Fréttablaðið - 15.05.2018, Qupperneq 33
Deadpool 2
dettur í Nexus-
forsýningu í
kvöld.
Jógvan og félagar taka nokkur gömul og góð í Búðardal í dag.
Hvað? Ég er kominn heim – Tón-
leikar
Hvenær? 20.00
Hvar? Búðardalur
Tónlistarmennirnir Jogvan
Hansen og Pálmi Sigurhjartarson
munu dagana 13. -22. maí halda
tónleika víðsvegar um landið
vestan- og norðanvert undir
heitinu „Ég er kominn heim“. Á
dagskránni eru lög og textar Jóns í
bankanum (Jón Sigurðsson, 1925-
1992) sem skildi eftir sig mikinn
fjársjóð í íslenskri dægurlaga-
flóru, og má segja að hvert einasta
mannsbarn á landinu þekki til
verka Jóns. Meðal laga sem þeir
félagar flytja eru Kvöldsigling,
Loksins ég fann þig, Ég er kominn
heim, Senn fer vorið, Vertu ekki að
horfa svona alltaf á mig, Ég vil fara
upp í sveit o.fl. o.fl. Tónleikarnir
verða í félagsheimilinu í Búðardal.
Miðar verða seldir við innganginn
og kosta 3.500 kr.
Hvað? Vortónleikar Vox Felix
Hvenær? 20.00
Hvar? Neskirkja
Eins og síðastliðin ár lofum við
auðvitað stuði og stemningu og
er lagalistinn með fjölbreyttu
sniði. Þar er að finna efni bæði frá
íslenskum, erlendum, gömlum og
nýjum tónlistarmönnum eins og
t.d. Ásgeiri Trausta, Stebba og Eyfa,
David Bowie og Queen.
Viðburðir
Hvað? Samstaða með Palestínu
Hvenær? 17.00
Hvar? Austurvöllur
Samstöðuhreyfingin með Pal-
estínu um heim allan mun þennan
dag styðja kröfu dagsins og rétt
Palestínumanna til að lifa við
mannréttindi og frið í sínu landi.
Stutt ávörp flytja Salmann Tamimi,
Sema Erla Serdar og Ögmundur
Jónasson.
Hvað? Örgöngur í Kópavogi
Hvenær? 19.00
Hvar? Álfhólsskóli, Kópavogi
Í dag verður gengið frá bíla-
stæðinu við Álfhólsskóla við Álf-
hólsveg. Gengið að Álfhól og álfa-
sögur rifjaðar upp. Síðan haldið að
bæjarstæði gamla Digranesbæjar-
ins og sagt frá búsetu manna þar.
Gangan endar svo í álfabyggðinni
í Einbúa þar sem skoðaðar eru
leifar frá atvinnubótaverkum
kreppunnar.
Hvað? Pallborðsfundur um sam-
göngur með frambjóðendum í
Reykjavík
Hvenær? 20.00
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Pallborð með frambjóðendum í
Reykjavík fer fram á Kex hosteli.
Fyrir fundinn stendur Hjólafærni
fyrir rólegum hjóla-/göngutúr um
miðbæinn. Lagt verður af stað frá
Hlemmi kl. 18.00 og hringnum
verður lokað á við Kex hostel kl.
19.00 þannig að svangir gestir
geta fengið sér góðan bita á fyrir
fund. 15% afsláttur verður af mat
og drykk fyrir og á meðan á fundi
stendur.
Hvað? Peppfundur og opið hús
Hvenær? 19.00
Hvar? Hjálpræðisherinn í Reykja-
vík, Álfabakka
Pepp Ísland, samtök fólks í fátækt,
eru fyrir alla sem búa við eða hafa
búið við fátækt eða félagslega
einangrun og vilja vinna saman
á jákvæðan hátt að því að stuðla
að lausnamiðuðum breytingum
og berjast gegn fátækt í okkar litla
samfélagi. Húsið opnað kl. sjö og
við byrjum á að kynnast aðeins,
elda og borða saman. Klukkan
átta höldum við stuttan fund þar
sem við kynnum samtökin og
segjum frá því sem er á döfinni og
mörkum okkur stefnu og dagskrá –
hverju myndum við vilja breyta og
hvað viljum við?
Hvað? Nexusforsýning: Deadpool
2 (2D)
Hvenær? 22.40
Hvar? Smárabíó
Skráning á landspitali.is
LANDSPÍTALI Í VÖRN OG SÓKN
DAGSKRÁ
Ávarp
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Ávarp
Páll Matthíasson, forstjóri
Ársreikningur Landspítala
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Samskiptasáttmáli Landspítala
Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga
Heiðursvísindamaður Landspítala
Runólfur Pálsson, yfirlæknir á lyflækningasviði
Heiðranir starfsfólks
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs
Uppbygging Landspítalaþorpsins við Hringbraut
Viðtöl, myndskeið, myndir og teikningar
Fundarstjóri
Benedikt Olgeirsson, framkvæmdastjóri þróunar
Ársfundur 2018 / Harpa, Silfurberg / 16. maí, kl. 14:00
„Landspítali í vörn og sókn“ er yfirskrift ársfundar Landspítala 2018, sem haldinn verður miðvikudaginn 16. maí
kl. 14:00 til 16:00 í ráðstefnusalnum Silfurbergi í Hörpu. Fundurinn er öllum opinn.
Að hefðbundnum ársfundarstörfum loknum verður niðurlag fundarins helgað uppbyggingu Landspítala við
Hringbraut. Verkefnið verður meðal annars kynnt með viðtölum við fjölmargt starfsfólk um framtíðarsýn hvað
snertir einstaka þætti starfseminnar í nýbyggingum spítalans. Sýnd verða myndskeið, teikningar, þrívíddarlíkön,
loftmyndir og tölfræði.
Bein útsending frá fundinum verður á Facebook-síðu Landspítala (www.facebook.com/landspitali).
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17Þ R i ð J U D A g U R 1 5 . m A í 2 0 1 8
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-B
2
F
0
1
F
C
4
-B
1
B
4
1
F
C
4
-B
0
7
8
1
F
C
4
-A
F
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K