Fréttablaðið - 18.05.2018, Síða 34
Elsku pabbi minn, sonur okkar
og bróðir,
Birgir Snær Guðmundsson
lést sunnudaginn 13. maí.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Þeir sem vilja minnast hans láti
Björgunarsveit Hafnarfjarðar njóta þess, á
heimasíðu þeirra www.spori.is.
Markús Leví
Linda Björk Guðmundur Rúnar
Gylfi Freyr, Hjalti Þór, Andri Fannar og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Þuríður Guðmundsdóttir
Kleppsvegi 4,
lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 14. maí. Útför auglýst síðar.
Haukur Már Stefánsson Soffía Bryndís Guðlaugsdóttir
Arnheiður Svala Stefánsd. Jens Ormslev
Guðmundur Þór Stefánsson
Þetta er búið að vera svo-lítið lengi í bígerð hjá okkur – rúmt ár. Þetta hófst nú þannig að ég hlusta sjálf svolítið á hlaðvarpsþætti og þar á meðal þátt sem
Borgarbókasafnið í Stokkhólmi heldur
úti og við hrifumst af þessum möguleika
fyrir okkur til að tala um bækur og vekja
athygli og áhuga á safnkostinum og öllu
sem við erum að bralla hér. Núna er um
það bil ár síðan fyrstu þættirnir okkar
fóru í loftið, þeir sem við framleiðum
sjálf. Svo héldum við áfram og tókum
eina syrpu síðasta sumar, tókum leik-
húsbókmenntir síðasta haust og fengum
krakka til okkar til að spjalla um barna-
bækurnar fyrir jólin. Við erum alveg
með langa lista af efni til að tala um í
framtíðinni,“ segir Sunna Dís Másdóttir,
verkefnastjóri hjá Borgarbókasafninu,
en í Borgarbókasafninu í Grófinni hefur
verið starfrækt hlaðvarpsframleiðsla í
litlu hljóðveri sem nú í dag verður opnað
almenningi.
„Þessi hugmynd kviknaði svona sam-
hliða þessu – fyrst að við vorum búin að
koma okkur upp aðstöðu og tækjabúnaði
á annað borð þá fannst okkur það bara
algjörlega rökrétt og frábært að hleypa
fleirum að. Og það erum við að gera núna,
við erum að opna þessa aðstöðu okkar
fyrir gesti og lánþega sem geta gert sína
eigin hlaðvarpsþætti, eða tekið löng og
ítarleg viðtöl við áhugavert fólk eða bara
haldið einræðu um eigið hugðarefni.“
Ferlið er þannig að áhugasamir senda
tölvupóst á hladvarp@borgarbokasafn.is
og bóka þannig herbergið.
„Svo kemur fólk til okkar, fær lykilinn
að Kompunni þar sem við erum búin
að útbúa leiðbeiningar sem við höldum
að séu nokkuð aðgengilegar. En ef fólk
lendir í vandræðum þá er hér tæknikunn-
ugt fólk sem getur eflaust stokkið til og
reynt að leiðbeina svolítið. Í framhaldinu
vonumst við líka til þess að geta haldið
smiðjur eða stutt námskeið fyrir þá sem
vilja fá aðeins dýpri skilning á þessu.“
Tækjabúnaðurinn sem boðið er upp á
er upptökutæki, hljóðnemar, aðgangur
að tölvu með klippiforriti þar sem hægt
er að snurfusa útkomuna til – svo gengur
fólk út með afraksturinn á minniskorti
eða sendir það í gegnum netið.
Í dag verður svo formleg opnun á þess-
ari nýju viðbót við safnið og hefst hún
klukkan 17 í Grófinni.
„Þá geta allir komið og kíkt í Kompuna
og fengið að prófa tækið. Við ætlum líka
að spila þættina með lestrarhestunum
okkar inni í barnadeild og svo frammi
á því sem við köllum Handavinnutorg
ætlum við að spila þáttinn sem drottn-
ing hlaðvarpsins gerði fyrir okkur, Vera
Illugadóttir. Þar verður frumfluttur
þátturinn hennar um bókaþjófinn –
bókasafnsglæpasaga í Veru-stíl – mjög
spennandi!“ segir Sunna Dís
stefanthor@frettabladid.is
Hljóðver bókasafnsins
opnað fyrir almenning
Í Borgarbókasafninu Grófinni leynist lítið hljóðver þar sem safnið hefur verið að fram-
leiða hlaðvarpsþætti um bækur og safnkostinn. Í dag mun þetta hljóðver verða opnað
til „útláns“ og geta lánþegar tekið þar upp eigin hlaðvörp – eða bara hvað sem er.
Sunna Dís Másdóttir, verkefnastjóri Borgarbókasafnsins, segir að hugmyndin hafi í
raun kviknað út frá eigin áhuga á hlaðvarpsþáttum.
Merkisatburðir
1160 Eiríkur Svíakonungur, síðar Eiríkur helgi, drepinn (dag-
setning samkvæmt helgisögu Eiríks).
1268 Orrustan um Antiokkíu: Mamlúkasoldáninn Baibars
leggur krossfararíkið Antiokkíu undir sig og eyðir borginni.
1514 Frans, krónprins Frakklands, og Claude af Bretagne
ganga í hjónaband.
1565 Tyrkjaveldi hefur umsátur um Möltu sem var hrundið
þremur mánuðum síðar.
1756 Sjö ára stríðið hefst formlega milli Frakka og Eng-
lendinga.
1897 Stokkseyrarhreppi skipt í Stokkseyrarhrepp og Eyrar-
bakkahrepp.
1920 Sambandslögin frá 1918 staðfest með breytingum á
stjórnarskrá.
1930 Strandferðaskipið Súðin kemur til Íslands.
1973 Breski sjávarútvegsráðherrann Joseph Godber lýsir
því yfir að herskip muni gæta breskra fiskiskipa við veiðar
innan 50 mílna landhelgi Íslands.
1978 Selfoss fær kaupstaðarréttindi.
1980 Eldfjallið Sankti Helena í Washington-ríki gýs. 57
fórust og tjónið var metið á þrjá milljarða dollara.
1989 Verkfalli Bandalags háskólamanna lýkur. Þá hafði það
staðið í sex vikur og valdið mikilli röskun á skólastarfi.
1991 Helen Sharman verður fyrsti Bretinn í geimnum og
fyrsta konan sem kemur í geimstöðina MÍR með sovéska
geimfarinu Sojús TM-12.
1993 Danir samþykkja Edinborgarsamþykktina og þar með
Maastricht-sáttmálann með fjórum fyrirvörum.
1994 Félag leikmynda- og búningahöfunda stofnað á
Íslandi.
2003 260 farast í flóðum þegar fellibylur gengur yfir Srí
Lanka.
2006 Silvía Nótt syngur lagið „Congratulations“ fyrir hönd
Íslands í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva 2006.
2009 Tæplega 26 ára löngu borgarastríði á Srí Lanka lýkur
með sigri stjórnarhersins.
2013 Emmelie de Forest vinnur Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva 2013 fyrir Danmörku með laginu „Only
Teardrops“.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Kristján Pétur
Guðmundsson
apótekari,
Hagamel 47,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk,
þann 29. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey þann 11. maí frá
Neskirkju.
Kristín Ingiríður Hallgrímsson
Ásta Júlía Kristjánsdóttir
Tómas Þór Kristjánsson
og barnabörn.
Valdimar Bjarnfreðsson
listamaður
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn
28. maí nk. kl. 13 og jarðsettur í Kotstrandarkirkjugarði.
F.h. aðstandenda, Bjarnfreður Ólafsson.
Eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Páll Herbertsson
lést mánudaginn 30. apríl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar
þakkir eru til þeirra sem önnuðust hann
síðustu ár á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
Landakoti L-4 og dagþjálfun að Borgum.
Sigríður Samúelsdóttir
Stefán Gunnarsson Anna Birna Jensdóttir
Heimir Jón Gunnarsson Sari Paavola
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég vil fara heim til pabba“ veinaði
Silvía Nótt í beinni útsendingu eftir að
hún hafði ekki hlotið náð fyrir augum
Evrópubúa eftir innslag sitt í forkeppni
fyrir söngvakeppni Evrópskra sjónvarps-
stöðva.
Þennan dag fyrir tólf árum söng hún
lag sitt Til hamingju Ísland í forkeppn-
inni sem fór fram í Grikklandi. Áhorf-
endur keppninnar tóku afar dræmt í
atriði hennar en mikið var púað á hana
á meðan lagið var flutt.
Lagið sem vann það árið flutti finnska
þungarokkshljómsveitin Lordi, Hard
Rock Hallelujah.
Í umfjöllun Fréttablaðsins daginn
eftir sagðist hún hafa verið ötuð rógi
og að hún ætlaði að leita á ný mið með
tónlist sína. „Ég ætla að fara á annan
stað, þar sem er eitthvað fólk með
heila, skilurðu,“ sagði hún. „Ég ætla
að fara til Ameríku þar sem ég á fullt
af frægum vinum og þar sem ég ætla
að gera nýja plötu með Silvíu Night.“
Lítið hefur þó spurst til Silvíu Nætur og
Ameríkuævintýra hennar.
Þ ETTA G E R Ð I ST 1 8 . M A Í 2 0 0 6
Silvía Nótt móðgar Evrópu
Sumir vilja meina að Ágústa Eva Erlends-
dóttir hafi verið Silvíu Nótt.
1 8 . m a í 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U R18 T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð
tímamót
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
5
-9
5
B
8
1
F
D
5
-9
4
7
C
1
F
D
5
-9
3
4
0
1
F
D
5
-9
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K