
vegar sýnt klærnar í upphafi deild-
arinnar, en liðið vann FH í fyrstu
umferðinni og tapaði svo fyrir
ríkjandi Íslandsmeisturum, Þór/KA,
eftir hörkuleik í annarri umferðinni.
Breiðablik hefur aftur á móti haft
betur í fyrstu tveimur leikjum sínum
í deildinni, en liðið hefur skorað tíu
mörk í öruggum sigrum. Berglind
Björg hefur skorað fjögur af þessum
tíu mörkum, en hún er næstmarka-
hæsti leikmaður deildarinnar á eftir
Söndru Maríu Jessen, framherja
Þórs/KA sem hefur skorað fimm
mörk í þremur leikjum.
„Það er mikið sjálfstraust í liðinu
eftir góða byrjun í deildinni í sumar.
Við byrjuðum mótið af miklum
krafti með góðum sigri á Stjörnunni
og svo fylgdi sannfærandi sigur á
Grindavík þar í kjölfarið. Við ætlum
að halda þessu áfram og stefnan er
sett á þrjú stig í leiknum gegn HK/
Víkingi,“ sagði Berglind Björg í sam-
tali við Fréttablaðið.
„Við misstum frábæra leikmenn
eftir síðasta tímabil, en þeir leik-
menn sem eftir eru hafa fengið
aukna ábyrgð í staðinn. Það eru
margir leikmenn sem hafa gripið
tækifærið og staðið sig mjög vel. Við
fylltum líka í skörðin með nýjum og
öflugum leikmönnum. Þetta hefur
leitt til þess að við söknum ekki
þeirra leikmanna sem fóru og gæði
liðsins eru á pari við liðið í fyrra að
mínu mati. Við notuðum veturinn
vel í að byggja upp nýtt lið. Leik-
mannahópurinn hefur smollið vel
saman og liðsandinn í hópnum er
alveg frábær,“ sagði hún um stemm-
inguna í Breiðabliki.
Breiðablik stefnir að því að kom-
ast upp að hlið Þórs/KA, sem trónir á
toppi deildarinnar með níu stig, með
sigri gegn HK/Víkingi.
Þá getur Berglind Björg jafnað
eða skotist upp fyrir Söndru Maríu
á listanum yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar með marki eða
mörkum í leiknum.
„Það er alltaf jafn góð tilfinning
að skora og það eykur sjálfsöryggið
að sjá boltann í netinu. Það var gott
að brjóta ísinn strax í fyrsta leik
og það hefur gengið vel að koma
boltanum í markið í upphafi leik-
tíðarinnar. Vonandi næ ég að halda
áfram á þessari braut og halda áfram
að hjálpa liðinu með því að skora,“
sagði Berglind Björg um marka-
skorun sína. hjorvaro@frettabladid.is
Erum með mikið sjálfstraust
Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur raðað inn mörkum fyrir Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í
sumar. Berglind Björg er næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með fjögur mörk eftir fyrstu tvo leikina.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og stöllur hennar í Breiðabliki hafa byrjað tímabilið af krafti. FRéttaBlaðið/aNtoN BRiNk
Það eru margir
leikmenn sem hafa
gripið tækifærið og staðið sig
mjög vel.
Berglind Björg
Þorvaldsdóttir
FH leitar að
fyrsta sigrinum
handbolti FH og ÍBV mætast í
annað sinn í einvíginu um Íslands-
meistaratitilinn í handbolta karla í
Kaplakrika í kvöld. Eyjamenn unnu
fyrsta leik liðanna á sínum heima-
velli, 32-26, á laugardaginn var.
Það var þriðji sigur ÍBV á FH í jafn
mörgum leikjum í vetur. Eyjamenn
unnu báða leikina í Olís-deildinni;
33-34 í Kaplakrika og 37-29 í Eyjum.
FH-ingar eru komnir í slæm mál
ef þeir tapa leiknum í kvöld en það
hefur aðeins einu sinni gerst, síðan
úrslitakeppnin var tekin upp tíma-
bilið 1991-92, að lið komi til baka og
verði Íslandsmeistari eftir að hafa
lent 2-0 undir. – iþs
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta
mörk í leik eitt. FRéttaBlaðið/ERNiR
1 5 . m a í 2 0 1 8 Þ R i Ð J U d a G U R10 S p o R t ∙ F R É t t a b l a Ð i Ð
sport
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-9
F
3
0
1
F
C
4
-9
D
F
4
1
F
C
4
-9
C
B
8
1
F
C
4
-9
B
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K