Fréttablaðið - 15.05.2018, Page 37
Útgefandi: Íslandshótel hf., kennitala 630369-2919, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Íslandshótel hf. hafa birt lýsingu, dagsetta 14. maí 2018. Lýsingin er birt í tengslum við
umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum IH140647 verði tekin til viðskipta á
Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu.
Lýsingin er gefin út rafrænt á íslensku. Hún er birt á vef Íslandshótela hf. á slóðinni
www.islandshotel.is/um-Islandshotel/fjarfestar og verður aðgengileg þar í tólf mánuði frá
staðfestingu hennar. Útprentuð eintök má panta sér að kostnaðarlausu í gegnum
netfangið kolbrun@islandshotel.is.
Taka til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Sótt hefur verið um að Nasdaq Iceland hf. taki skuldabréfin til viðskipta á Aðalmarkaði
og mun verða tilkynnt um slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.
Nafnverð útgáfu
Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði kr. 2.860.000.000 sem er jafnt heildarstærð
flokksins. Öll útgefin skuldabréf í flokknum hafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin
út rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í kr. 20.000.000 einingum. Auðkenni
skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. verður IH140647 og ISIN númer
bréfanna er IS0000028892.
Reykjavík, 15. maí 2018
Stjórn Íslandshótela hf.
Skuldabréfaflokkurinn
IH140647
Birting lýsingar
Fólk virðist hvorki skilja né heyra
hvað Sálin er að segja.
Glæfralegt – enda má alveg kalla
jólin eldvarnarhátíð.
Sálin
Hey Kanína
Misheyrt: „Feita Nína, komdu í
partí …“
Það var víst ekki feita Nína sem
var verið að bjóða til veislu heldur
Kanína – en feita Nína er áreiðan-
lega fínasti partígestur og Sálin ætti
nú að sjá sóma sinn í að bjóða henni
í næsta partí.
Ég þekki þig
Rétt: „Ég þekki þig og þínar langanir“
Misheyrt: „Ég þekki þig og þína
langömmu“
Stebbi Hilmars þekkir alveg pottþétt
langömmu þína en það eru þó lang-
anirnar sem hann þekkir best.
Ábyggilega
Misheyrt: Ég veit um konu sem
kann ekki á útvarp, hún er með
krabbamein alveg eins og þú
Líklega er um að ræða viljandi mis-
heyrn hérna eða útúrsnúning en
ég hef ekki fyrir því neinar sannanir
þannig að þetta stendur. Konan
kemur samt á óvart og er í Krabb-
anum, stjörnumerkinu sko.
Björgvin Halldórsson fer ekki leynt
með aðdáun sína á Brendu Lee.
HlH flokkurinn
Vertu ekki að plata mig
Misheyrt: Ég sá hana í horninu á
Mánabar, Hún minnti mig á brenni-
vín
Þetta er misskilningur sem virðist
ansi algengur – margir hafa trúað því
að svona sé textinn í raun og veru í
mörg ár. Þó er það Brenda Lee sem
stúlkan á Mánabar minnti á.
Þú og ég
Aðfangadagskvöld
Misheyrt: Þetta aðfangadagskvöld,
fyrsta aðfangadagskvöld, er eld-
varnarhátíðin mest
Vissulega eru jólin eldvarnarhátíð
því að á þessum tíma árs stendur
á nánast hverjum einasta borðfleti
landsins logandi kerti sem bíður
eftir því að falla í mjúkan faðm gólf-
teppisins. En í þessum texta er verið
að vekja athygli á því að börn elska
jólin.
Grínistarnir Dave Chappelle og Jon Stewart ætla að skella sér í sameiginlegt grín-ferðalag um
Bandaríkin í sumar. Þeir ætla sér að
staldra við á sjö stöðum og grína og
glensa fyrir Bandaríkjamennina. Um
er að ræða nokkuð ólíklega pörun og
þó, Stewart mætti óvænt og glensaði
með Dave Chappelle árið 2017 er hann
grínaðist í Radio City Music Hall í New
York.
Dave Chappelle er svo sannarlega
kominn aftur á sjónarsviðið eftir að
hafa tekið sér mjög langt hlé. Hann
flúði land og hætti við þriðju seríuna
af hinum geysivinsæla Dave Chapp-
elle Show eins og frægt er orðið og fór
til Afríku í einhvern tíma til að finna
sig. Eftir það heyrðist lítið í Dave en
svo upp á síðkastið hefur hann verið
að færa sig upp á skaftið og gaf út fjóra
Netflix-specials: Equanimity, The Bird
Revelation, The Age of Spin og Deep in
the Heart of Texas. Hann fékk Grammy-
verðlaunin fyrir tvo síðasttöldu.
Það má kannski segja að Jon Stewart
sé á svipuðum stað og Dave Chappelle
en hann hætti líka í vinsælum þætti,
The Daily Show, árið 2015, þrátt fyrir
að það hafi ekki borið eins brátt að eins
og hjá Dave. Jon mun senda frá sér tvo
Netflix-specials á næstunni.
Tveir útlagar með uppistand saman
Dave og Jon hættu báðir á toppnum og sneru sér að uppistandi.
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 21Þ R i ð J U D A G U R 1 5 . m A í 2 0 1 8
1
5
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
4
-A
4
2
0
1
F
C
4
-A
2
E
4
1
F
C
4
-A
1
A
8
1
F
C
4
-A
0
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K