Fréttablaðið - 15.05.2018, Side 21
Í nýju Hraunahverfi, Hraun-Vestur, mun á næstu árum verða til líflegt umhverfi fyrir alls konar fólk.
Hverfið fékk á hönnunarstiginu viðurnefnið „Fimm mínútna hverfið“ en sú hugmynd gengur út á að íbúar hverfisins
geti fengið flesta þá þjónustu sem nauðsynleg er í ekki meira en fimm mínútna fjarlægð frá miðju hverfisins.
Í nýju Hraunahverfi, Hraun-Vest-ur, mun á næstu árum verða til líflegt umhverfi fyrir alls konar
fólk. Hverfið verður aðlaðandi
fyrir barnafjölskyldur, einstaklinga
og eldri borgara, fólk sem kýs
að sækja grunnþjónustu innan
hverfisins og lágmarka notkun
einkabílsins. Við uppbygginguna
verður það sett að markmiði að ná
fram fjölbreyttu borgarumhverfi
þar sem hægt er að ganga með
börnin í skóla eða leikskóla, nota
almenningssamgöngur til vinnu
og koma við í búðinni að loknum
vinnudegi og áður en börnin eru
sótt á frístundaheimilið.
Hverfið hefur verið í hönnun
og undirbúningi undanfarin ár og
ættu framkvæmdir að geta hafist
upp úr næstu áramótum. Hverfið
fékk á hönnunarstiginu viður-
nefnið „Fimm mínútna hverfið“
en sú hugmynd gengur út á að
íbúar hverfisins geti fengið flesta
þá þjónustu sem nauðsynleg er
í ekki meira en fimm mínútna
fjarlægð frá miðju hverfisins. Þar
er því sleginn nýr tónn í skipulags-
málum. Áhersla verður lögð á góða
blöndun íbúðabyggðar, þjónustu,
létts iðnaðar, verslana, skóla-,
dagvistunar- og frístundasvæða.
„Sífellt er kallað eftir fleiri og
nýjum möguleikum í húsnæði og
er ungt fólk sem er að stofna fjöl-
skyldur margt með aðrar áherslur í
þeim efnum en þeir sem eldri eru.
Einnig þeir sem eru að minnka við
sig húsnæði. Í dag gera sífellt fleiri
auknar kröfur um betri nýtingu
fermetra húsnæðis og lóðar. Eftir-
sóknarvert þykir orðið að búa í
hverfi þar sem stutt er í þjónustu,
almenningssamgöngur og græn
svæði,“ segja Rósa Guðbjartsdóttir,
formaður bæjarráðs, og Guðlaug
Svala Steinunnar Kristjánsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, í nýlegri
grein um Hraun-Vestur.
Glæsilegt andlit
Hafnarfjarðar
Unnið hefur verið að hugmyndum
um Hraun-Vestur allt þetta
kjörtímabil og er það
í samræmi við ára-
langar umræður
um nýja sýn á svo-
kallaðri framhlið
Hafnarfjarðar.
„Hraun-Vestur
er ekki bara
ný glæsileg
framtíðarsýn
heldur verður
hverfið nýtt
glæsilegt andlit
Hafnarfjarðar sem
mun gera okkur öll stolt
Byggt
verður
upp fimm
mínútna
hverfi
af því að bjóða gesti og nýja íbúa
velkomna,“ segir jafnframt í ofan-
greindri grein.
Eins og áður segir er stefnt að því
að Hraun-Vestur verði „fimm
mínútna hverfi“ en engu
að síður verða stað-
setningar helstu
grunnþjónustu,
eins og skóla,
leikskóla, bíla-
stæðahúsa, bíla-
stæðakjallara og
helstu tenginga
við almennings-
samgöngur með
einnar mínútna
millibili. Breið-
götur munu liggja báðum megin
við hverfið, Fjarðarhraun og
Reykjavíkurvegur, og fyrirhuguð
Borgarlína fer líklega um Reykja-
víkurveg og tengir því hverfið vel
höfuðborgarsvæðinu. Borgargötur
mynda helstu þvertengingar í
gegnum hverfið og við þær er gert
ráð fyrir líflegri verslun. Þá munu
almenningssamgöngur fara um
borgargöturnar og hjólreiðastígar
liggja við þær. Bílastæði verða í
bílastæðahúsum, bílakjöllurum og
göturýmum en útfærslur á götu-
mynd verða að norrænni fyrir-
mynd.
„Gildi umhverfisverndar og
vitund um gæði og betri nýtingu
fellur vel að lífsstíl fólks á öllum
aldri. Það er áskorun en um leið
frábært tækifæri að geta mætt
þeim gildum með nýju hverfi og
um leið nýju andliti Hafnarfjarðar.
Við teljum að Hraun-Vestur sé
einmitt sú borgarmynd sem fólk
aðhyllist í auknum mæli og upp-
fyllir óskir um nærumhverfið.
Þannig getur Hafnarfjarðarbær
bæði státað af því að bjóða frá-
bæra möguleika fyrir þá sem vilja
hefðbundið hverfafyrirkomulag
fyrir íbúðarhús, parhús, raðhús og
fjölbýli þar sem áherslan er á nátt-
úrufegurð og kyrrð en líka þéttari
byggð í hverfi sem er nokkurs
konar „smáborg í borg“.“
Uppbygging Hraun-Vestur
verður í áföngum og er gert ráð
fyrir að hverfið í heild byggist á um
tíu til tuttugu árum.
Hraun-Vestur verður glæsilegt hverfi
og andlit Hafnarfjarðar með áherslu
á náttúrufegurð og kyrrð en einnig
þéttari byggð með íbúðum, vinnu-
stöðum, stofnunum, verslunum og
þjónustu.
Rósa Guðbjartsdóttir.
Mynd/ GuðMunduR Fylkisson
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxkynninGARBlAð 5 Þ R i ðJ u dAG u R 1 5 . m a í 2 0 1 8 HAFnARFJöRðuR
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-A
9
1
0
1
F
C
4
-A
7
D
4
1
F
C
4
-A
6
9
8
1
F
C
4
-A
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K