Fréttablaðið - 15.05.2018, Blaðsíða 17
Þ R I ÐJ U DAG U R 1 5 . m a í 2 0 1 8 Kynningar: Spánarheimili, Fjörður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Von Mathús
Hafnarfjörður
Starfsfólk fasteignarmiðlunarinnar Spánarheimila (f.v.): Bjarni Sigurðsson, Bjarni Haukur Magnússon, Guðbjörg Hannesdóttir, Hrafnhildur Ósk Eiriksdóttir, Baldur Heimisson og Reynir Logi Ólafsson. Á
myndina vantar Susana Garcia Vega.
Annað heimili í sólinni
Sífellt fleiri íslendingar kaupa fasteignir á Spáni enda býður landið upp á hagstætt verðlag og
stöðuga veðurblíðu. Spánarheimili, sem er staðsett í Firðinum í Hafnarfirði, hefur þá sérstöðu að
vera eina fasteignamiðlunin sem hefur bæði skrifstofu og starfsmenn á íslandi og á Spáni.
Mikill vöxtur hefur verið í sölu fasteigna á Spáni undanfarið ár eftir að
gjaldeyrishöftin voru afnumin í
mars á síðasta ári. Íslendingar hafa
alltaf haft sterkar taugar til Spánar
enda býður landið upp á hagstætt
verðlag, stöðuga veðurblíðu, fal-
legar strandir og góða golfvelli svo
fátt eitt sé talið.
Sú fasteignamiðlun sem er
í fararbroddi þegar kemur að
sölu fasteigna á Spáni hér á landi
heitir Spánarheimili og er staðsett
í Hafnarfirði. Spánarheimili er tíu
ára gamalt fyrirtæki og hefur m.a.
þá sérstöðu að vera eina fasteigna-
miðlunin sem hefur bæði skrif-
stofu og starfsmenn á Íslandi og á
Spáni. Starfsmenn Spánarheimila,
sem eru sjö talsins, búa allir eða
hafa búið á Spáni og er því óhætt
að segja að þeir þekki aðstæður
mjög vel segir Bjarni Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Spánarheim-
ila. „Við búum yfir öflugum og
reynslumiklum hópi starfsmanna
sem m.a. telur tvo íslenska og
einn spænskan lögfræðing ásamt
íslenskum fyrrverandi útibússtjóra
spænsks banka. Starfsfólk okkar
hefur áralanga reynslu af sölu og
fjármögnun fasteigna á Spáni og
þekkir því vel til allra aðstæðna og
staðhátta á Costa Blanca svæðinu.
Costa Blanca er á Suðaustur-Spáni
en það er markaðssvæðið sem við
einbeitum okkur að enda stærsta
orlofshúsabyggð í Evrópu auk
þess sem það er beint flug til og frá
Íslandi á svæðið. Einnig seljum við
eignir á Tenerife á Kanaríeyjum.
Verð fasteigna á þessum slóðum er
mjög hagstætt og segja má að hægt
sé að selja sumarbústað á Íslandi
og kaupa góða eign í sólinni fyrir
peninginn í staðinn.“
Framhald á síðu 2 ➛
Kynningarblað
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
C
4
-C
1
C
0
1
F
C
4
-C
0
8
4
1
F
C
4
-B
F
4
8
1
F
C
4
-B
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K