Fréttablaðið - 18.05.2018, Page 19
Fyrrverandi leikkonan og fyrir-sætan Tippi Hedren er andlit nýjustu auglýsingaherferðar
Gucci. Hedren er orðin 88 ára gömul,
en hún var fyrirsæta á 6. áratug
síðustu aldar og er meðal annars
þekkt fyrir leik í kvikmyndunum
Marnie og The Birds eftir Alfred
Hitchcock.
Auglýsingaherferðin er fyrir skart-
gripi og úr og í henni leikur Hedren
spákonu sem er að lesa í lófa,
kristalskúlur og steina fyrir ungar
fyrirsætur.
Ráðning Hedren virðist vera hluti
af breyttum áherslum í tískuheimin-
um, þar sem verður sífellt algengara
að sjá eldri fyrirsætur. Gucci hefur
líka ráðið leikkonuna Vanessu
Redgrave, sem er 79 ára, í auglýsinga-
herferð og á síðasta ári lék Lauren
Hutton, sem er 73 ára, í auglýsingum
fyrir nærföt frá Calvin Klein.
Hedren er móðir leikkonunnar
Melanie Griffith og amma leikkon-
unnar Dakota Johnson, en Johnson
hefur einmitt líka verið í auglýsinga-
herferð fyrir Gucci.
88 ára Gucci módel
Fallegu konungbornu blómabörnin.
Tvö eldri börn Vilhjálms her-toga og Katrínar hertogaynju, þau Georg sem er 4 ára og
Charlotte sem er 3 ára verða þátt-
takendur í konunglegu brúðkaupi
frænda síns, Harrys, á morgun.
Alls verða tíu börn á aldrinum
tveggja til sjö ára brúðarmeyjar
og -sveinar. Fyrir utan frændsyst-
kinin verða systurnar Remi, 6 ára,
og Rylan, 7 ára, brúðarmeyjar. Þær
eru dætur Benitu sem er ein besta
vinkona Meghan auk þess sem hún
er guðmóðir þeirra. Þá eru einnig á
listanum Ivy, 4 ára, Brian og John,
7 ára en þau eru börn kanadíska
fatahönnuðarins Jessicu Molroney.
Loks eru Florence, 3 ára, dóttir
Alice og Nicholas van Cutsem,
Zalie, 2 ára, hún er dóttir Zoe og
Jake Warren, og Jasper, 6 ára, sonur
Amöndu og Mark Dyer.
Börn Vilhjálms og Katrínar tóku
þátt í brúðkaupi fyrir ári þegar
frænka þeirra, Pippa Middleton
giftist James Matthews.
Konungleg
blómabörn
Á sunnudagskvöldið næst-komandi er góð ástæða til að taka fram dansskóna og
góða skapið því það kvöld mun
Háskóladansinn standa fyrir svo-
kölluðu sunnudanskvöldi á Sólon.
Fjörið byrjar kl. 20.30 og mun
dansinn duna fram eftir kvöldi.
Ætlunin er að taka hressilegan
snúning í swing & rock ’n’ roll og
boogie-woogie dansi. Allir sem
áhuga hafa á að dansa af hjartans
lyst eru velkomnir og ekki þarf að
taka dansfélaga með. Aðgangur
er ókeypis en dansarar eru beðnir
um að styrkja staðinn með því að
kaupa sér drykkjarföng á barnum.
Háskóladansinn, sem er dansfélag
fyrir háskólanema, stendur reglu-
lega fyrir danskvöldum þar sem
þátttakendur mæta og æfa sporin
saman.
Dansað á Sólon
Háskólanemar taka sporið á Sólon á
sunnudagskvöldið.
haust@haustrestaurant.is | borðapantanir í síma 531 9020 | haustrestaurant.is
Haust Restaurant er staðsett á Fosshotel Reykjavík, Þórunnartúni 1
Gæðastund með vinum og fjölskyldu
Brunch allar helgar verð 3.950 kr. á mann
Alltaf
frítt fyrir
5 ára og
yngri
Hálft ve
rð
fyrir 6-1
2 ára
Alla daga frá 18-21
á Haust Restaurant
Kvöldverðarhlaðborð
Verð 6.990 kr. á mann
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 1 8 . m a í 2 0 1 8
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
5
-A
E
6
8
1
F
D
5
-A
D
2
C
1
F
D
5
-A
B
F
0
1
F
D
5
-A
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K