Fréttablaðið - 15.05.2018, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Ástæða þess að Andri Þór Arinbjörnsson keypti sér kajak fyrir nokkrum árum
er sú að hann vildi stunda veiðar á
sjó. Honum þótti kajakinn meira
heillandi en mótorbáturinn en
komst fljótlega að því að ákveðna
grundvallarfærni þurfti til að geta
stundað veiðar af kajak. Hann
kynnti sér því starfsemi Kayak
klúbbsins og fór að taka þátt í
róðrum á vegum klúbbsins frá
Geldinganesi. „Mér þótti sportið svo
skemmtilegt að ég hætti að hugsa
um veiðar sem eitthvert markmið
en ég var búinn að róa í fjögur ár
áður en ég prófaði fyrst að veiða á
kajak. Ég fer af og til í veiðiferðir á
kajak en í dag er ég aðallega að róa
til að komast í skemmtilega útivist,
hvort sem er í straumvatni eða á sjó.“
Hann segir helst heillandi við
íþróttina hversu auðveldlega sé
hægt að róa á fáfarna staði og
raunar sé ótrúlega stuttur róður
frá borginni út í fallega náttúruna.
„Aðgengi er auðvelt og það er hægt
að róa allt árið. Kraftarnir sem búa í
hafinu eru miklir og fyrir þann sem
hefur náð góðum tökum á kajak er
ekki síður skemmtilegt að takast
á við stórar öldur í blindbyl en að
njóta kyrrðarinnar á sléttum sjó. Á
kajak er hægt að komast í spennu
í straumvatni, fossum eða stórum
öldum, stunda þrekæfingar og
keppa, fara í margra nátta ferðalög
með viðlegubúnað eða njóta nátt
úrunnar í rólegheitum. Það er alltaf
hægt að finna eitthvað skemmtilegt
að gera á kajak og alltaf hægt að
auka færnina.“
Langur undirbúningur
Síðasta sumar reri Andri á kajak
frá Þórsmörk til Vestmannaeyja en
ferðin var mikið ævintýri. „Sumarið
2015 var ég í Þórsmörk með fjöl
skyldunni og fór að velta fyrir mér
hvort hægt væri að róa Markar
fljótið. Auk þess átti ég alltaf eftir að
róa til Vestmannaeyja en mér fannst
tilvalið að sameina þetta í einni
ferð. Það þarf margt að ganga upp
til að hægt sé að fara í svona ferð og
það liðu tvö ár frá því hugmyndin
kviknaði og þar til ég hitti á réttu
aðstæðurnar.“
Fyrsti leggur ferðarinnar hófst
föstudagskvöldið 9. júní en þar
var Andri í samfloti með tveimur
félögum sínum, Þorbirni Sigur
björnssyni og Birni Traustasyni. „Við
skildum bíl eftir við gömlu Markar
fljótsbrúna en fórum svo upp í Bása
þar sem var sett á flot. Fyrsti leggur
var 30 km og áin skiptist reglulega
í tvennt og stundum þrennt og þá
þurfti að meta mjög fljótt hvaða
áll væri vatnsmestur. Nokkrum
sinnum tókum við ranga leið en
sluppum þó við mikið basl. Klukkan
var orðin hálf tvö um nótt þegar við
komum að bílnum en þá áttum við
eftir að keyra aftur upp í Bása, tjalda
og grilla.“
Ógnvænlegt brim
Eftir hádegi næsta dag var keyrt
niður að ósi. Veðurspáin var slæm
þannig að ákveðið var að róa ekki
til Eyja þann daginn. Hins vegar var
spáin fyrir sunnudaginn mjög góð.
Björn hélt heim á leið og eftir voru
þeir tveir, Andri og Þorbjörn.
„Við ákváðum að taka næsta legg
niður að ósnum, skildum bílinn
eftir þar en fengum far aftur að
brúnni. Áin var mun vatnsmeiri
þarna niður frá og auðveldara að
forðast strand á seinni kaflanum.
Talsverður straumur var við stólpa
brúnna og meira að segja hægt að
sörfa aðeins öldu við gömlu brúna.
Nálægt ósnum lá fullt af sel uppi á
sandinum og hef ég aldrei séð svona
marga seli á einum stað en hersingin
fylgdi okkur alveg á leiðarenda.
„Aðgengi er auð-
velt og það er
hægt að róa allt
árið. Kraftarnir
sem búa í hafinu
eru miklir og fyrir
þann sem hefur
náð góðum tökum
á kajak er ekki
síður skemmti-
legt að takast á
við stórar öldur
í blindbyl,“ segir
Andri Þór.
Róið niður eftir Markarfljóti en fyrsti leggurinn var um 30 km.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Brimið í ósnum var ógnvænlegt og
það var auðveld ákvörðun að taka
dótið saman og segja þetta gott
þennan daginn.“
Gekk á ýmsu
Daginn eftir hélt Þorbjörn heim
en nýr félagi bættist í hópinn,
Eymundur Ingimundarson, sem
reri lokalegginn frá ósnum til Vest
mannaeyja. „Brimið leit mun betur
út frá landi og veðurspáin var góð
en það átti að hvessa seinna um
daginn þannig að við þurftum að
drífa okkur til að sleppa við hvassan
mótvind á leiðinni.“
Félagarnir settu á flot örlítið ofan
við ósinn. Straumurinn var þó nokk
ur alveg út í sjó og þegar þeir komu
nær sáu þeir að brimið var meira en
það hafði virst frá landi. „Öldurnar
risu óþægilega hátt á þessum kafla
og í eitt skiptið sem ég leit aftur fyrir
mig sá ég hvernig aldan hafði keyrt
kajakinn hans Eymundar í kollhnís
aftur á bak þannig að hann skaust
upp eins og ofvaxinn korktappi. Auk
þess stökk selur úr öldunni beint í
áttina að mér þannig að við rákumst
næstum því saman. Vatnsflaumur
inn bar okkur frá mestu brim sköfl
unum og eftir þetta óvænta ævintýri
gátum við haldið áfram ferð okkar
til Eyja.“
Fallegur endasprettur
Sjólagið á leiðinni var mjög
skemmtilegt að sögn Andra, undir
alda og smá vindur á móti en þeir
héldu fínum ferðahraða. „Við rerum
á milli Bjarnareyjar og Elliðaeyjar
og hægðum aðeins á ferðinni þegar
við komum að eyjunum enda þurfti
að mynda dýrðina og skoða vel.
Eftir stutt stopp í Klettshelli rerum
við inn í höfnina þar sem ég kvaddi
Eymund eftir frábæran dag. Eftir
smá snarl tók ég Herjólf til baka í
faðm fjölskyldunnar.“
Fæst í apótekum og heilsuverslunum, Hagkaup,
Melabúðinni Fræinu, Fjarðarkaupum
auk valdra útsölustaða um land allt.
SUÐURLANDSBRAUT 24 | 108 REYKJAVÍK
SÍMI 516 0100 | WWW.HEIMILIOGSKOLI.IS
AÐALFUNDUR
HEIMILIS OG SKÓLA
Aðalfundur Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra
verður haldinn miðvikudaginn 23. maí, kl. 17. Fundurinn
verður haldinn í þjónustumiðstöð Heimilis og skóla á
2. hæð, Suðurlandsbraut 24, 105 Reykjavík.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf og eru
félagsmenn hvair til að mæta. Lagabreytingar eru
auglýstar á heimasíðu www.heimiliogskoli.is.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . M A Í 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-A
E
0
0
1
F
C
4
-A
C
C
4
1
F
C
4
-A
B
8
8
1
F
C
4
-A
A
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K